Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 37

Fréttablaðið - 27.06.2019, Síða 37
Eldra fólk taki þátt í sam- félaginu á jafnréttisgrund- velli, hvar sem það kýs. Þú ert jú komin á aldur“, sagði ungur maður við mig um daginn, þegar í tal barst til- tekið verkefni sem ég hef með höndum og hvort ég hygðist láta af því, sem hann taldi augljóslega tímabært. Ég hrökk við því sjálfs- mynd mín er vissulega ekki sú að ég ráði ekki við verkefnið og fannst að mín þátttaka ætti ekki að ráðast af aldri, heldur því hvort ég valdi við- fangsefninu. Af svipuðum toga var ótrúleg og raunar sprenghlægileg frásögn Óttars Guðmundssonar (72 ára) nýverið í Fréttablaðinu, þar sem ungur maður, sem var samferða honum í f lugvél, spurði Óttar: „Ertu enn að ferðast?“ Aldursmörkin 67 eða 70 ára virðast orðin að mælikvarða í sjálfu sér, óháð getu eða löngun viðkomandi. Listamenn eru hins vegar ekki settir undir þessa mælistiku og verk þeirra eða frammistaða metin óháð aldri, sem sýnir ágætlega hversu fáránleg hún er. Í atvinnulífinu er fólki sem náð hefur þessum aldri hins vegar lang oftast umsvifa- laust vísað á dyr, óháð starfsgetu þess eða -vilja. Hér er verið að sóa samfélagslegum verðmætum og jafnvel töluvert yngra fólk, 45-50 ára, kvartar undan svonefndum „kennitöluvanda“ við atvinnuum- sóknir, ekki síst konur. Þeim sé ekki einu sinni boðið í atvinnu- viðtal þrátt fyrir þekkingu og rey nslu á v iðkomandi sv iði. Sömu viðhorf eða aldursfordómar birtast í opinberri umræðu um þriðja orkupakkann. Þar hafa verið áberandi nokkrir eldri áhugamenn um stjórnmál, en þeim er ítrekað bent á að „tími þeirra sé liðinn“, skoðanir þeirra sagðar „rykfallnar“ og þeir beðnir um að skipta sér ekki af því sem kallað er „okkar framtíð“, svo aðeins sé vitnað í kurteisari ummælin. Reynsla og afleidd dómgreind er einskis metin, eitthvað sem ætti fremur að teljast mikilvægt í þjóðmálaumræðu. Háskóli Íslands er ánægjuleg undantekning þessa. Þar hefur með nýjum rektor verið mörkuð sú stefna, að heimilt er að semja við fólk sem komið er á eftirlaun um tiltekin verkefni, séu þau til staðar. Samið er til afmarkaðs tíma í senn, á fyrri launum, þótt ekki fylgi öll sömu starfskjör. Slíkir samningar verða að sjálfsögðu að þjóna hags- munum beggja aðila og viðkomandi starfsmaður að sætta sig við reglu- bundna endurskoðun. Opinberir aðilar og fyrirtæki ættu að fylgja þessu almenna fordæmi og ein- hverjir kunna að gera það. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr því, að sum störf ganga mjög nærri fólki þannig að sjálfsagt er að það geti farið á eftirlaun 67-70 ára. En lykil- atriði er að fólk hafi val, sé geta og áhugi til staðar. Það er eitt af einkennum okkar samtíma að hópar sem hafa mátt sæta neikvæðri umræðu eða for- dómum hafa risið upp og krafist þess að vera jafnréttháir öðrum, sem ekki bera sömu einkenni og vera metnir á grunni eigin verð- leika. Þar hafa verið áberandi t.d. fatlaðir, samkynhneigðir, hörunds- dökkir, tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson talaði nýverið um kynþáttaníð, fólk í yfirþyngd, sem kallar það fitusmánun, að ekki sé minnst á konur. Barátta eldri borgara fyrir mann- sæmandi eftirlaunum og trygginga- bótum er mikilvæg. En það er ekki síður mikilvægt og raunar mann- réttindi að á þá sé hlustað og borin fyrir þeim tilhlýðileg virðing. Eldra fólk taki þátt í samfélaginu á jafn- réttisgrundvelli, hvar sem það kýs. En einhvern veginn er eins og þeir sem eldri eru séu feimnir við að setja fram þá kröfu og sætti sig við jaðarsetninguna. Þessu þarf að breyta – það eru hagsmunir allra, líka þeirra sem yngri eru og eiga eftir að eldast. Aldurssmánun samtímans Margrét S. Björnsdóttir 71 árs gamall starfsmaður Háskóla Íslands Ef EES er gott – sem það er – þá er ESB enn þá betra Nýtt frumvarp um breyt-ingar á erfðafjárskatti hefur ýmislegt gott fram að færa. Frumvarpið, sem lagt er fram af þingflokki Viðreisnar, leggur til að horfið verði frá því að líta á dánarbú manns sem andlag erfðafjárskatts- ins. Þess í stað yrði horft til arfs hvers erfingja um sig. Á mannamáli þýðir það að sá sem erfir búið greið- ir skattinn en ekki dánarbúið, þ.e. ef um fleiri en einn erfingja er að ræða þá gildir skattafrádrátturinn fyrir hvern og einn þeirra. Frumvarpið hækkar einnig skattafrádráttinn úr 1,5 m.kr. í 6,5 m.kr. Því er um að ræða mikla skattalækkun fyrir fjöl- skyldur í landinu. Aftur á móti vilja þingmenn Við- reisnar þrepaskipta erfðafjárskatti enn frekar. Af fyrstu 15 m.kr. skal greiða 10% erfðafjárskatt, af næstu 15 m.kr. skal greiða 15% og af þeim hluta arfs sem er umfram 30 m.kr. skal greiða 20%. Slíkt er gert í ein- lægri tilraun til þess að greiða fyrir skattaafslátt annarra en einnig vegna þess að þeir telja „eðlilegt að þeir erfingjar sem mest fá greiði hlutfallslega mest í skatt“. Undanfarin ár hafa ýmsir stjórn- málaflokkar kallað eftir því að þeir sem hafi meira á milli handanna greiði meira. Slíkt hlýtur að þykja eðlilegt í nútímasamfélagi, en höf- undur veltir fyrir sér hvort því markmiði sé ekki þegar náð með hlutfallsskatti, enda er 10% skattur af 50 m.kr. tífalt meira greitt í skatt heldur en 10% af 5 m.kr. Af leiðu- væðing skatta hefur valdið því að nú er ekki nóg að greiða margfalt meira heldur þarf að greiða tvöfalt meira heldur en það, hlutfallslega. Fyrir- tæki með fjölda fólks í vinnu gæti því þurft að taka stakkaskiptum í þeim eina tilgangi að halda áfram rekstri við kynslóðaskipti, sem kæmi helst niður á starfsfólki og neytendum. Viðreisn hefur lagt margt fram sem jafnar leikinn og gerir fleirum kleift að ná árangri, á borð við jafn- launavottun og afnám stimpilgjalds fyrir allt atvinnulífið. Að tillögu höf- undar var bætt við stjórnmálaálykt- un milliþings Viðreisnar 2. mars sl.: „Viðreisn vill lækka skatta, einfalda þá og samræma.“ Frumvarp þing- flokksins er á skjön við ályktunina, hækkar og f lækir skatta á fjöl- skyldufyrirtæki, lítil samræming er í skattlagningunni og letur hún frumkvæði fyrirtækja. Viðreisn á að jafna tækifæri, ekki útkomu. Jöfnum tækifæri, ekki útkomu Kristófer Alex Guðmundsson forseti Upp­ reisnar, ung­ liðahreyfingar Viðreisnar Lengi virtist það vera í tízku, að tala illa um Evrópu og evru, þó að einmitt aðild okkar að EES og Schengen-samkomulaginu hefði tryggt okkur efnahagslegar framfarir og margvíslegt frelsi langt umfram það, sem áður hafði þekkzt eða ella hefði getað orðið. Með EES-samningnum komumst við með allar okkar framleiðslu- vörur og afurðir, frjálslega og að mestu leyti tollalaust, inn á stærsta markað heims; 30 ríki með nú 513 milljónir íbúa. Samtímis opnaðist okkur að mestu vegabréfalaust frelsi til heim- sókna, dvalar og búsetu í öllum þessum löndum, með fullum rétt- indum til starfa, atvinnu og eigin reksturs. Á sama hátt gátum við sótt erlenda starfskrafta frá ESB-lönd- unum til okkar, til að manna og styrkja okkar eigin atvinnuvegi, einkum ferðaþjónustu og bygg- ingariðnað. Sem betur fer hefur orðið mikil breyting á afstöðu f lestra til EES/ ESB og Evrópu síðustu misserin. Upplýst umræða hefur leitt til þess, að f leiri og f leiri skilja nú, hversu mikilvægur og dýrmætur EES- samningurinn er. Ef miðað er við afstöðu þing- manna til 3. orkupakkans, sem í umræðu og afstöðu er orðinn nokk- urs konar „persónugervingur“ EES- samningsins, þá virðast 52 af 63 þingmönnum vera hlynntir 3. orku- pakkanum – enda sjálfsagður hluti af EES-samningnum, eins og frjálsar f lugsamgöngur, frjálsir skipaflutn- ingar og önnur frjáls og gagnkvæm viðskipti. Meta má umfang EES-samnings- ins – með Schengen – sem 80-90% af fullri ESB-aðild. Það, sem upp á vantar fulla ESB-aðild, er einkum tvennt: 1. Samkomulag um fiskveiðar við Ísland og stjórn þeirra. 2. Endanlegt samkomulag um landbúnaðarmál. Malta er um margt í svipaðri stöðu og Ísland. Lítil eyþjóð háð fiskveiðum og ferðaþjónustu. Þegar landið gekk í ESB 2003, fékk það full yfirráð yfir sínum fiskimiðum og fulla stjórnun sinnar fiskveiði- lögsögu á grundvelli sögunnar, en Maltverjar höfðu sjálfir og einir farið með þessi yfirráð í ár og aldir. Það sama gildir um fiskveiðilög- sögu okkar og fiskimið, og virðist það borðleggjandi, að við myndum fá sömu góðu úrlausnina fyrir þessi mál og Malta. Þegar Svíar og Finnar gengu í ESB 1995, fengu þeir líka sérákvæði inn í samninginn fyrir landbúnaðinn, honum til verndar og styrktar, vegna þess, sem nefnt var „norræn lega“. Er ekki að efa, að við myndum fá sömu sérkjör fyrir íslenzkan landbúnað við fulla inngöngu. En, af hverju full ESB-aðild í stað 80-90% aðildar með EES og Scheng- en!? EES-samningurinn var alltaf hugsaður til bráðabirgða. Samn- ingurinn veitir því ekki aðgang að nefndum, ráðum og framkvæmda- stjórn ESB; m.ö.o. við undirgeng- umst það, sem átti að vera í bili, að taka upp tilskipanir, reglugerðir og lög ESB – sem reyndar eru nær allar af hinu góða – án þess að hafa nokkuð um þær að segja; án nokk- urrar umsagnar eða áhrifa, nánast án nokkurrar fyrirfram hugmyndar um, hvað koma skyldi. Þetta er auð- vitað ófært til langframa. EES-samningurinn veitir heldur ekki aðgang að öflugasta og stöðug- asta myntkerfi heims, evrunni, sem bæði tryggir lægstu vexti, sem völ er á, fyrir almenning og atvinnu- vegina, og stórfellt aukalegt öryggi í formi launa, tekna og eigna, jafnt sem kostnaðar, gjalda og skulda í einni og sömu mynt. Úrtölu- og afdalamenn fullyrða, að stóru þjóðirnar ráði öllu í ESB; þó við værum inni, myndum við engu ráða. Þetta er enn ein rangfærslan og ósannindaklisjan. Minnstu þjóðirnar hafa hlut- fallslega langmest að segja í ESB. Við fengjum 6 þingmenn á Evrópu- þingið. Það þýðir 57.000 Íslendinga á bak við hvern þingmann. Þjóð- verjar, með sína 82,4 milljónir íbúa, hafa 96 þingmenn; hjá þeim standa 858 þúsund landsmanna á bak við hvern þingmann. Danir, sem eru 5,8 milljónir, hafa 14 þingmenn; 414 þúsund Danir standa á bak við hvern þingmann þeirra á Evrópu- þinginu. Svona er það í öllu; þess er gætt, að líka þeir „minnstu“ hafi fullan aðgang að áhrifum og völdum. Hver aðildarþjóð, stór eða smá, fær þannig einn kommissar. Þjóðverjar og Frakkar fá líka bara einn. Oft veljast fulltrúar smærri að- ildar þjóða til forustu; Jean-Claude Juncker, frá Lúxemborg, næstfá- mennasta ríki ESB, hefur t.a.m. verið annar valdamesti maður sam- bandsins síðustu 5 ár. Margrether Vestager, frá Dan- mörku, kynni að taka við af honum. Skandinavar hafa alltaf haft mikið að segja í ESB. Hver aðildarþjóð hefur auk þess í raun neitunarvald, þar sem þjóð- þing allra – nú 28 – aðildarríkjanna verða að samþykkja alla meirihátt- ar samninga, sem ESB gerir, og alla meiriháttar löggjöf eða breytingar á fyrri löggjöf. Loks skal bent á, að ESB er nú með fríverzlunarsamninga við þrjú mik- ilvæg lönd – öf luga markaði með samtals 216 milljónir íbúa; Japan, Suður-Kóreu og Kanada – en þessir fríverzlunarsamningar eru ekki með í EES-samkomulaginu. Full ESB-aðild tryggir þannig í dag frjálsan og tollalausan aðgang að markaði með 729 milljónum manna með verulega eða mikla kaupgetu. Eftir hverju erum við að bíða!? Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupýslu­ maður og stjórnmála­ rýnir 2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.