Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 14
14 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 Vestmannaeyjar eru drauma- sveitarfélagið 2015 að mati tímaritsins Vísbendingar, sem sérhæfir sig í umfjöllun um viðskipti og efnahagsmál og hefur undanfarin ár gefið sveitarfélögum einkunn þar sem metin er staðan þeirra. Vest- mannaeyjar eru með ein- kunnina 8,2 og hefur ekki áður komist á toppinn hjá Vísbend- ingu. Í forsendum segir að Vestmannaeyjar hafi verið að borga niður skuldir og lækka útsvarsprósentuna. Grindavík er í öðru sæti með 8,1 og Fjalla- byggð í því þriðja með 7,5. Á botninum eru Reykjanesbær með 2,8, Fljótsdalshérað 2,7, Bolungarvík 2,6 og Skagafjörður með 2,4. Forsendur draumasveitar- félagsins að mati Vísbendingar eru að skattheimtan þarf að vera sem lægst. Breytingar á fjölda íbúa þurfa að vera hóflegar. Afkoma sem hlutfall af tekjum á að vera sem næst 10%. Hlutfall nettóskulda af tekjum sé sem næst 1,0. Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 þannig að sveitar- félagið hafi góða lausafjárstöðu en hafi ekki of mikla peninga í lélegri ávöxtun. Allir þessi þættir gilda jafnt. „Draumasveitarfélagið er það sveitarfélag sem er best statt fjárhagslega samkvæmt nokkrum mælikvörðum. Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt árferði. Einkunn- ir þeirra hæstu eru lægri en verið hefur. Nýtt sveitarfélag nær á toppinn, Vestmannaeyjar með einkunnina 8,2. Vestmannaeyjar hafa verið að borga niður skuldir og hafa lækkað útsvarsprósentuna,“ segir í umsögn Vísbendingar. „Tímaritið Vísbending hefur í mörg ár skoðað fjárhag sveitarfélaga og gefið þeim einkunnir eftir nokkrum þáttum sem mæla styrk þeirra. Það er því að sjálfsögðu mjög ánægju- legt fyrir okkur Eyjamenn að vera núna metin fremst meðal jafningja og hljóta þá eftirsóknarverðu nafnbót, Daumasveitarfélagið. Við vitum enda að forsenda góðrar þjónustu er að hafa í höndunum sterkan rekstur. Sjálfur hef ég séð tímana tvenna á þeim stutta tíma sem ég hef setið í stól bæjarstjóra. Árið 2006 þegar ég var að hefja störf hjá Vestmannaeyjabæ var staðan einfaldlega sú að það þurfti að fjármagna launagreiðslur með lántöku og funda reglulega með eftirlitsnefnd um fjármál Sveitar- félaga af því að við vorum á hausnum. Svigrúmið til að standa að uppbyggingu á góðri þjónustu var því ekkert,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri. Kúvending „Núna nokkrum árum seinna höfum nánast greitt niður öll lán og skuldbindingar sveitarfélagsins, straumlínulagað rekstur og hagrætt með það fyrir augum að efla þjónustu við bæjarbúa til langs tíma. Þetta er ekki alltaf auðvelt og stundum gleymist að forsenda allrar þjónustu er að sveitarfélagið sé vel rekið. Það er líka mikilvægt að muna að það voru hvorki við núverandi stjórnendur né núverandi íbúar sem bjuggum þetta ein til. Núverandi sterka staða varð til með striti bæjarbúa og erfiðum ákvörð- unum stjórnenda í gegnum áratugi. Forverar okkar í bæjarstjórn og fyrrum bæjarstjórar glímdu oft við mikið erfiðari aðstæður en við nú þurfum að takast á við og án dugnaðar og þors þeirra væri staðan ekki jafn góð í dag og raun ber vitni,“ bætir hann við. Elliði segir að eigi hann að vera alveg ærlegur þá hafi það ekkert sérstaklega komið sér á óvart að Vestmannaeyjar skyldu mælast sterk hvað rekstrarstöðu varðar þetta árið. „Ég átti þó ekki von á því að við yrðum í þeirri eftir- sóknarverðu stöðu að hljóta viðurkenningu sem draumasveitar- félagið. Við höfum verið með mjög trausta tekjustofna og hagræðingar- aðgerðir seinustu ára, eins og að losa okkur undan oki Fasteignar, hefur skilað sér í traustari stöðu. Verulega aukin þjónusta Vegna þessa var okkur mögulegt að auka verulega þjónustu við bæjarbúa eins og ákvörðun var tekin um fyrr á þessu ári. Við höfum því haft þau forréttindi að geta aukið sérstaklega þjónustu við okkar helstu þjónustuþega svo sem barnafjölskyldur, aldraða og fatlaða. Í því samhengi má til að mynda nefna ákvörðun um heimagreiðslur til foreldra barna undir 18 mánaða aldri, fjölgun leikskólaplássa, niðurgreiðslur til dagmæðra, frístundakort, byggingu nýrrar deildar við Hraunbúðir fyrir fólk með Alzheimer, fjölgun hjúkrunar- plássa við Hraunbúðir, fjölgun þjónustuíbúða fyrir aldraða, byggingu 4 til 6 íbúða fyrir fatlaða og margt annað má til taka. Þetta hefði ekki verið hægt nema vegna þess að reksturinn stendur sterkt. Á sama tíma höfum við getað haldið áfram að styrkja innri gerð samfélagsins með það fyrir augum að þróa samfélagið og bregðast við breytingum í atvinnu- lífinu. Þannig höfum við getað komið að uppbyggingu á Þekk- ingarsetri Vestmannaeyja, stutt við bakið á nýju háskólanámi, byggt upp stoðkerfi í ferðaþjónustu eins og með Eldheimum og nýja útisvistarsvæðinu við sundlaugina svo eitthvað sé til talið.“ Elliði segir samt eftir sem áður fulla ástæða fyrir Eyjamenn að vera á varðbergi. Sterk staða komi og fari og það sé ekki á vísan að róa. „Þetta er því hvatning fyrir okkur að gera enn betur og tryggja að við getum hér átt draumasveitarfélag til langs tíma. Við sem tímabundið gegnum embættum sem eru langtum stærri en sá einstaklingur sem gegnir því höfum ekki neinn rétt á öðru en að skila af okkur sterku samfélagi.“ Þjónustustigið með því besta Hann segist í dag hafa minni áhyggjur af fjárhagslegum rekstri bæjarfélagsins en oft áður. „Ég veit líka sem er að þjónustustigið hjá okkur er í dag ekki bara orðið samkeppnisfært heldur með því sem best gerist á landinu. Ég hef í dag langmestar áhyggjur af því hversu slælega ríkið hefur staðið sig í þeim lykilþáttum sem samgöngur og heilbrigðisþjónusta er. Síðan tel ég algerlega fráleitt þegar við sjálf förum að eyða orkunni í að takast á innbyrðis. Það er út í hött þegar upp kemur einhver neikvæðni bylgja sem gengur út á að ekki megi tala um það sem betur má fara. Auðvitað bæði má og á að tala um hvað betur má fara, en við gerum ekkert annað en að skaða okkur sjálf ef við rífum um leið niður það sem vel er gert. Stundum gengur þessi vitleysa svo langt að fólk verður feimið við að tala fallega um bæinn sinn. Rógurinn er hreinlega látinn ganga og finnist laufblað fölnað eitt er allur skógurinn fordæmdur. Við það töpum við ekki bara sjálf virðingu heldur drögum við kjarkinn úr nýjum íbúum og nýjum hugmyndum. Bölsóttin er alveg hroðalega smitandi og eina bólusettningin gegn henni er jákvæðni, samstaða og dirfska.“ Þótt vissulega sé gaman að mælast sterkt á samræmdum mælikvörðum en það er samt hjómið eitt miðað við mikilvægi samstöðunnar. Ástæðan fyrir velgengni í Vest- mannaeyjum og forsenda áfram- haldandi velsældar er sem fyrr samstaða og óbilandi vilji til að byggja hér áfram okkar gæða samfélag. :: Tímaritið Vísbending :: Vestmannaeyjar Draumasveitarfélagið 2015 :: Hvatning til að gera enn betur og tryggja góða stöðu til langs tíma :: Ástæðan fyrir velgengninni og forsenda áframhaldandi velsældar er samstaða og óbil- andi vilji til að byggja hér áfram okkar gæða samfélag, segir bæjarstjóri :: Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is „Draumasveitarfélagið er það sveitarfélag sem er best statt fjárhagslega samkvæmt nokkrum mælikvörðum,“ sagði Elliði Vignisson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.