Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 41
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ásgeir Pétursson
fv. sýslumaður og bæjarfógeti,
Kópavogsbraut 1a,
lést mánudaginn 24. júní sl.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 5. júlí kl. 13.00.
Guðrún Ásgeirsdóttir
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Sigríður Ásgeirsdóttir Þórður Kristinsson
Pétur Ásgeirsson Jóhanna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Magnea Erna Auðunsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi í Hafnarfirði
sunnudaginn 23. júní.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 2. júlí kl. 15.00.
Guðmundur Jónsson
Auðunn G. Guðmundsson Anna V. Þormar
Elínborg Guðmundsdóttir Páll Ólafsson
Elfa Guðmundsdóttir
Steinunn Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi faðir okkar, afi,
langafi og tengdafaðir,
Ingólfur Bárðarson
Sigtúni 19, Selfossi,
lést 25. júní. Útför mun fara fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Erla Ingólfsdóttir
Hulda Ingólfsdóttir Óskar Lúðvík Högnason
Bára Ingólfsdóttir Stefán Guðjónsson
Linda Ingólfsdóttir Garðar Már Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hafrannsóknastofnun (Hafró) hlaut nýlega Fjörusteininn, umhverfisverðlaun Faxaf lóa-
hafna. Eitt stærsta hlutverk hennar er að
tryggja sjálf bæra nýtingu auðlinda hafs
og vatna auk þess að sjá um umfangs-
miklar umhverfismælingar og vöktun
á lífríki.
Hafró á og rekur tvö sérútbúin rann-
sóknarskip, Árna Friðriksson RE 200
og Bjarna Sæmundsson RE 30, heima-
höfn þeirra hefur alla tíð verið Gamla
höfnin í Reykjavík. Í rökstuðningi Faxa-
f lóahafna fyrir verðlaununum segir
meðal annars: „… umgengni stofnunar-
innar við hafnarsvæðið hefur verið til
fyrirmyndar ásamt því að skip hennar
hafa verið landtengd með rafmagni og
hitaveitu svo árum skiptir. Flokkun
sorps frá skipunum hefur einnig verið
aukin til muna við innleiðingu Grænna
skrefa sem snúast um að efla vistvænan
rekstur.“ – gun
Hafrannsóknastofnun hlaut Fjörusteininn
Sólmundur
Már Jónsson,
mannauðs- og
rekstrarstjóri
Hafró, og
Ásmundur
Bergmann
Sveinsson,
skipstjóri á
Bjarna Sæ-
mundssyni,
með verð-
launagripinn.
Það er stórkostlegt tækifæri að fá að spila á Glaston-bur y-tónlistarhátíðinni. Við erum alsælar með það,“ segir Harpa Fönn Sigur-jónsdóttir, ein þeirra fjög-
urra kvenna sem skipa hljómsveitina
Grúska Babúska nú um stundir. Sú sveit
er hin eina alíslenska sem kemur fram á
Glaston bury-hátíðinni í ár. „Þetta er stór
hátíð, 250 þúsund manns eru þarna yfir
eina helgi, bara eins og allir Reykvík-
ingar væru samankomnir,“ lýsir Harpa
Fönn. „Ég held að þar séu 40 til 50 svið og
hvert svið er með sína eigin litlu hátíð,
svo þetta er mjög sérstakt. Við komum
fram á sunnudaginn á Croissant Neuf-
sviðinu, þar hafa listamenn á borð við
Ed Sheeran komið fram.“
Með Hörpu Fönn eru Íris Hrund
Þórarinsdóttir, Dísa Hreiðarsdóttir og
Erla Stefánsdóttir í Grúsku Babúsku
sem stofnuð var 2012 og hefur verið
fjölmennari. Hljóðheimurinn saman-
stendur helst af röddum, spiladós, bassa,
melódíku, rafmagnsfiðlu, klukkuspili
og slagverki. Þó að þær séu að spila
á Glastonbury-hátíðinni í fyrsta skipti
þá hafa þær mikið verið í samnefndum
bæ. Harpa Fönn útskýrir hverju það
sætir. „Við fórum í tónleikaferð um Bret-
land fyrir þremur árum og vorum bók-
aðar á stað sem heitir The King Arthur
í Glastonbury. Vorum að spila í Bristol
kvöldið áður og hálf ryðgaðar þegar við
stigum út úr rútunni en fundum strax
hvað Glastonbury er magnaður staður.
Stoppuðum bara einn sólarhring en
tókum skyndiákvörðun um að fara
þangað aftur um haustið í tónsmíðaferð
og semja lög á nýja plötu. Stóðum við
það og vorum í tíu daga, spiluðum aftur
á The King Arthur, kynntumst mörgum
heimamönnum og sumir spiluðu inn á
plötuna okkar því þarna er mikil tónlist
og gróska í jaðarlistum.“
Harpa Fönn segir skráða íbúa í
miðaldabænum Glastonbur y um
7.000. „Manni líður eins og á Akur-
eyri, nema hvað þarna er eins konar
mekka seiðmanna og gyðja. Við aðal-
götuna er ótrúlegt framboð varnings
og þjónustu, vanti mann norna-
kúst eða verndar steina þá finnur maður
hvort tveggja og vilji maður fara í nála-
stungu eða jóga, þá er nóg um slíkt.“ Hún
segir plötu sveitarinnar, Tor, sem kom
út á síðasta ári, nefnda eftir Glaston-
bury Tor, merku mannvirki á fagurri
hæð ofan við bæinn. „Tor er nokkurs
konar hlið og það eru alls konar and-
legar sögur og mýtur um þann stað, því
kringum hann er sterk orka,“ lýsir hún.
Grúska Babúska er einmitt þekkt
fyrir tónlist sem færir hlustandann inn í
draumkenndan heim, ýmist gáskafullan
eða dimman, og Harpa Fönn segir bæinn
hafa verið fyrir þær dömurnar eins og
að koma heim. „Svo gerist það í einni
tónleikaferð þegar við vorum að spila á
stað í Bristol að hljóðmaðurinn er svona
hrifinn af okkur og tónlistinni okkar og
segir: „Hei! mamma mín er með svið á
hátíðinni í Glastonbury,“ og í kjölfarið
fengum við boð um að spila þar. Við
náttúrlega þáðum það, enda verður það
ótrúleg lífsreynsla.“
gun@frettabladid.is
Sterk orka í Glastonbury
Íslenska kvennahljómsveitin Grúska Babúska kemur fram á bresku tónlistarhátíðinni í
Glastonbury í fyrsta skipti nú um helgina. Hún er þó hagvön á svæðinu og hrifin af því.
Íris Hrund, Dísa, Erla og Harpa Fönn í Grúsku Babúsku eru á leið til Glastonbury í dag! FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1835 Vísur Íslendinga – Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur –
eftir Jónas Hallgrímsson eru fyrst sungnar opinberlega. Það gerist í
Hjartakershúsum í Danmörku.
1855 Danska gufuskipið Thor kemur til Reykjavíkur, það er fyrsta
gufuskipið sem kemur til Íslands.
1903 Fyrsta kvikmyndasýning á Íslandi fer fram í Góðtemplara-
húsinu á Akureyri.
1921 Rafstöðin við Elliðaár er gangsett.
1925 Lög um mannanöfn ganga í gildi á Íslandi og eftir það er
bannað að taka sér ættarnafn.
1930 Skógræktarfélag
Íslands er stofnað á
Þingvöllum.
1951 Rafmagnsveita
Reykjavíkur hefur skóg-
rækt í Elliðaárhólm-
anum. 3.000 plöntur
eru settar niður fyrsta
daginn.
1951 Krabbameins-
félag Íslands er
stofnað.
1985 Þjóðvegurinn
Route 66 er felldur út
úr þjóðvegakerfinu í
Bandaríkjunum.
1990 Bob Dylan
heldur tónleika í
Laugardalshöll á
vegum Listahátíðar.
2006 Samkynhneigðir á Íslandi fá réttarstöðu á við gagnkyn-
hneigða varðandi skráningu í sambúð.
Merkisatburðir
2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT