Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 8
8 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
Stöðugleiki skilar tugþúsunda
kjarabót fyrir almenning
Einhver líkti krónunni okkar við
korktappa í ólgusjó fjármálaum-
hverfisins og stóru gjaldmiðlunum
við stórskip með siglingarhæfni til
að mæta mismunandi veðrum. Á
Íslandi upplifum við núna ágæta
tíma með þokkalegum kaupmætti
og lágri verðbólgu. En ef við lítum
út fyrir túnfótinn sjáum við að
krónan hefur risið óþægilega mikið
gagnvart erlendum gjaldmiðlum og
það veldur útflutnings atvinnugrein-
unum vanda eins og staðfest var
í fréttum fyrir nokkrum dögum.
Framkvæmdastjóri hátækni-
fyrirtækisins Nox Medical lýsti
því að fyrirtækið glímdi við 20%
verðbólgu vegna stöðu krónunnar
gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
Keppinautar fyrirtækisins í öðrum
löndum búa við allt annað og betra
rekstrarumhverfi. Ísland er ekki
samkeppnishæft vegna þess hvað
krónan sveiflast.
Lækkum greiðslubyrði um
tugi þúsunda
Sveiflurnar tengjast líka fjár-
málum einstaklinga og birtast í
vaxtaokrinu. Verðtryggingin er
séríslenskt fyrirbæri. Samanburður
við önnur lönd verður að miðast
við óverðtryggð lán. Fyrir skömmu
skrifaði ungur íslendingur grein
um breytta stöðu sína eftir að hafa
flutt til Svíþjóðar. Húsnæðislánið
sitt fékk hann í venjulegum banka
á 2% vöxtum án verðtryggingar. Sá
sem tekur óverðtryggt lán á Íslandi
greiðir næstum fjórfalda þá vexti.
Ég tek dæmi af íslenskum banka
sem býður óverðtryggt húsnæðislán
með 7,3% vöxtum. Sá sem tæki 20
milljóna lán á þeim kjörum til 25
ára með jöfnum mánaðargreiðslum
væri að greiða 145 þúsund krónur á
mánuði. Á sama tíma væri skuldar-
inn í Svíþjóð að greiða 85 þúsund.
Munurinn er 60 þúsund! Miðað
við lægra skattþrep á Íslandi þyrfti
launatekjur uppá 90 þúsund til að
fjármagna þennan mun. Þetta er
eitthvað sem alla munar um.
Myntráð virkar
Viðreisn vill festa krónuna við
annan gjaldmiðil til að hún hætti
að sveiflast eins og korktappi. Það
fyrirkomulag byggir á tillögu Seðla-
bankans um Myntráð sem hann
telur að virki til að ná stöðugleika
og í beinu framhaldi lægri vöxtum.
Núverandi stjórnarflokkar hafa ekki
sýnt áhuga á að fara þessa leið og
bæta kjör almennings og fyrirtækja
í landinu. Það hlýtur því að vera
öllum fyrir bestu að þeir fái frí.
Viðreisn er XC.
Ingunn Guðmundsdóttir viðskipta-
fræðingur
Er búsett á Selfossi og skipar þriðja
sæti fyrir Viðreisn í Suðurkjördæmi
Krónan er eins og korktappi
Myndin sýnir hvernig vaxtakjör húsnæðislána eru í nokkrum löndum.
Það er alveg sama hvar borið er
niður í dag og hvaða alþjóðlegu
mælikvarðar eru skoðaðir - Ísland
skorar alltaf hæst: Ríkissjóði hefur
verið snúið úr gegndarlausum
hallarekstri í afgang; atvinnuleysi er
nú bara tölfræðilegt, rúmlega 2%,
sem þýðir á mannamáli að það er
ekkert atvinnuleysi; hagvöxtur á
Íslandi hefur verið meiri að
undanförnu en í öllum þeim löndum
sem við notum til samanburðar - og
kaupmáttur launa hefur aukist meira
síðustu misserin en dæmi eru um á
svo skömmum tíma um langt skeið.
Þessi upptalning gæti haldið áfram
lengi enn - og er einn samfelldur
vitnisburður um hversu vel hefur
tekist með stjórn efnahagsmála á
því kjörtímabili sem er að ljúka. En
við vitum líka að það þarf að gera
betur á ýmsum sviðum. Hér á okkar
slóðum - í Suðurkjördæmi - eru það
innviðabrestirnir sem eru mest
aðkallandi. Þeir eru samstofna um
allt kjördæmið - vestan frá
Reykjanesi og austur á Höfn - og á
öllu þessu svæði nefna menn fyrst
tvennt: Samgöngumál og heil-
brigðisþjónustu. Þar á eftir kemur
svo löggæslan. Sumir þessir brestir
eiga sér rætur í groddalegum
niðurskurði í kjölfar hrunsins, aðrir
eiga sér lengri sögu en allir verða
þeir augljósari núna þegar fjöldi
erlendra ferðamanna í kjördæminu
hefur margfaldast á aðeins nokkrum
árum.
Forgangsmálin eru mismunandi
eftir svæðum og stöðum í kjör-
dæminu en öll af sömu rótum
runnin. Þessa bresti munum við
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
leggja höfuðáherslu á að laga á
næsta kjörtímabili. Forsendan fyrir
því að það sé hægt, er að áfram
haldi sú jákvæða þróun í efnahags-
málum og meðfylgjandi stöðugleiki
sem ég gat um hér í byrjun.
En einmitt þar liggur hundurinn
grafinn. Það er alls ekki víst að svo
verði - og raunar fremur ólíklegt
miðað við hina pólitísku stöðu í
dag. Það má segja að það hafi verið
heiðarlegt hjá vinstri flokkunum
undir forystu Pírata að hefja
stjórnarmyndunarviðræður um
síðustu helgi - sex dögum FYRIR
kosningar. Það hefði að vísu verið
lýðræðislegra að hinkra eftir
kosningaúrslitunum en látum það
vera.
Þetta útspil Pírata og viðbrögð
hinna vinstri flokkanna við því hafa
einfaldað og auðveldað val
kjósenda á laugardaginn. Það eru
bara tveir kostir í boði: fjögurra eða
jafnvel fimm flokka vinstri stjórn
undir forystu Pírata - eða ríkisstjórn
undir forystu Sjálfstæðisflokksins.
Við vitum hvað Sjálfstæðisflokkur-
inn stendur fyrir; hluta af því nefndi
ég í byrjun þessarar greinar. En sem
betur fer vitum við líka hvað vinstri
flokkarnir, sem hittust um helgina,
standa fyrir. Þeir stjórna nefnilega
allir saman einu verst rekna
sveitarfélagi á Íslandi: Reykjavík. Á
nýjum lista yfir 20 best reknu
sveitarfélög á Íslandi tróna tvö á
toppnum: Vestmannaeyjar og
Grindavík. Tvennt af því sem þau
eiga sameiginlegt er að þau eru
bæði í Suðurkjördæmi og í báðum
eru Sjálfstæðismenn við völd.
Reykjavík kemst ekki einu sinni inn
á þennan topp 20 lista. Tilviljun?
Ég held ekki! Og við vitum meira.
Við vitum að ef við leggjum saman
megináherslur þessarra flokka
ganga aftur allir gömlu draugarnir
frá Jóhönnu og Steingrími J.:
skattahækkanir á einstaklinga og
atvinnulíf; Evrópusambandið;
niðurbrot á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu og óvissuferð inn í upp-
boðsleiðina; niðurrif á stjórnar-
skránni sem ekkert hefur gert af sér
- og svona mætti áfram telja.
Á laugardaginn er sem sagt hægt að
velja á milli áframhaldandi framfara
og efnahagslegs stöðugleika undir
forystu Sjálfstæðisflokksins - eða
fjölflokka vinstri óvissuferðar undir
forystu Pírata.
Ég treysti á dómgreind kjósenda í
Suðurkjördæmi. Ég treysti á að þeir
kjósi með með sjálfum sér - fyrir
eigin velferð og öryggi. Ég treysti á
að þeir hafni þessu vinstra kraðaki;
sporin hræða. Ég treysti því að þeir
kjósi Sjálfstæðisflokkinn!
Páll Magnússon
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi
Veljum öryggi - höfnum óvissu!
Páll Magnússon skipar fyrsta sæti í Suðurkjördæmi.
Vegagerðin er að skoða tilboð frá
pólsku skipasmíðastöðinni Crist SA
í Póllandi í smíði nýrrar Vestmanna-
eyjaferju. Fyrr í mánuðinum dró
norska skipasmíðastöðin Fiskerstr-
and Verft AS tilboð sitt til baka. Var
tilboð Norðmannanna talið
hagstæðast en lægstu tilboðin voru
upp á 2,6 til 2,7 milljarða. Kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði
upp á 3,5 milljarða.
Tilboð pólska fyrirtækisins var
það fimmta lægsta og munar um
600 milljónum á því og tilboðum
frá Kínverjum sem áttu lægstu tvö
lægstu tilboðin ásamt Tyrkjum og
Norðmönnum.
Áætlað var að nýtt skip verði
tilbúið sumarið 2018 en hvort þessi
uppákoma Norðmannanna verður
til þess að það dragist á eftir að
koma í ljós.
Hvenær mun nýtt skip leysa
núverandi Herjólf af hólmi?
Skoða nú tilboð frá Pólverjum