Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 1
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Eyjafréttir Hvatning til að gera enn betur eyjamenn í torfæru í bandaríkjunum Þrír svöruðu kallinu >> 2 >> 12 >> 14 X - 2016 Vestmannaeyjum 26. október 2016 :: 43. árg. :: 43. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Andri Hugo og Jón Helgi Gíslason á kótilettukvöldi. Alþingiskosningar verða haldnar á laugardaginn og verður þetta í 22. skiptið sem þær eru haldnar frá Lýðveldisstofnun 1944. Að þessu sinni eru framboðin tólf talsins og munu öll þeirra bjóða fram í Suðurkjördæmi að undanskildum Húmanistaflokknum sem býður eingöngu fram í Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Í Vestmannaeyjum eru 3166 manns á kjörskrá samkvæmt upplýsingum á bæjarskrifstofunni og voru þegar 207 manns búnir að kjósa utankjörstaðar fyrir hádegi í gær. Þess má geta að hægt verður að greiða atkvæði utankjörstaðar fram á föstudag á skrifstofu sýslumanns á auglýstum opnunartíma. Kjörsókn í Vestmannaeyjum hefur verið í meðallagi undanfarnar Alþingiskosningar en árið 2013 var hún 81%, árið 2009 83,3% og svo 82,8% árið 2007. Samkvæmt kosningaspá Kjarnans sem gerð var á mánudag lítur allt út fyrir að af tíu þingmönnum úr Suðurkjördæmi verði þrír Vest- mannaeyingar, Páll Magnússon og Ásmundur Friðriksson frá Sjálf- stæðisflokknum og Smári McCarthy frá Pírötum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur best að vígi samkvæmt spánni en þar kemur fram að 58% líkur séu á því að Vilhjálmur Árnason komist einnig inn á þing sem þriðji maður á lista, Píratar og Framsóknarflokkurinn verða hins vegar að láta sér nægja tvo þingmenn og aðrir minna. Athygli vekur að afar ólíklegt er að Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, nái kjöri en líkur hennar samkvæmt spánni eru 13%. Það sem brennur heitast á Eyjamönnum fyrir komandi kosningar er óneitanlega tvennt, staða heilbrigðismála, eins og reyndar hjá þjóðinni allri, og svo samgöngumál. Það er því áhugavert að skoða hvað frambjóðendur nokkurra flokka höfðu að segja við Eyjafréttir í aðdraganda kosninga. Lára Skæringsdóttir, fyrir Fram- sóknarflokkinn, sagðist styðja sjálfstæðan rekstur Vestmannaeyinga á Herjólfi og auknum fjárframlögum til HSU um 250 milljónir svo hægt sé að halda úti fæðingarþjónustu og skurðstofuvakt. Ásmundur Friðriks- son, fyrir Sjálfstæðisflokkinn, lagði áherslu á þrjú atriði: 1. Að rekstur Herjólfs verði á hendi heimamanna, 2. Sama fargjald í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn og 3. Að farið verði í rannsóknir við Landeyjahöfn til að tryggja þar siglingar allt árið. Jóna Sólveig Elínardóttir frá Viðreisn vill auka frelsi sveitarfélaga til að ráðstafa fjármagni á sviði heilbrigðismála þannig að það myndi þjóna fólkinu á svæðunum sem best. Kvótakerfið sagði Smári McCarty fyrir Pírata vera ágætt, en fiskveiði- stjórnunarkerfið ekki. Hann vill smám saman fara yfir í uppboð á afla. Vésteinn Valgarðsson í Alþýðu- fylkingunni talaði fyrir aukinni félagsvæðingu og vaxtalausu fjármálakerfi. Helga Tryggvadóttir, frambjóðandi Vinstri grænna, sagði skiptingu gæða þurfa að vera réttlátari og að framtíð kvótakerfisins fælist í fyrningu aflaheimilda á löngum tíma. Páll Valur Björnsson í Bjartri framtíð talaði fyrir fjölbreytni á öllum sviðum, uppbyggingu ferðaþjónust- unnar, umhverfisvernd og eflingu heilsugæslu um allt land. :: Alþingiskosningarnar á laugardaginn :: 3166 á kjörskrá í Eyjum :: Geta valið á milli ellefu framboða og hefur framboðið aldrei verið meira :: Góðar líkur á að þrír Vestmannaeyingar nái inn á þing :: Samgöngu- og heilbrigðismál brenna helst á fólki ::

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.