Mosfellingur - 04.07.2019, Side 30

Mosfellingur - 04.07.2019, Side 30
íþróttaþorpið Ég hitti Yuri Marcialis í Cagliari á Sardiníu í síðasta mánuði. Hann var í forsvari fyrir nokkrum árum fyrir spennandi verkefni í borginni. Það kallast „Íþróttaþorpið“ og er hluti af mikilli heilsueflingu og íþróttaeflingu sem átt hefur sér stað í borginni síðustu ár. Það snýst um byggja upp svæði þar sem almenn- ingur og atvinnumenn geta komið og æft sína íþrótt, nánasta sama hver hún er. Yuri labbaði með mér í gegnum svæðið og sagði mér frá verkefninu, hver staðan væri í dag, hvað væri búið að gera og hvað væri fram undan. Það athyglisverðasta við verkefnið „Íþróttaþorpið“ að mínu mati voru ekki mannvirkin sjálf eða aðstaðan, heldur heildarmyndin. Þorpið á nefnilega að standa undir nafni. Á milli mannvirkjana er verið að hanna og byggja torg, kaffihús, matsölustaði og félagsaðstöðu. Aðstöðu fyrir alla þá sem koma í þorpið til þess að hreyfa sig. Aðstöðu þar sem fólk getur spjallað við aðra, fengið sér hollt og gott að borða, slakað á, prófað aðrar íþróttagreinar eða hreyfingu. Í stað þess að koma bara á sína æfingu og drífa sig heim. Ég hugsaði allan tímann á meðan við röltum um íþróttaþorpið í Cagliari hvað það væri geggjað að koma upp svona íþróttaþorpi á Varmársvæðinu okkar. Við höfum plássið, við höfum íþróttaaðstöðuna, en það sem okkur vantar upp á er að tengja þetta saman á þann hátt að fólk staldri við, ræði málin, tengist betur. Hinn heilsueflandi Mosfellsbær gæti orðið fyrsta bæjarfélagið á Íslandi sem byggði íþrótta- og heilsuþorp. Þetta myndi hvetja enn fleiri íbúa bæjarins til þess að hreyfa sig og borða hollan og góðan mat – sem að sjálfsögðu yrði boðið upp á í þorpinu okkar. Síminn er opinn, ég er til í að segja öllum sem vilja hlusta betur frá því hvað er að gerast í Cagliari. Lítilli borg með heilsueflandi drauma. Heilsumolar Gaua - Heilsa og rokk30 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is www.fastmos.is Sími: 586 8080 Þverholti 2 Kastgolf er skemmtilegt fjölskylduspil þar sem allir geta spilað með - ungir sem aldnir. LeiKregLur eru einfaLdar • Hver leikmaður hefur 3 kúlubönd í sama lit og reynir að kasta hverju kúlubandi þannig að þau festist á grindinni. • Fjarlægð frá leikgrindinni er ákveðin, getur verið frá t.d. 3 metrum. • Hver rimill er merktur með tölunum 1, 2 og 3, og fær leikmaður stig samkvæmt því, en tvöföld stig, eða 12 stig ef leikmanni tekst að kasta einu kúlubandi á hvern rimil. • Leikmenn skiptast á að kasta öllum 3 kúluböndnum og stig gefin. Hver leikmaður sækir sínar kúlur áður en næsti leikmaður kastar. • Sá sem fyrst nær 21 stigi vinnur leikinn. Fari stigin yfir 21 koma refsistig og leikmaður byrjar aftur á 13 stigum þar til hann nær nákvæmlega 21 stigi. • Ef leikmenn eru margir er gott að skrá stigagjöfina. Kastgolf skemmtilegt fjölskylduspil spilagrindin er smíðuð úr fúa- varinni furu og einfalt er að leggja hana saman. kúlurnar eru gerðar úr endurnýttum golfkúlum og fylgja 3 sett af kúluböndum í 4 mismunandi litum fyrir 4 leikmenn. spilinu fylgir plastkassi til geymslu á kúlunum og spilareglur. Kynningarverð 23.000 kr. Pantanir í síma 855-4000 tilvalið í garðinn Snemma á tíunda áratug síðustu aldar stofnuðu fjórir ungir piltar hljómsveit í Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar. Það er svo sem ekki í frásögur færandi. Þetta voru þeir Hallgrímur Jón Hallgríms- son (trommur), Eyþór Skúli Jóhannesson (gítar), Arnar Ingi Hreiðarsson (bassi) og Jón Þór Birgisson (gítar, söngur). Jón Þór yfirgaf hljómsveitina 1994 til að stofna aðra hljómsveit. Kristófer Jensson tók við míkrafóninum og síðar var kallað- ur til sögunnar Egill Hübner á gítar. Fékk hljómsveitin að lokum nafnið Carpet. Upptökur að mestu glataðar Hljómsveitin spilaði rokktónlist af miklum móð og var um tíma hálfgerð hús- hljómsveit í Rósenbergkjallara Sigurjóns Skæringssonar. Ásamt reglulegu tónleikahaldi um víðan völl var hljómsveitin dugleg við lagasmíð- ar og tók upp nokkur lög fyrir fyrirhugaða plötuútgáfu, í hljóðverinu Núlist í Borgar- túni undir handleiðslu fyrrum söngvarans Jóns Þórs og Kjartans Sveinssonar. Svo fór þó að pródúsentarnir urðu of uppteknir af tónleikahaldi um víða veröld að upptökur döguðu uppi og eru nú að mestu glataðar. Tónleikar sem fæddu af sér Airwves Árið 1998 urðu kaflaskil hjá hljómsveit- inni þegar henni bauðst að koma fram á tímamótatónleikum í íslenskri tónlistar- sögu. Þetta voru tónleikar sem Guðmundur Sesar heitinn Magnússon hélt á Akureyri og hafði honum tekist að fá til landsins útsendara erlendra útgáfurisa svo nokkuð sé til tekið. Tónleikahaldið og allt sem því tengdist var mikil upplifun fyrir unga og óharðnaða tónlistarmenn. Þarna mynduðust tengsl sem á endanum fæddu af sér Iceland Air- waves hátíðina. Hljómsveitin lognaðist út af Ekki hlaut Carpet heimsfrægð að laun- um og lognaðist svo út af ekki mjög löngu síðar. Þrátt fyrir dauða Carpet hafa með- limir sveitarinnar þó ekki sagt skilið við íslenska tónlistarsögu. Kristófer Jensson varð söngvari Lights On the Highway, Hallgrímur trommaði með Tenderfoot og núna Sólstöfum, Arnar spilaði á bassa í um 10 ár með Hljómsveitinni Ég. Egill hefur að mestu leyti leikið með ballhljómsveitum en gaf nýverið út sitt fyrsta sólóefni undir nafninu Sporfari. Eyþór er eini meðlimur Carpet sem lítið hefur fengist við tónlist undanfarin ár. Boðin þátttaka 20 árum síðar Það var því óvænt ánægja þegar hljóm- sveitinni var boðið að taka þátt á Airwaves 2018 í tilefni þess að 20 ár voru liðin síðan tónleikarnir frægu á Akureyri fóru fram. Æfingar og tónleikar gengu vonum framar og var ákveðið að loka þessari löngu sögu með því að taka upp lag frá árdögum hljómsveitarinnar. Lagið heitir Ocean og er eftir Eyþór Skúla Jóhannesson. Það varð fyrst til í bílskúr í Mosfellsbænum, sennilega ´92 eða ´93. Það hefur fylgt hljómsveitinni í gegnum tíðina. Mosfellska rokkhljómsveitin Carpet • Gefa loks út lag eftir 20 ár frá fyrstu tónleikum Carpet í endurnýjun lífdaga carpet á tónleikunum á akureyri 1998 lagið ocean má nú finna á youtube

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.