Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 17
17Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
:: Unga fólkið og Alþingiskosningar á laugardaginn ::
Birgitta Ósk Valdimarsdóttir.
Kristín Erna Sigurlásdóttir.Einar Thor Ísfjörð.Anton Bjarnason.
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá mörgum að kosningar
til Alþingis muni fara fram
laugardaginn n.k. Upphaflega
áttu kosningarnar að vera 22.
apríl 2017 en í ljósi óróleikans í
kjölfar Panamaskjalana var
þeim flýtt eins og frægt er orðið.
Þeir sem fylgst hafa með
umræðunni að undanförnu hafa
tekið eftir því að valkostirnir á
kjörseðlinum munu vera
fjölmargir í ár en til viðbótar við
þá sex flokka sem þegar sitja á
þingi, munu sex aðrir flokkar
gefa kost á sér. Að gefnu tilefni
kannaði blaðamaður hug ungs
fólks í Vestmannaeyjum, annars
vegar hvernig þeim líst á
kosningarnar og pólitíkina
almennt og hins vegar hvort það
hafi gert upp hug sinn.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Þær leggjast bara ágætlega í mig.
Þetta verður spennandi í ár þar sem
það eru margir flokkar í framboði
og nokkrir nýir. Það verður
áhugavert að sjá hvaða nýju flokkar
komast inná þing og einnig hvort að
núverandi ríkisstjórn standi
storminn af sér.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Ekki alveg, þarf að kynna mér
flokkana betur, enda mikið úr að
velja.
Þórir Bergsson
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Alþingiskosningarnar leggjast bara
almennt vel í mig og er ég spenntur
fyrir komandi tímum. Það væri
samt skemmtilegra ef fleiri mundu
taka virkan þátt í íslenskri pólitík.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Píratar alla leið.
Anton Bjarnason
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Þessar kosningar leggjast bara
ágætlega í mig. Ég er ekkert mikið
að missa mig yfir pólitík, læt aðra
um það.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Já ég kýs alltaf það sama, veit bara
ekki hvort það sé sniðugt að segja
það þar sem margir hér um borð í
Gullberginu eru rammpólitískir.
Einar Thor Ísfjörð
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Kosningarnar leggjast vel í mig.
Það er kominn tími á þær. Íslensk
pólitík er full af fólki sem hugar
meira að eigin hagsmunum heldur
en hagsmunum þjóðarinnar. Þar er
líka gott fólk en þeim þarf að fjölga.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Ég er orðinn 90% á því hvað ég
kýs. Kynni mér stefnur flokkana
enn betur í vikunni áður en ég kýs.
Gísli Matthías Sigmarsson
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Þær leggjast bara vel í mig, það
hefur verið gaman og oft mjög
spaugilegt að fylgjast með hversu
langt rógsherferðir gegn ýmsum
flokkum ganga. Ég held að íslensk
pólitík sé að taka svolítið nýjan
vinkil núna þar sem vitundarvakn-
ing virðist vera í samfélaginu í
kjölfar afhjúpunar á spillingu í
fjölmiðlum undanfarið. Það er
augljóslega á mörgu sem þarf að
taka á og það verður athyglisvert að
sjá niðurstöður þessarar kosninga.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Já, ég hef ákveðið mig og þarf ég
að vísu að leggja á mig smá
ferðalag til að kjósa þar sem ég er
staddur í austurhluta Tékklands og
þarf að fara í sendiráð Íslands í Prag
sem er fjögurra tíma lestarferð
hvora leið. Kannski maður geri sér
bara þriggja daga helgi, þar enda
Prag skemmtileg borg.
Kristín Erna Sigurlásdóttir
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Kosningarnar leggjast í mig á
svipaðan hátt og áður þar sem er
mikið rætt og miklu lofað en lítið
staðið við og það verður líklega
þannig áfram.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Ég hef gert upp hug minn og ég
mun skila auðu.
Erna Valtýsdóttir
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Þetta leggst bara ágætlega í mig, ég
er vongóð og bjartsýn fyrir
framtíðinni. World peace.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Nei ég hef ekki gert það og mun
líklega ekki gera það fyrr en ég kem
í kjörklefann.
Aron Hugi Helgason
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Alþingiskosningarnar leggjast
virkilega vel í mig, þrátt fyrir að
það sé fremur undarlegt að velta
fyrir sér hvað skal kjósa í skamm-
deginu í október. Íslensk pólitík er
einskonar skrípaleikur og kemur
það því ekki á óvart að öllu fögru er
lofað, en mörgu hverju ekki
framfylgt. Þar sem engum stjórn-
málaflokki ber skylda að framfylgja
loforðunum.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Með hverjum deginum sem líður
verð ég óákveðnari með mitt
atkvæði. Ef það hefði verið spurt
mig fyrir viku þá var ég handviss
hvert atkvæðið mitt fær. En vegna
umfjöllunar undanfarna daga finnst
mér flokkarnir einungis vera að
tyggja sömu tugguna. Ég vil sjá
nýjan ferskan flokk á Alþingi sem
taka betur á hlutunum. Má þar
sérstaklega nefna húsnæðismál þar
sem þau er mér efst á baugi.
Birgitta Ósk Valdimarsdóttir
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Kosningarnar leggjast ekki vel í
mig.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Nei, hef ekki enn gert upp hug
minn.
Hannes Jóhannsson
Hvernig leggjast komandi
Alþingiskosningar í þig og íslensk
pólitík almennt?
Ég hef mjög takmarkaðan áhuga á
pólitík og hef því lítið verið að velta
mér uppúr komandi alþingiskosn-
ingum.
Hefur þú gert upp hug þinn?
Nei, hef ég ekki gert upp hug minn.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir.
Erna Valtýsdóttir.Hannes Jóhannson.
Aron Hugi Helgason.Þórir Bergsson.Gísli Matthías Sigmarsson.
Flestir enn að spá og spekúlera
Nú er byrjað að bora vinnsluhol-
ur fyrir varmadælustöðina sem á
að rísa við Hlíðarveg. Boraðar
verða þrjár vinnsluholur að því
er Ívar Atlason, forstöðumaður
tæknideildar HS-Veitna í
Vestmannaeyjum tjáði Eyjafrét-
tum. Hver hola verður 20
tommur í þvermál og 40 metra
djúp og fóðruð fyrstu 20
metrana. Borinn sem borar
vinnsluholurnar heitir Saga og er
frá Jarðborunum.