Fréttablaðið - 27.06.2019, Qupperneq 47
ÞETTA ER SÝNING SEM
Á ERINDI VIÐ OKKUR
ÖLL. HÚN FJALLAR UM NÁN-
ASTA UMHVERFI OKKAR OG
HVAÐ VIÐ ERUM AÐ GERA VIÐ
ÞAÐ Á 21. ÖLDINNI.Tímahvörf er sýning átta samtímaljósmyndara í Hafnarborg. „Þessir ljósmyndarar hafa á undanförnum þrettán árum komið hingað
í bæinn til að taka myndir,“ segir
Ágústa Kristófersdóttir, forstöðu-
maður Hafnarborgar. „Verkin
endurspegla ákveðinn tíma, upp-
haf 21. aldarinnar í gegnum linsu
þessara ljósmyndara og við sjáum
bæinn með ólíkum augum. Þetta
eru bæði íslenskir og erlendir ljós-
myndarar, sumir þeirra Hafnfirð-
ingar, ýmist aðfluttir eða innfæddir,
þannig að sýn þeirra er fjölbreytileg
og mjög skemmtileg.
Marino Thorlacius hefur farið út
á suðurjaðar byggðarinnar þar sem
á undanförnum árum hefur risið
stórt iðnaðarsvæði. Hann sýnir
okkur hvernig byggðin og nátt-
úran takast á og renna saman og
hvernig fegurðin getur jafnvel búið
í ljótleikanum. Algjörlega á hinum
endanum er Svala Ragnars sem er
Hafnfirðingur og lærði heimildar-
ljósmyndum í London. Hún vann að
bók sem heitir Krossgötur og fjallar
um álagabletti og álfaheimili á
Íslandi en Hafnarfjörður er einmitt
álfabær og stundum er sagt að þar
búi 30.000 manns og 10.000 álfar.
Svala tók myndir af völdum stöðum
hér í Hafnarfirði þar sem er sambýli
þess hulda og okkar mannanna er
sýnilegt. Í þessum myndum sést
mjög vel tvöfalt skipulag, annars
vegar skipulagið fyrir mennina og
svo fyrir það sem ekki allir sjá.“
Áhrifarík sería
Á sýningunni eru verk úr seríunni
Ásfjall eftir Pétur Thomsen. „Þetta
er sería sem hann vann í tengslum
við Þjóðminjasafnið frá 2007-2011.
Upphaf lega markmiðið var að
mynda hvernig maðurinn væri að
brjóta náttúruna undir sig á Ásfjalli
til að byggja þar íbúðabyggð. Í
hruninu 2008 fór byggingaiðnað-
urinn á hliðina og eftir stóðu hálf-
byggð draugahverfi. Pétur mynd-
aði þetta allt saman. Þetta er mjög
áhrifarík sería og við erum með
hluta af henni hér. Hún minnir á að
stundum getur það sem við höldum
að verði stórkostlegt orðið eitthvað
allt annað.“
Innra ferðalag
Ljósmyndararnir Daniel Reuter og
Pamela Perez eru að sögn Ágústu
dæmi um ljósmyndara sem eru á
eins konar innra ferðalag. „Pamela
er Bandaríkjamaður sem bjó í tíu
ár í Hafnarfirði, lærði ljósmyndun í
Ljósmyndaskólanum og vann loka-
verkefnið sitt um heimabæinn sinn
og sína sýn á hann. Myndir hennar
eru mjög persónulegar og ljóðrænar
og það er ekki nema fyrir innvígða
Hafnfirðinga að þekkja senur frá
Hellisgerði eða frá Krýsuvík. Daniel
var að leita að mótífum í nágrenni
Reykjavíkur og það var tilviljun sem
réð því að hann endaði hér í Hafnar-
firði.
Við erum með verk eftir Stuart
Richardson sem er úr seríunni
Natriumsól þar sem hann sýnir
okkur gervibirtu ljósastauranna.
Hann vann hluta seríunnar sérstak-
lega fyrir þessa sýningu. Þetta eru
myndskeið af völdum stöðum þar
sem ljósastaurarnir skína að því er
virðist fyrir engan eða fáa.“
Sýningin stendur í allt sumar,
fram í lok ágúst. „Þetta er sýning
sem á erindi við okkur öll. Hún
fjallar um nánasta umhverfi okkar
og hvað við erum að gera við það
á 21. öldinni. Ljósmyndarar varpa
fram mikilvægum spurningum sem
við getum kannski ekki svarað en er
áríðandi að við veltum fyrir okkur,“
segir Ágústa.
Hafnarfjörður með
ólíkum augum
Átta samtímaljósmyndarar sýna myndir
sínar í Hafnarborg. Meðal þess sem sjá má
eru álfaheimili og gervibirta ljósastaura.
„Sýn þeirra er fjölbreytileg og mjög skemmtileg,“ segir Ágústa Kristófers-
dóttir, forstöðumaður Hafnarborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Pétur Thomsen, Ásfjall/Mt. Ásfjall (2008-2011).
Svala Ragnars, Krossgötur/Crossroads (2015-2018).
Listamennirnir
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Daniel Reuter,
Marino Thorlacius, Pamela
Perez, Pétur Thomsen, Spessi,
Staś Zawada, Stuart Richardson
og Svala Ragnars. Sýningar-
stjóri er Kirsten Simonsen.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
27. JÚNÍ 2019
Fræðslugöngur
Hvað? Kvöldganga um Aðalstrætið
Hvenær? 20.00
Hvar? Grófarhús í Kvosinni
Aðalstræti er ein elsta og merkasta
gata Reykjavíkur með djúpar
sögulegar rætur allt frá landnáms-
tíð. Guðbrandur Benediktsson
Aðalstræti 2 til 12. Fyrir enda götunnar er bryggjuhúsið, Vesturgata 2, með
borgarhliðinu. Ljósmyndari: Guðmundur O. Eiríksson
sagnfræðingur leiðir gönguna
og fræðir göngufólk. Þátttaka er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Leiðsögnin fer fram á íslensku.
Hvað: Söguganga um Strandstíg í
Hafnarfirði
Hvenær: 20.00
Hvar: Drafnarslippur – á móts við
Strandgötu 75
Lúðvík Geirsson hafnarstjóri leiðir
göngu um ljósmyndasýningu
Byggðasafns Hafnarfjarðar á
Strandstígnum. Gangan tekur um
klukkustund, Þátttaka er ókeypis.
Myndlist
Hvað? Míní-míní múltíversa –
sýningaropnun
Hvenær? 20.00
Hvar? Listasafn Reykjavíkur
Ragnheiður Káradóttir kannar
mörkin milli hins manngerða og
náttúrulega.
Tónlist
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar
Hvenær? 12.00-12.30
Hvar? Hallgrímskirkja
Tuuli Rähni, organisti í Ísafjarðar-
kirkju, leikur verk eftir Léon Boëll-
mann, Nicolas De Grigny, Peeter
Süda og sig sjálfa. Miðaverð er
2.500 krónur.
Hvað? Freyjujazz
Hvenær? 17.15-18.00
Hvar? Listasafn Íslands, Fríkirkju-
vegi 7
Helga Laufey Finnbogadóttir
píanóleikari kemur fram ásamt
tríói sínu. Á efnisskránni verða
djassópusar eftir Cedar Walton,
Chick Corea og Oscar Peterson í
bland við frumsamið efni og þjóð-
lög í nýjum búningi. Með henni
leika Guðjón Steinar Þorláksson
og Erik Qvick. Miðaverð: 2.000
krónur.
2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð