Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 4
4 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
>> SmáAuglýsingAr
ljúffeng uppskrift
Landakirkja
Fimmtudagur 27. október
Kl. 20.00 Æfing Kórs Landakirkju
undir stjórn Kitty Kóvács.
Kl. 20.00 Opið hús í KFUM og K
heimilinu Vestmannabraut. Gengið
inn af Fífilgötunni.
Föstudagur 28. október
Kl. 10.00 Foreldramorgun. ATH nýr
tími. Allir foreldrar velkomnir með
ungviðin.
Kl. 14.30 Litlir lærisveinar.
Laugardagur 29. október
Kl. 14.00 Útför Jónu Kristínar
Ágústsdóttur.
Sunnudagur 30. október
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli með
söng, sögu og miklu fjöri, undir
dyggri stjórn sr. Viðars Stefáns-
sonar. Gísli Stefánsson mætir með
gítarinn.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Landa-
kirkju. Sr. Viðar prédikar og Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
Kitty Kóvács.
Kl. 15.25 Guðsþjónusta á Hraun-
búðum. Sr. Viðar og Kór Landa-
kirkju.
Mánudagur 31. október
Kl. 15.30 STÁ (6-8 ára) Í stuði með
Guði.
Kl. 18.3012 spora fundur Vina í
bata. Byrjendahópur.
Kl. 20.00 12 spora fundur Vina í
bata. Framhaldshópur.
Þriðjudagur 1. nóvember
Kl. 10.00 Kaffistofan. Létt spjall
um allt og ekkert. Allir velkomnir.
Kl. 14.00 Fermingarfræðsla.
Kl. 14.00 ETT (11-12 ára) Allir
krakkar í 6. og 7. bekk velkomnir.
Kl. 20.00 Samvera Kvenfélags
Landakirkju í Safnaðarheimilinu.
Miðvikudagur 2. nóvember
Kl. 10.00 Bænahópurinn með
samveru í fundarherbergi Landa-
kirkju.
Kl. 13.00 Fermingarfræðsla.
Kl. 14.25 Fermingarfræðsla.
Kl. 16.00 NTT (9-10 ára) Allir
krakkar í 4. og 5. bekk velkomnir.
Kl. 17.00 Fermingarbörn fara um
bæinn og safna fyrir Hjálparstarf
kirkjunnar
Kl. 19.30 OA fundur í Safnaðar-
heimilinu.
Kl. 20.00 Fundur hjá Aglow.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00 Biblíu-
lestur.
Föstudagur kl. 14:00 Samvera.
Sunnudagur kl. 13:00 Samkoma.
Þriðjudagur kl. 17:15 Samkirkju-
leg bænastund.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Vel heppnað kótilettukvöld,
ágóði rann til Alzheimersfélagsins
Pétur steingrímsson, lögreglumaður
og gunnar H. gunnarsson stóðu í
þriðja skipti fyrir kótilettukvöldi þar
sem fólk kom saman til að eiga góða
stund og borða góðan mat. Alls
mættu 111 félagsmenn og ágóðinn
rann til Alzheimersfélagsins í
Vestmannaeyjum. Pétur er
Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Pétur Steingrímsson.
Fæðingardagur: 14. janúar 1957.
Fæðingarstaður: Sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum.
Fjölskylda: Hún er ekki stór en við
Bubba mín eigum einkasoninn
Arnar og tvö barnabörn, þau Dag
og Kötlu.
Aðaláhugamál: Útivist hefur lengi
verið áhugamál og þá að ganga á
fjöll hér á Heimaey, það jafnast fátt
á við náttúruna hér. Góð gönguferð
gerir sálarlífinu svo gott. Ég var
alinn upp við sauðfjárbúskap, afi og
amma voru með nokkrar kindur
þegar ég var lítill peyi og í dag á ég
nokkrar ær í Bjarnarey. Svo hef ég
síðustu ár verið að staðsetja örnefni
á Heimaey með góðra manna hjálp
og hefur það verið eitt af stærri
áhugamálunum mínum.
Uppáhalds matur: Lambakjötið
klikkar aldrei, öll villibráð og svo
kemur fiskurinn mjög sterkur inn
líka.
Versti matur: Ég er ekkert hrifinn
af kjötfarsi og kálbögglum. Í gamla
daga vann ég eitt ár í Kaupfélaginu
hér við Bárustíg og þar var
kjötvinnsla í gangi. Ég horfði
nokkrum sinnum á kjötiðnaðar-
manninn búa til kjötfars, hann
kallaði þetta uppsóp.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Það er fátt sem slær
náttúrunni hér í Eyjum við á
fallegum sumardegi og svo er
fallegt í Biskupstungunum. Í maí og
byrjun júní í fyrra vorum við hjónin
í viku á norðurhluta eyjunnar
Mallorcu og gengum þar um fjöll
og firnindi með góðum hóp. Þar er
líka mjög fallegt landslag og
náttúrufegurð.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Engin spurning að
það eru barnabörnin, þau Dagur og
Katla. Þó svo ég fari ekki á alla
leiki núna þá fylgjumst við gömlu
vel með þeim, þau spila bæði með
mínu uppáhaldsfélagi ÍBV. Svo hef
ég alltaf verið tryggur Tottenham
aðdáandi.
Uppáhalds sjónvarpsefni:
Náttúrulífsþættir og svo segir konan
að ég sé fréttafíkill, ég veit það nú
ekki.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
lesa: Ég er nánast alæta á lestrarefni
og ekkert eitt sem er framar öðru en
ljóð hafa verið að koma sterk inn.
Kannski er það aldurinn, ég bara
veit það ekki. Ég keypti ljóðabók
sem heitir Ég sendi þér engil eftir
Kristján Hreinsson og gaf Bubbu í
afmælisgjöf í haust. Í þessari bók
eru fallegustu ljóð sem ég hef lesið
og fjalla öll um ást og engla. Bókin
kveikti áhuga minn á ljóðum og vil
ég endilega benda fólki á þessa bók.
Hvernig kviknaði hugmyndin af
kótilettukvöldi: Það var á fundi í
Oddfellow fyrir fjórum árum.
Gunnar Heiðar var að matreiða
þessar líka fínu kótilettur ofan í
klúbbfélaga og í spjalli okkar á
milli kom upp sú hugmynd að
stofna kótilettuklúbb hér í Eyjum
og auðvitað létum við verða af
þessu.
Markmið klúbbsins eru þrjú:
1) Á fundi klúbbsins sem er bara
einu sinni á ári borða allir kótilettur
og það mikið af kótilettum með
kartöflum, grænum baunum,
rauðkáli og mikilli rabbabarasultu
og í eftirrétt verður og er alltaf
Royalbúðingur með þeyttum rjóma.
2) Allir fari saddir og ánægðir heim
að fundi loknum.
3) Látum svo eitthvað gott af okkur
leiða.
Hvernig heppnaðist kótilettu-
kvöldið í ár: Mjög vel.
Hversu margir mættu og hvað
safnaðist mikill peningur: Við
vorum mjög ánægðir með mæt-
inguna í ár því við fréttum það eftir
að við auglýstum fundinn að þetta
væri helgin sem annar hver
Eyjamaður væri annað hvort uppi á
landi eða í útlöndum.
Það mættu 111 tryggir félagsmenn
og gestir þeirra þetta kvöld og
áttum við frábæra kvöldstund
saman á Háaloftinu. Við gátum
afhent Alzheimer – Styrktarklúbbi
Vestmannaeyja yfir 200 þúsund í
styrk sem við erum afskaplega glöð
og ánægð með.
Eitthvað að lokum: Ég vil nota
tækifærið og þakka öllu þessu
frábæra fólki sem hefur gert okkur
Gunnari Heiðari það kleift að gera
áhugamálið okkar mögulegt, það er
að halda kótilettukvöld og láta
eitthvað gott af okkur leiða að því
loknu. Takk allir sem aðstoðuðu
okkur með ýmsu móti þannig að
þetta var bæði ánægjulegt og
skemmtilegt. Takk, Einar Björn
(Einsi kaldi), Bjarni Ólafur, Gísli
Foster, Jói Listó, Jarl, Snorri Jóns,
Stebbi skó og fleiri, allir lögðu hönd
á plóginn með einhverjum hætti.
Hjartans þakkir frá okkur Gunnari
og við sjáumst vonandi öll að ári
liðnu.
Thailensk kjúklinga-
núðlusúpa
Hráefni:
4 hvítlauksrif, smátt söxuð
10 cm engiferrót, söxuð
1 líter kjúklingasoð
1 msk olía
2 eldaðar kjúklingabringur, rifnar
niður
3-4 gulrætur skornar í strimla
1/3 af brokkolíhaus
2 tsk red curry paste (1-2 tsk í
viðbót ef þið viljið að súpan sé vel
sterk)
safi úr einni lime
2 dósir kókosmjólk
1 stk laukur, skorinn í sneiðar
1/2 búnt kóríander, gróflega skorið
dass af karrý kryddi
hálfur poki af Thai chosie núðlum.
Aðferð:
1. Steikið í olíu í potti, hvítlauk og
engifer við meðalhita. Hellið
kjúklingasoðinu útí og hitið að
suðu. Minnkið hitann niður í lágan
og látið malla í 30 mínútur.
2. Hellið soðinu í gegnum sigti og
hendið hvítlauknum og engiferinu.
3. Hitið olíu í stórum potti við
meðalhita. Steikið gulrætur þar til
þær eru orðnar mjúkar, látið þá
laukinn og brokkolí útí. Bætið
kjúklingnum útí og síðan red curry
paste og limesafa og blandið vel
saman. Bætið síðan kjúklingasoði
og kókosmjólkinni útí og hitið að
suðu. Lækkið síðan á lágan hita í
15-20 mínútur.
4. Veiðið upp olíu sem flýtur upp á
yfirborðið … ef þið nennið.
5. Sjóðið núðlur og hafið þær sér
með matnum (hver og einn sér um
að fá sér þær).
6. Takið af hitanum og látið útí
helminginn af kóríander.
7. Setjið í skálar og skreytið með
coriander, lime og salthnetum.
Naan brauð
Hráefni:
200 ml. mjólk
2 msk. sykur
1 poki ger
600 gr hveiti
1 tsk. salt
2 tsk lyftiduft
4 msk olía
1 dós hrein jógúrt.
Aðferð naan brauð
Hitið mjólkina (þannig að hún sé
aðeins meira en volg) og leysið
gerið upp í henni. Blandið saman
þurrefnum, mjólkinni með geri, olíu
og jógúrt (gott er að hafa jógúrt við
stofuhita). Hnoðið vel og látið lyfta
sér í 30 mín. Mótið brauðin og látið
lyfta sér aftur í 15 mín. Skerið rákir
í deigið og penslið hvítlaukssmjör-
inu á. Grillið ofarlega í ofni í 2 – 3
mín. hvorum megin og berið fram
volg.
Hvítlaukssmjör
200 gr. smjör
1 msk. hvítlaukur, fínt saxaður eða
pressaður
1 msk. pestó
1 tsk. dijon sinnep
1 msk. söxuð steinselja.
Aðferð hvítlaukssmjör
Hrærið allt vel saman. Smjörið
geymist vel og er því hægt að nota
það með öðru þótt ekki sé notaður
nema lítill hluti af því á þessa
uppskrift.
Thailensk kjúklinga-
núðlusúpa og naan brauð
Íbúð í langtímaleigu.
3 herbergja íbúð í langtímaleigu.
Laus strax.
Upplýsingar í síma 695-3188
-------------------------------------------
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Minningarkort
kvenfélagsins
líknar
Stefanía Ástvaldsdóttir
Hrauntúni 34 / s. 481-2155
Elínborg Jónsdóttir
Hraunslóð 2 / s. 481-1828
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Brimhólabr. 28 / s. 481-3314
Kristín Gunnarsdóttir
s. 481-2183 / 861-1483
Rn.0582-4-250355 / Kt. 430269-2919
Allur ágóði rennur í
sjúkrahússjóð félagsins
Minningarkort
kvenfélags
landakirkju
Svandís Sigurðardóttir
Strembugötu 25 / 481-1215
Marta Jónsdóttir
Helgafellsbraut 29
481-2192 /661-9825
Minningarkort
slysavarna-
deildarinnar
eykyndils
Kristín Elfa Elíasdóttir
Áshamri 17 / s. 481-2146
Bára J. Guðmundsdóttir
Kirkjuvegi 80 / s. 481-1860
Rn.0582-4-250442 / Kt. 470383-0389
Pétur Steingrímsson
er Eyjamaður vikunnar
Minningarkort
krabbavarnar
vestMannaeyja
Hólmfríður Ólafsdóttir
Túngötu 21 / sími 481-1647
Ester Ólafsdóttir
Áshamri 12 / sími 481-2573
Karólína Jósepsdóttir
Foldahraun 39e s. 534 9219