Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Side 2
2 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
blaðamenn:
Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is
Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is
Guðmundur Tómas Sigfússon - gudmundur@eyjafrettir.is
Ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson.
Prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
EYJAFRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
EYJAFRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
EYJAFRÉTTIR
Eyjafréttir sendu Sigurði Inga
Jóhannssyndi forsætisráðherra
og formanni Framsóknarflokks-
ins, Páli Magnússyni Sjálfstæðis-
flokki, Oddnýju Harðardóttur
Samfylkingu, Ara Trausta
Guðmundssyni Vinstri grænum,
Páli Val Björnssyni Bjartri
framtíð, Smára MacCarthy
Pírötum, Jónu Sólveigu Elínar-
dóttur Viðreisn, Guðmundi
Sighvatssyni Alþýðufylkingunni
og Sturlu Hólm Jónssyni Dögun
sem öll eru oddvitar framboð-
anna í Suðurkjördæmi nokkrar
spurningar um stöðu heilbrigðis-
mála á Suðurlandi og í Vest-
mannaeyjum. Heimtur voru
rýrar og aðeins svöruðu þrír, Páll
Valur, Ari Trausti og Páll Magnús
son.
Það er staðreynd að rekstur HSU
á Suðurlandi er vanfjármagnaður
og fari sem horfir verður
stofnunin að skerða þjónustu á
næsta ári. Hvar sjáið þið helst
möguleika á niðurskurði?
Ég hreinlega hef ekki svar við því
hvar það ætti að gerast enda tel ég
að ekki verði lengra gengið í
niðurskurði hjá stofnuninni. Ef hún
á að standa undir lögbundnum
skyldum sínum þá verður öllum
niðurskurði að ljúka nú þegar og
auknu fjármagni veitt til hennar.
Finnst þér ásættanlegt að
sjúkraflug verði með óbreyttu
fyrirkomulagi? Ein flugvél
staðsett á Akureyri sem þjóna á
öllu landinu?
Nei, það finnst mér alls ekki og hef
reifað þá hugmynd að Landhelgis-
gæslan sjái um sjúkraflugið allavega
sunnan og vestanlands. Hún gæti
síðan gert þjónustusamning við t.d.
Mýflug um að sinna sjúkraflugi
norðan og austanlands. Þetta er
gífurlega mikilvægt öryggisatriði
fyrir fólk á landsbyggðinni, ekki
síst fyrir íbúa Vestmannaeyja sem
ekki búa við tryggar samgöngur
allan sólarhringinn.
Telur þú það ofverk ríkisins að
halda úti skurðlæknaþjónustu í
Vestmannaeyjum?
Nei, það tel ég ekki og myndi halda
að nýta ætti skurðlækni sem
staðsettur yrði í Eyjum til þess að
sjá um einhvern hluta þeirra
aðgerða sem gerðar eru á Land-
spítalanum. Nú bíða um 6000
manns eftir aðgerðum af öllu tagi
og að minni hyggju ætti að nýta
stærri heilbrigðisstofnanir landsins
sem búnar eru skurðstofum til þess
að sinna þessum aðgerðum. Það
segir sig sjálft að Landspítalinn nær
ekki að sinna þessu.
Finnst þér í lagi að konur í
Vestmannaeyjum þurfi að fæða
börn sín uppi á landi með
tilheyrandi óhagræði og miklum
kostnaði?
Alls ekki og þetta er eitthvað sem
hreinlega verður að breyta, það er
algerlega óásættanlegt að mismuna
fólki eftir því hvar það er búsett.
Það er staðreynd að rekstur HSU
á Suðurlandi er vanfjármagnaður
og fari sem horfir verður
stofnunin að skerða þjónustu á
næsta ári. Hvar sjáið þið helst
möguleika á niðurskurði?
Við sjáum engan raunhæfan
möguleika á niðurskurði. Nóg er
komið. VG hafa lagt fram þá stefnu
að endurskipuleggja og/eða auka
starfsemi sjúkrahúsanna úti á landi
eins og sagt er. Meðal annars er gert
ráð fyrir að safna saman 51
milljarði króna með álögum á þá
sem hæstar hafa tekjur og t.d. með
auknum auðlindagjöldum - á næsta
ári. Þar af eiga 18 milljarðar að
ganga til heilbrigðismála. HSU, á
öllu þjónustusvæðinu, færi ekki
varhluta af því handabandi.
Finnst þér ásættanlegt að
sjúkraflug verði með óbreyttu
fyrirkomulagi? Ein flugvél
staðsett á Akureyri sem þjóna á
öllu landinu?
Sjúkraflug er afar kostnaðarsamt.
Það er hægt og rétt að minnka
álagið á það með aukinni þjónustu
helstu heilbrigðisstofnana utan
Reykjavíkur og Akureyrar.
Vissulega væri farsælt að hafa tvo
upphafsflugvelli sjúkraflutninga -
og raun þyrfti líka að hafa neyðar-
og hjálparþyrlur staðsettar í tveimur
landshlutum og þá einmitt á sömu
stöðum og tvíhreyflurnar.
Telur þú það ofverk ríkisins að
halda úti skurðlæknaþjónustu í
Vestmannaeyjum?
Nei - án þess að skilgreina hvað rétt
og fært er að hafa af slíku í
Vestmannaeyjum - þ.e. hvers konar
aðgerðir skulu þar gerðar. Vonandi
tekst að endurlífga nauðsynlega
þjónustu þar.
Finnst þér í lagi að konur í
Vestmannaeyjum þurfi að fæða
börn sín uppi á landi með
tilheyrandi óhagræði og miklum
kostnaði?
Nei, að sjálfsögðu ekki og löngu
kominn tími til að reikna út heildar
samfélagskostnað af þessu sérstæða
ráðslagi. Inni í tölunni er raunkostn-
aður foreldra og fjölskyldna o.fl.
Búast má við að samfélagskostnað-
urinn opinberaði að sparnaðartölur
á reikningum ríksins af fæðingum
utan Eyja dygðu ekki til að réttlæta
þessa skerðingu sjúkrahúsþjónustu
og það annað sem fylgt hefur
nákvæmlega niðurskurði á
fæðingarþjónustunni.
Það er staðreynd að rekstur HSU
á Suðurlandi er vanfjármagnaður
og fari sem horfir verður
stofnunin að skerða þjónustu á
næsta ári. Hvar sjáið þið helst
möguleika á niðurskurði?
Það eru engir möguleikar á frekari
niðurskurði, þvert á móti þarf að
auka fjárveitingar stofnunarinnar og
bæta þjónustu.
Finnst þér ásættanlegt að
sjúkraflug verði með óbreyttu
fyrirkomulagi? Ein flugvél
staðsett á Akureyri sem þjóna á
öllu landinu?
Óbreytt fyrirkomulag í sjúkraflugi
er ótækt. Tillaga sem lögð hefur
verið fram, m.a. af Vilhjálmi
Árnasyni þingmanni Sjálfstæðis-
flokksins og Styrmi Sigurðarsyni
yfirmanni sjúkraflutninga á HSU,
um sjúkraþyrlur er hugmynd sem
vert er að skoða alvarlega. Sjúkra-
þyrla, skipuð bráðatækni og
bráðalækni á vakt allan sólarhring-
inn gerir það að verkum að
viðbragðstími myndi styttast
verulega. Slíkt getur skipt sköpum,
því við vitum það að hver mínúta
getur skipt máli þegar alvarleg
veikindi eða slys ber að garði.
Telur þú það ofverk ríkisins að
halda úti skurðlæknaþjónustu í
Vestmannaeyjum?
Nei, þetta er skilyrðislaus og
sanngjörn krafa.
Finnst þér í lagi að konur í
Vestmannaeyjum þurfi að fæða börn
sín uppi á landi með tilheyrandi
óhagræði og miklum kostnaði?
Það er með öllu ótækt. Að sjálf-
sögðu eiga konur að eiga þann kost
að eiga börn í sínum heimabæ, ekki
síst í ljósi þess hversu samgöngur
eru ótryggar.
:: Heilbrigðismál í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi :: Aðeins Páll Valur, Ari Trausti og Páll
Magnússon svöruðu ::
Óásættanlegt að mismuna
fólki eftir því hvar það er búsett
Páll Magnússon
Ari Trausti
Björn Valur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar
og tengdamóðir,
Jóna Kristín Ágústsdóttir
Áhamri 6, Vestmannaeyjum
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 18. október sl.
Hún verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 29. október og hefst athöfnin klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbavörn
í Vestmannaeyjum.
Magnús Birgir Guðjónsson
Toke Ploug Henriksen
Halla Kristín Kristinsdóttir
Guðjón Magnússon
Anna Kristín Magnúsdóttir
Ólafur Vignir Magnússon
:: Aukna þjónustu helstu heilbrigðisstofnana utan Reykjavíkur og Akureyrar ::
VIÐ HÖFNUM ALFARIÐ
Íslenska
Þjóðfylkingin
WWW.X-E.IS
ÍSLENSKA ÞJÓÐFYLKINGIN
AÐILD AÐ ESB
EYJAFRÉTTIR
- vertu með á nótunum!