Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 33

Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 33
Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 SMART SUMARFÖT, FYRIR SMART KONUR NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS Flakkar á milli áratuga síðustu aldar Karitas M. Bjarkadóttir er 19 ára ljóðskáld og er hrifin af stíl 6.-8. áratugar 20. aldarinnar. Hún klæðir sig reglulega upp í búninga sem einkenna ákveðinn áratug, með vandaða förðun í stíl við fötin. Karitas segir að Twiggy veiti henn mikinn iinnblástur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Karitas er með áberandi sér-stæðan fatastíl sem hún segir að hafi byrjað að þróast þegar hún var 16 eða 17 ára gömul. Hún hefur alltaf verið mikið fyrir pils og kjóla en henni finnst gaman að leika sér með mismunandi tímabil 20. aldarinnar. Í uppáhaldi eru 7. og 8. áratugurinn. „Ég lít á þetta þann- ig að ég sé að klæða mig í búning þar sem allt þarf að ganga upp.“ Hvetur alla til að lesa Ástu Sigurðardóttur Vegna þess hve hrifin Karitas er af þessum áratugum segist hún lesa mikið af bókum sem voru gefnar út á þeim tíma. „Ég les til dæmis mikið eftir Ástu Sigurðardóttur sem veitir mér sterkan innblástur.“ Ásta var brautryðjandi fyrir kvenrithöfunda á sínum tíma. Karitas hvetur alla og þá sérstak- lega ungar konur til að lesa sögur eftir hana. „Enda var hún frábær skáldkona. Hún var að tjá hluti sem eiga enn við í dag. Ég sæki mikið í hennar stíl. Ég held að áhugi minn á þessu tímabili hafi ómeðvitað áhrif á sköpun mína vegna þess hve Heimasaumuð svunta við gamlan kjól varð fyrir valinu á 19 ára af- mælisdaginn. Ég er mjög hrifin af þessum stóru, þungu augum sem eru einkenn- andi fyrir 60s. mikið ég les af bókum frá þessum tíma.“ Innblásturinn að fatastílnum frá degi til dags kemur hvaðanæva en í uppáhaldi eru dívurnar Twiggy og Brigitte Bardot. „Ég flakka samt mikið milli tímabila. Ég er til dæmis líka mjög hrifin af 50s kjólum. Ég er mest á miðri síðustu öldinni.“ Fyrir 19 ára afmælið sitt sem var á sjálfstæðisafmæli Íslendinga saum- aði Karitas á sig svuntu við gamlan kjól sem hún átti, en hún stefnir á að lifa sjálfbærari lífsstíl. „Þetta var fyrsta saumaverkið mitt. Mig langar að vera duglegri að sauma í staðinn fyrir að kaupa endalaust af fötum. Það sparar vinnu fyrir aðra og líka pening.“ Flækti og braut nálina Þegar maður saumar sín eigin föt sjálfur þarf maður að hugsa flíkurnar vandlega, það tekur sinn tíma að sauma þær og þar með er maður ekki bara að uppfylla augnabliks gleði með því að kaupa eitthvað tilbúið. „Svo líður manni svo vel þegar maður gengur í fötum sem maður saumaði sjálfur. Maður sleppur þá líka við að kaupa föt úr framleiðslu þrælabúða úti í heimi.“ Við verkið notaði Karitas gamla saumavél í eigu móður sinnar sem er búin að vera til á heimilinu frá því Karitas man eftir sér. „Mér tókst reyndar bæði að brjóta nálina og flækja tvinnann en þetta hafðist.“ Slysaðist út í þetta Förðunin verður svo að sjálfsögðu að vera í stíl við fötin. „Það þarf allt að smella saman. Ég er mjög hrifin af þessum stóru, þungu augum sem eru einkennandi fyrir 60s, þegar augnlokið er teiknað á. En það er erfitt að ná því vel. Það er eiginlega erfiðara en að gera „cateye“ með augnblýanti.“ Karitas farðar ekki bara sjálfa sig, hún hefur farðað fyrir bæði tónlist- armyndbönd og leikhús. „Ég farðaði fyrir tvö tónlistarmyndbönd eftir Bagdad brothers. Það voru mynd- böndin við Malar í kassanum og svo Brian Eno says: Quit your job. Svo farðaði ég Skoffín um daginn fyrir plötuna hans. Á meðan förðunin fyrir Malar í kassanum var frekar látlaus segir Karitas að hún hafi fengið að leika sér meira fyrir hitt myndbandið. „Ég setti gervibrúnku á strákana og skyggði allan líkamann á þeim, eitthvað sem ég hef aldrei gert áður.“ Stelpurnar voru svo með ýkta 9. áratugar förðun og túberað hár. „Ég fékk aðeins að klikkast.“ Hefur gefið út þrjár bækur Þegar kemur að hæfileikum Kar- itasar takmarkast þeir ekki við förðun og fataval. Hún hefur gefið út þrjár ljóðabækur og var að klára fyrsta árið sitt í Háskóla Íslands í grunnnámi í íslenskufræði. Næst stefnir Karitas á að gefa út textasafn eftir sjálfa sig. Í fjórðu bókinni verður til dæmis ljóð um endajaxl og annað um kisu. „Þetta verður kannski sundur- lausasta bókin mín því það er ekkert þema í henni. Þetta er líka eina bókin sem er ekki skrifuð í ástarsorg,“ en fyrri bækur Karitasar innihalda ljóð sem eru afurðir til- finningaflóða í kjölfar sambands- slita. Stíllinn er enginn stíll Ljóð Karitasar eru oftast óregluleg og stíllinn breytist ljóði frá ljóðs. Fæst ljóðin ríma en Karitas segist vera hrifin af endurtekningum og vísunum. „Stundum vísa ég alveg grimmt í sjálfa mig skammarlaust. En ég finn bara þann stíl sem mér finnst henta innihaldsefninu hverju sinni. Ef ég hef mikið að segja þá eru línurnar langar og mörg erindi, en ef ég hef lítið að segja þá er ljóðið kannski bara þrjár línur eða hæka.“ Því mætti segja að stíll Karitasar sé kannski að vera með engan sér- stakan stíl. Sjálf tekur hún eftir að önnur ung ljóðskáld í dag fylgja ekki hefðbundnum bragarháttum. Karitas sá undantekningu á því þegar Jenný María Jóhannsdóttir las ljóð á ljóðakvöldi sem Karitas var sjálf að lesa á. Það var á Eiðis torgi þar sem Jana Björg Þorvaldsdóttir heldur reglu- lega ljóðakvöld. Jenný las ljóðin sín sem eru í dróttkvæðum hætti. „Það er stíllinn sem dróttkvæðin voru skrifuð í. Dróttkvæðaháttur- inn er mjög strangur og flókinn en hún gerði þetta mjög vel. Mér finnst æðislegt að hún hafi þorað þessu, sjálf myndi ég ekki treysta mér í það.“ Lengri útgáfu af viðtalinu er að finna á frettabladid.is Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook 4 litir rautt gult mosagrænt kremað 20% afsláttur af regnkápum Núna kr. 8.700.- Str. S-XXL 10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.