Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Qupperneq 9
9Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
Börnin okkar
Ég hef setið á Alþingi þetta
kjörtímabil sem fulltrúi ykkar,
kjósenda í Suðurkjördæmi. Það
hefur verið mikil reynsla, oft erfið,
en alltaf áhugaverð og langoftast
ánægjuleg.
Árið 2014 hlotnaðist mér sá heiður
og ábyrgð að vera útnefndur sem
einn af sérstökum talsmönnum
barna á Alþingi af hagsmuna-
félögum sem starfa í þágu barna.
Ég tók þetta hlutverk strax mjög
alvarlega og hef styrkst í sann-
færingu minni fyrir mikilvægi
þessa verkefnis.
Ég hef kynnt mér vel stöðu barna á
Íslandi og sett mig inn í mál sem
varða þau sérstaklega og hef séð
svo margt aðfinnsluvert sem verður
að bæta. Því miður er það ömurleg
staðreynd að stór hópur barna hér á
landi býr ekki við sömu tækifæri
og önnur börn. Sum þeirra verða
undir strax í leikskóla og grunn-
skóla, vegna félagslegra aðstæðna,
fátæktar, fötlunar og skerðingar og
fá ekki þann stuðning sem við
getum sem samfélag svo vel veitt
þeim. Að verða undir hefur
gríðarleg áhrif á lífsgæði þessara
barna og tækifæri í öllu lífinu og
vegur að hamingju foreldra þeirra
og annarra aðstandenda. Það er
þyngra en tárum taki, er algjörlega
óásættanlegt og óþarft í velmeg-
unarsamfélagi okkar.
Skólakerfið gegnir lykilhlutverki
við að tryggja börnum tækifæri til
að þroska sig og gera þeim kleift
að njóta lífsins á sínum forsendum.
Skólinn á að vera án aðgreiningar
og mismununar. Hann á að laga sig
að einstaklingnum, þörfum hans og
hæfileikum. Börn eiga ekki að
þurfa að laga sig að skólanum. Ég
veit, af eigin reynslu, að
skólastjórnendur, kennarar og
annað starfsfólk skólanna vilja
sinna þeim vel. Þetta góða fólk þarf
hins vegar að fá fleiri og marg-
breytilegri úrræði og stuðning til
þess að geta sinnt öllum börnum,
þörfum þeirra og forsendum.
Sem talsmaður barna á Alþingi hef
ég skrifað margar greinar, flutt
margar ræður og lagt fram
fyrirspurnir sem lúta að málefnum
barna. Í september s.l. hlotnaðist
mér sá heiður að vera verðlaunaður
fyrir að standa mig best þingmanna
í að vekja athygli á og berjast fyrir
réttindum barna, ekki síst þeirra
sem eru í erfiðri stöðu.
Þessi viðurkenning er mér meira
virði en nokkuð annað sem mér
hefur hlotnast á lífsleiðinni. Hún er
mér líka mikil hvatning til að halda
áfram að vinna í þágu barna. Ég
veit hins vegar að staða þingmanns
færir mér bestu tækifærin til að
berjast fyrir þessu mikilvæga
málefni. Að bæta stöðu og réttindi
barna og jafna tækifæri þeirra til að
njóta lífsins og vera virkir og
hamingjusamir þátttakendur í
samfélaginu.
Þess vegna bið ég þig ágæti
kjósandi að veita mér stuðning til
að halda áfram á sömu braut.
Páll V. Björnsson
…segir máltækið og annað segir:
„Heilsan er fátækra manna
fasteign.“ Já, heilsan er óumdeilan-
lega eitt það verðmætasta sem við
eigum og að henni þarf að hlúa. Við
berum ábyrgð á eigin heilsu en
þegar slysin verða eða heilsan
brestur, þá vill Framsóknarflokkur-
inn að á Íslandi sé góð heilbrigðis-
þjónusta sem allir hafi aðgang að,
óháð efnahag. Til að það megi
ganga eftir vill Framsóknarflokkur-
inn byggja nýjan Landspítala á
nýjum stað, efla heilsugæsluna og
heilbrigðisstofnanir um land allt.
Aukin framlög til heilbrigðismála
Ríkisstjórnin, undir forystu
Framsóknarflokksins hefur aukið
framlög til heilbrigðiskerfisins um
tæpa 40 milljarða á kjörtímabilinu
og útgjöld til tækjakaupa hafa
sjöfaldast. Útgjöld til heilbrigðis-
mála hafa verið stærsti liður
ríkissjóðs á kjörtímabilinu, en á
síðustu fjárlögum voru 162
milljarðar settir í heilbrigðiskerfið.
Framsóknarflokkurinn vill efla
heilbrigðiskerfið enn frekar en
einnig að frekari greiningar og
gæðamælingar verði gerðar á
heilbrigðiskerfinu svo þeir fjár-
munir sem settir eru í málaflokkinn
nýtist sem allra best.
Eyðum biðlistum
Heilbrigðisstofnanir á landsbyggð-
inni eru margar hverjar vannýttar.
Með því að nýta þessi sjúkrahús
betur þá væri hægt að eyða
biðlistum með einföldum aðgerð-
um og um leið að styrkja rekstur
þessara stofnana, sem hafa margar
hverjar verið fjársveltar um árabil.
Um leið værum við að létta álaginu
af Landspítalanum. Við þurfum að
eiga gott hátæknisjúkrahús og
Framsóknarflokkurinn leggur
áherslu á að reisa nýjan Landspítala
á nýjum stað.
Múhammed til fjallsins
Framsóknarflokkurinn vill bæta
aðgengi fólks á landbyggðinni að
sérfræðingum – fjallið á ekki að
fara til Múhammeds. Við viljum
líka efla fjarlækningaþjónustu en
verkefnið á Kirjubæjarklaustri hefur
gefist afar vel og því tilefni til að
nýta þá reynslu til frekari uppbygg-
ingar. Framsókn vill að komið sé til
móts við þá sem þurfa að fara að
heiman til að sækja sér heilbrigðis-
þjónustu, s.s. vegna fæðinga þar
sem fæðingarstöðum hefur fækkað
verulega hin síðari ár og vegna
eftirlits eða eftirfylgni sem ekki er
hægt að veita í heimabyggð.
Réttlætismál
Verðandi foreldrar á landsbyggðinni
þurfa t.d. oft að hefja töku fæð-
ingarorlofs fyrr, þar sem þeir þurfa
að fara tímanlega á fæðingarstað.
Þá dregst biðtíminn eftir barninu,
frá orlofinu. Barn og foreldrar njóta
því styttri samveru þegar barnið
kemur loksins í heiminn. Með því
að breyta lögum um fæðingarorlof
gætum við tryggt rétt barna til að
njóta jafnlangs tíma með foreldrum
sínum eftir fæðingu eins og þau
börn sem eiga heima í nágrenni við
fæðingarþjónustu, en annar
greinarhöfunda lagði fram frumvarp
þess efnis á Alþingi.
Hár dvalarkostnaður
Annað atriði sem þarf að huga betur
að er dvalarkostnaður þeirra sem
þurfa að fara að heima vegna
barnsfæðinga og eiga ekki ættingja
eða vini sem geta hýst þá meðan á
biðinni stendur. Ein leið væri að
útvega fólki dvalarstað eða með
fjárstyrk vegna dvalarkostnaðar í
nágrenni við fæðingarstað.
Verðandi foreldrar eiga ekki að
gjalda þess að búa fjarri fæðingar-
stöðum og fjarri heilbrigðisþjónustu
almennt.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins í 2.
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi og Ásgerður Kristín
Gylfadóttir, hjúkrunarstjóri HSU og
í 3. sæti.
Góð heilsa er gulli betri
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Silja Dögg Gunnarsdóttir
Reggie Óðins með Zeppelin
og Uriah Heep á kantinum
Það hefðu að ósekju fleiri mátt
mæta á tónleika Reggie Óðins og
hljómsveitar á Háaloftinu á
laugardagskvöldið. Tónleikarnir
voru vel heppnaðir og tónlistar-
fólkið lét það ekki slá sig út af
laginu þó nokkuð vantaði upp á að
hvert sæti væri skipað. Þetta voru
útgáfutónleikar vegna nýjustu plötu
þeirra, Life´s about the journey.
Á plötunni eru tólf lög sem þau
léku öll og létu þau vel í eyrum við
fyrstu hlustun. Sjálf lýsa þau tónlist
sinni sem melódísku poppi með
rokkívafi ásamt dægurlagatónlist.
Áhrifin komu víða að og mátti
jafnvel greina smá Zeppelin og
Uriah Heep í sumum lögunum. Öll
eiga lögin sína sögu og í textunum
eru sagðar sögur úr reynslubanka
höfundanna. Var þetta allt kynnt á
milli laga sem gaf kvöldinu meira
gildi.
Flest eru lögin eftir Reggie og
Anton Rafn Gunnarsson gítar-
leikara og Sævar Árnason sem líka
spilar á gítar á eitt lag. Aðrir í
hljómsveitinni eru Óðinn Hilmisson
bassi og Þorbergur Skagfjörð
Ólafsson trommur. Öll stóðu þau
sig frábærlega, lögðu sig fram og
uppskáru samkvæmt því. Það
verður gaman að fylgjast með
Reggie Óðins sem á ættir að rekja
til Eyja. Hún getur svo sannarlega
sungið og er í hópi ungra kvenna á
Íslandi sem eiga eftir að láta meira
að sér kveða í tónlistinni.