Fréttablaðið - 27.06.2019, Side 53
Núna á laugardaginn verður sannkölluð f lóamarkaðs-stemning á efstu hæð bíla-
stæðahússins við Hverfisgötu 20
þegar fjöldi borgarbúa mætir og
selur gamlar eigur; föt, húsgögn og
aðra hluti sem það vill gefa fram-
haldslíf. Um er að ræða opnunardag
loftslagsmarkaðsins BÁS.
Það verður boðið upp á ýmsa
skemmtilega dagskrá. Unnsteinn
Manuel þeytir skífum fyrir salsa-
unnendur en hópur fólks frá Salsa
Ísland mætir í dansskónum. Fata-
og búningahönnuðurinn Tanja
Levý verður einnig á staðnum og
kennir gestum að þrykkja á föt og
lífga þannig upp á gamlar spjarir
í stað þess að henda þeim. Til-
gangurinn með BÁS-verkefninu
er að vekja athygli á þeim áhrifum
sem óhóf legar neysluvenjur hafa
á umhverfið og búa til lifandi
og skemmtilegan vettvang fyrir
umræður um loftslagsmál. Lífgað er
upp á gráa steinsteypuna með því
að breyta bílastæðunum í markaðs-
bása. Borgarbúar eru hvattir til að
minnka sóun, endurnýta í sínu
nærumhverfi og kaupa af innlend-
um hönnuðum og framleiðendum
með kolefnisfótsporið í huga.
Ágústa Sveinsdóttir, Ólafur Daði
Eggertsson, Hulda Ragnhildur
Hjálmarsdóttir og Hildur Helga
Pétursdóttir standa að verkefninu.
Áhrif loftslagsáhrifa eru í brenni-
depli hjá þjóðinni þessa dagana.
Hugmyndin að BÁS kom frá hug-
leiðingum hópsins um hvað hver
og ein manneskja getur gert til að
sporna við þessum stóra vanda
á jörðinni. Markaðurinn verður
opinn annan hvern laugardag í
sumar fram að Menningarnótt en
þá verða haldnir þar stórtónleikar.
Þeir sem vilja taka þátt í BÁS,
hvort sem er til að selja eða til þess
að leggja fram hugmynd að dag-
skrárlið eða viðburði hafi endilega
samband við BÁS á Facebook.
steingerdur@frettabladid.is
BÁS loftslagsmarkaður og þakbar verður opnaður um helgina
Lífgað er upp á gráa steinsteypuna með því að breyta bílastæðunum í
markaðsbása þar sem seldir eru notaðir hlutir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
TILGANGURINN MEÐ BÁS-
VERKEFNINU ER AÐ VEKJA
ATHYGLI Á ÞEIM ÁHRIFUM SEM
ÓHÓFLEGAR NEYSLUVENJUR
HAFA Á UMHVERFIÐ.
Síðasta árið hefur verið mikil gróska í uppistandi á ensku hérlendis. Nú er starfandi í Lækjargötunni klúbbur sem sérhæf ir sig í uppistandi á ensku,
The Secret Cellar. Þar er boðið upp
á uppistand öll kvöld vikunnar.
Eigandi klúbbsins er Bjarni „töfra-
maður“ Baldvinsson.
Nýverið var uppstandarinn York
Underwood fenginn til liðs við
klúbbinn til að halda utan um uppi-
standskvöldin og Kierstyn Evans
frá New York ráðin sem markaðs-
stjóri.
York hefur starfað sem uppi-
standari að atvinnu í áratug og
komið fram um allan heim, meðal
annars fyrir hermenn NATO í
Kósóvó, Þýskalandi og Bretlandi.
Við náðum tali af York til að for-
vitnast um The Secret Cellar og
hvernig það er að reka uppistands-
klúbb á Íslandi.
Hvernig eiginlega kom það til að
ákveðið var að byrja prófa uppi-
stand á ensku hérna á Íslandi?
„Ætli það hafi ekki mikið að
gera með túristana. Það var
annaðhvort á ensku eða kín-
versku og ég er er ekkert sér-
staklega góður í kínversku.
En svo virðast margir af
íslensku uppistöndurunum
vilja frekar koma fram á ensku.
Bandaríkjamenn koma eftir
sýningu og hrósa mér og þá ekki
í kaldhæðni, Þjóðverjarnir forðast
augnsamband og yfirgefa staðinn
í hljóði. Íslendingarnir, oft þá eftir
nokkra bjóra, banka í öxlina á mér
og segja: „Ég gæti sko alveg verið
með uppstand.“ Það eru nokkrir
innflytjendur hérna með uppistand
á ensku en langflestir af þeim sem
koma fram hjá okkur eru Íslend-
ingar. Þau ólust upp við að horfa
á uppistand á ensku og vilja núna
gera það sama,“ segir York.
York segir Ara Eldjárn hafa rutt
veginn fyrir aðra Íslendinga hvað
uppistand varðar. Hann varð stór
hérna og kemur núna fram úti um
allan heim með góðum árangri.
„Bjarni, eigandinn, hefur verið
að koma fram síðustu tuttugu árin.
Hann tók samt mikla áhættu þegar
hann ákvað að opna klúbb sem
býður fyrst og fremst upp á uppi-
stand. Nú virðist þetta allt vera að
ganga upp. Ég kom fram í klúbbnum
reglulega þegar hann hafði sam-
band við mig og bar undir mig þá
hugmynd að ég tæki að mér að
halda utan um uppistandskvöldin.“
Á hverju kvöldi er sýning. York
segir að vel hafi gengið síðustu
Uppistand á ensku öll kvöld vikunnar
York Underwood heldur utan um uppistand á ensku sem boðið er upp á öll kvöld vikunnar á The Secret Cellar.
Uppistandarinn heimsfrægi Bill Burr kom þrisvar fram í klúbbnum til þess að prufukeyra nýtt efni.
mánuði og fullt út úr dyrum nánast
öll kvöld.
„Það er eiginlega stressandi.
Manni líður næstum eins og það
sé að ganga of vel. En við þurfum
að halda þessu fersku og erum með
ólík þemu hvert kvöld vikunnar.
Eins og á föstudögum erum við með
uppistand fyrir fólk að kíkja á eftir
vinnu. Gísli Jóhann sér um það.
Það er aðeins meira fullorðins
og klúrt. Samt alltaf jafn vin-
sælt. Íslendingar eru mjög
kaldhæðnir og með algjöran
gálgahúmor.“
York segist þó sjálfur með-
vitaður um að fara ekki algjör-
lega yfir strikið og sjokkera
áhorfendur um of.
„Jú, auðvitað hugsa ég oft um það
og held að besta grínið komi oftast
til manns þegar maður er meðvit-
aður um mörkin. Það nennir enginn
að hlusta á einhver hálfvita spúandi
einhverju ógeðslegu gríni sem er
ekki einu sinni fyndið. En stundum
finnst mér að megi brjóta reglurnar.
Það er f lókið fyrir grínista
að ná að fara yfir strikið
en samt halda áhorfend-
unum sáttum. Þegar allt
kemur til alls erum
við skemmtikraftar,
okkar tilgangur er að
ná að gleðja og fá áhorf-
endur til að hlæja. Fá
fólk til að flýja stað, stund og heims-
ins böl,“ segir hann.
Á miðvikudögum er öllum vel-
komið að stíga á svið og reyna fyrir
sér í uppistandi.
„Þar er kjörið tækifæri fyrir fólk
sem er að prufa sig áfram. Þar fær
það tækifæri til að stíga á svið, þróa
stílinn sinn og auka á sjálfsöryggið
upp á sviðinu. Það hafa margir
frægir uppistandarar komið og
notað tækifærið til að prufa nýtt
efni. Þeirra á meðal Hugleikur Dags-
son og Snjólaug Lúðvíksdóttir. Síðar
ætlum við að bjóða upp á námskeið
fyrir fólk til að hjálpa því að þróa
uppistandsstílinn sinn.“
Uppistandarinn heimsfrægi Bill
Burr kom fram á klúbbnum í þrjú
skipti um daginn.
„Það bara jók metnaðinn og við
áttuðum okkur á að við værum
komin í alvöruna. Við fáum því til
okkar fullt af þekktum uppi-
stöndu r u m hvaða næva
úr heiminum meðan
Reykjavík Fringe er í
gangi. Svo langar okkur
að fá heimsþek kta
grínista hingað og sjá
hvort þeir geti hjálpað
óreyndari uppistönd-
urum með hver næstu
skref þurfi að vera til
að hjálpa ferlinum.“
York hefur eitt ráð
að lokum til þeirra sem
langar að mæta á uppi-
stand í klúbbnum
„Ekki drekka of mikið
fyrir sýninguna. Ég verð upp
með mér þegar fólk pissar á sig
af hlátri yfir bröndurunum mínum
en það er ekki jafn skemmtilegt
fyrir skúringafólkið og aðra starfs-
menn,“ segir York að lokum.
steingerdur@frettabladid.is
ÉG VERÐ UPP MEÐ
MÉR ÞEGAR FÓLK
PISSAR Á SIG AF HLÁTRI YFIR
BRÖNDURNUM MÍNUM EN ÞAÐ
ER EKKI JAFN SKEMMTILEGT
FYRIR SKÚRINGAFÓLKIÐ OG
AÐRA STARFSMENN.
Bjarni,
Kierstyn og
York fyrir utan
klúbbinn sem er til
húsa í Lækjargötu 6.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
2 7 . J Ú N Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð