Mosfellingur - 04.07.2019, Page 26

Mosfellingur - 04.07.2019, Page 26
Landsliðskona til liðs við Aftureldingu Króatíska landsliðskonan Ana María Gugic er gengin til liðs við Aftureldingu. Ana María er örvhent skytta sem spilaði síðasta tímabil með Octeville í Frakklandi og þar á undan með Gjerpen í Noregi. Handknatt- leiksdeild Aftureldingar er gríðarlega ánægð með komu Önu og býður hana hjartanlega velkomna. Ana María er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við UMFA, því fyrir nokkru skrifaði litháíska landsliðskonan Roberta Ivanauskaide undir tveggja ára samning við félagið. Meistara- flokkur Aftureldingar leikur í Olís- deildinni á næstu leiktíð. Álafosshlaupið fór fram í krefjandi braut Álafosshlaupið fór fram í frábæru veðri þann 12. júní. Hlaupnir eru 10 km í krefjandi braut um skógarstíga, reiðvegi, malarvegi og í umtals- verðri hækkun. 67 þátttakendur kláruðu hlaupið, komu brosandi í mark og fengu sérhannaðan verð- launapening. Fyrsta Álafosshlaupið var hlaupið árið 1921 og styttist því í aldarafmæli hlaupsins þótt leiðin hafi breyst mikið frá fyrstu hlaup- unum. Birna Varðardóttir úr Fjölni sigraði í kvennaflokki og Þórólfur Ingi Þórsson úr ÍR kom fyrstur í mark af körlunum. - Íþróttir26 Orkumótið í Vestamannaeyjum fór fram á dögunum. Á myndinni má sjá lið 1 frá Aftureldingu sem hafnaði í 5. sæti af 112 liðum á mótinu. Strákarnir eru á eldra ári í 6. flokki og stóðu sig frábær- lega og unnu m.a. Orkumeistarana 2019 í FH í riðlakeppninni. Sigursælir á Orkumóti Landsbankamótið á Sauðárkróki fór fram helgina 22.−23. júní. Mótið er fyrir knattspyrnustelpur í 6. flokki. Á myndinni má sjá fulltrúa úr Aftureldingu sem gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið. Þjálfarar eru þau Þorgeir Leó, Kristín Gyða og Ásdís Arna. Sóttu bikar á Krókinn Róbert Orri Þorkelsson hefur skrifað undir nýjan samning við Aft- ureldingu sem gildir út tímabilið 2020. Hinn 17 ára gamli Róbert Orri hefur alist upp allan sinn fótboltaferil hjá Aftureldingu og verið fastamaður á miðjunni hjá meistaraflokki undanfarin tvö keppnis- tímabil. Í fyrra hjálpaði hann Aftureldingu að vinna 2. deildina og í ár hefur hann leikið vel með liðinu í Inkasso-deildinni. Róbert er úr öflugum 2002 árgangi hjá Aftureldingu sem varð Íslandsmeistari í 3. flokki í fyrra en hann átti að auki fast sæti í byrjunarliði U17 ára landsliðs Íslands sem fór í lokakeppni EM í vor. Félög í Pepsi Max-deildinni hafa sýnt Róberti áhuga en hann ákvað að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Aftureldingu. „Það er gríðarlegt fagnaðarefni að Róbert hafi framlengt samning sinn við Aftureldingu. Það er gleðiefni að ungir heimamenn hafi trú á uppbyggingunni sem er í gangi í Mosfellsbæ og vilji taka þátt í henni með okkur. Róbert er efnilegur leikmaður sem hefur verið gaman að fylgjast með í meistaraflokki undanfarin tvö ár og von- andi heldur hann áfram að bæta sig sem leikmaður hér í Mosfells- bæ,” sagði Geir Rúnar Birgisson, formaður meistaraflokksráðs. Afturelding fyrsta liðið til að vinna Þrótt Afturelding gerði sér lítið fyrir og vann topplið Þróttar á dögunum 1-0. Afturelding situr í 7. sæti Inkasso- deildarinnar og mætir Tindastól á föstudaginn. Leikið er á gervigrasvellinum að Varmá og hefst leikurinn kl. 18. að loknum sigurleik gegn toppliðinu Róbert Orri skrifar undir 17 ára úr öflugum árgangi Aftureldingar efnilegur leikmaður úr mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.