Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Page 16
16 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
hARALDUR ARI
Veislustjóri
„Við höfum orðið varar við aukinn
áhuga, sérstaklega frá konum á
landsbyggðinni, á að fá að koma til
okkar í dekur á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar sem við erum með fyrsta
flokks aðstöðu, hótel, heilsurækt,
spa, snyrtistofu og veitingastað þá
ákváðum við að kýla á þetta,“ segja
Gígja Þórðardóttir sem ásamt
Heiðdísi og Sunnu ætla að standa
að dekurhelgi á Hótel Íslandi 2. til
4. desember nk.
Þetta kemur fram í frétt sem þær
sendu frá sér. „Það hefur verið
töluvert um áhugaverðar helgar
fyrir vinkonur, mæðgur, systur og
frænkur úti á landi þar sem boðið er
upp á afslöppun, dekur og notalega-
heit en minna um slíkar helgar hér á
höfuðborgarsvæðinu.
Okkur langar að fá kraftmiklar
konur til okkar og bjóða upp á
jóladekur og notalegheit á aðvent-
unni. Hér er allt á sama stað; nýtt
spa með heitum og köldum potti,
saunu og flotlaug þar sem hægt er
að fljóta undir dansandi norður-
ljósasýningu, nudd, yoga og nýja og
flotta snyrtistofu sem heitir Fegurð
og Spa.
Hótel Ísland er í stöðugri endur-
nýjun og þar er flott Bistró sem
framreiðir mat sem kitla bragðlauk-
ana. Það er því auðveldlega hægt að
láta fara vel um sig hér hjá okkur,
upplifa og njóta,“ segja þær stöllur
fullar af tilhlökkun. Hótel Ísland er
vel staðsett, Laugavegurinn,
miðbærinn og Kringlan eru í
göngufæri og því tilvalið að nýta
tækifærið og sameina jólainnkaupin
og afslöppun þar sem dekurhelgin
er í desember þegar jólaundirbún-
ingurinn er hafinn. „Við eigum að
njóta aðventunnar, dekra við sjálfar
okkur og aðra og ekki gleyma því
að njóta“ segja Gígja, Heiðdís og
Sunna að lokum.
Innifalið í pakkanum er gisting
fyrir tvo með morgunverði ásamt
viðgjörningi í mat og drykk,
snyrtingu, jóga og gjafapakka.
Pakkinn miðast við tveggja manna
herbergi í tvær nætur og kostar
87.000 krónur eða 43.500 krónur á
mann.
Þær benda á að fólk sem vill og
þarf að sækja sér læknisþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu þá er Hótel
Ísland með samning við sjúkra- tryggingar Íslands og fólk getur því nýtt sér gistingu hjá þeim.
:: Hótel Ísland :: Vinkonuhelgi á höfuðborgarsvæðinu fyrir konur af landsbyggðinni ::
Langar að fá kraftmiklar konur í jóla-
dekur og notalegheit á aðventunni
VERSLÓ2016
FRábæR SkEmmtIAtRIðI hÚSIð OPNAR kL.19:30hAPPADRættI
í höLLINNI LAUgARDAgINN 5. NÓVEmbER
ÞRIggJA RÉttA máLtíð Að hættI EINSA kALDA
F O R R É t t U R
Parmaskinka kjúklingur, chorizó, beikondöðlur, ricotta,
confekttómatar,
basilika, parmesan-púður
A ð A L R É t t U R
Sinneps-estragonhjúpaður
lambaframhryggur. Sætkartöflukaka, spínat, sveppir,
ætilþyrslar, garðablóðbergsósa
E F t I R R É t t U R
hindberjasvampur, súkkulaðimús, hindberjamarengs,
súkkulaðiganache, súkkulaðiperlur.
Skemmtunin er opin öllum fyrirtækjum,
félagasamtökum, saumaklúbbum,
smíðaklúbbum, kaffistofuhópum,
stórum sem smáum, háum sem lágum.
ALLIR hJARtANLEgA VELkOmNIR ;-)
18 áRA ALDURStAkmARk
Verð á mat, skemmtun
og ball kr. 9.800,-
Verð á ball 2.500,-
Félag kaupsýslumanna
í Vestmannaeyjum
borðapantanir hjá grétu í Eyjavík ( greta@eyjavik.is og í síma 893-1511 )
Eurobandið
Friðrik Ómar og Regína
Leó Snær og Sara Renee
Sindri Freyr og félagar