Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Page 18
18 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 EYJAFRÉTTIR/ Miðvikudagur 26. október 2016
Náttúruauðlindir Íslands eru ekki
margar miðað við sum önnur lönd
en ríkulegar. Þær helstu eru
jarðvegurinn /gróðurinn, lífríki
sjávar, vatnsföll og stöðuvötn,
jarðhitasvæði, byggingarefnisnámur
og náttúrufyrirbæri eða svæði með
fjölbreyttum og/eða sérstæðum
jarðmyndunum, landslagi og
vistkerfum.
Nútíð og framtíð okkar er háð
nytjum þessrar náttúru. Þá getum
við horft á töluverða fjölbreytni, allt
frá landbúnaði og fiskveiðum til
tekna af ferðaþjónustu sem mikill
meirihluti ferðamanna tekur þátt í
vegna náttúru landsins. Ófært er að
stunda þessar nytjar án náttúru- og
umhverfisverndar. Á milli þeirra
tveggja verkþátta verður að vera
jafnvægi. Við vitum vel að sú
staðreynd felst í hugtakinu sjálf-
bærni en það nær líka til félagslegs
og efnahagslegs jafnvægis.
Sjálfbærni er þríþætt hugtak. Og
hvort sem er í landbúnaði eða
orkuöflun verður að vega og meta
alla þrjá þættina í hvert sinn sem
teknar eru meginákvarðanir eða mat
lagt á lög, framkvæmdir og
stefnubreytingar. Sauðfjárbúskapur
er til dæmis ekki bara spurning um
beitarmál eða beingreiðslur, heldur
líka um félagslegt öryggi í sveitum,
góða matvælaframleiðslu, mótvægi
við loftslagsbreytingar, jöfnuð í
tekjum, dreift álag á umhverfið í
landinu öllu og endurheimt
landgæða, svo eitthvað sé nefnt. Ný
vatnsvirkjun snýst um meira en
orkuverð eða stærð. Hún snýst líka
til dæmis um félagsleg áhrif í
héraði, hagkvæmni fyrir þjóðfélagið
í heild, bein umhverfisáhrif og
samfélagsleg gildi í ólíkum geirum,
allt frá ferðaþjónustu til iðnaðar eða
samgangna.
Þegar við Vinstri græn leggjum
áherslu á sjálfbærni sem leiðarljós
atvinnuvega og náttúrunytja, þá er
það gert á þessum breiða grunni.
Ekki með einhliða og ranga áherslu
á hagræðinguna eina, ágóðan einan,
þörf einnar atvinnugreinar eða eins
fyrirtækis eða án tillits til alvar-
legrar stöðu loftslagsmála. Við
hugsum heildrænt og hvetjum ykkur
til hins sama. Í Suðurkjördæmi búa
rúmlega 35 þúsund kjósendur og
allmargir erlendir ríkisborgarar. Á
ferðum okkar og fundum og í
samtölum við fjölmarga skynjum
við vel hve velferð fólks er
alvarlega ógnað. Við skynjum
kröfur um að bæta langvinnan
niðurskurð. Að því stefnum við. Á
bak við kröfur um betri lífsskilyrði
sést svo í óskir um að geta búið sem
víðast í þessu stærsta kjördæmi
landsins, á nútímalegan hátt, með
félagslegu öryggi og fjölbreyttum
menntunar- og atvinnutækifærum.
Þingmenn VG úr kjördæminu væru
traustir talsmenn jöfnuðar, fjöl-
breyttra byggða, sjálfbærni og
samkenndar.
Ykkar er valið.
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir bóndi
og Ari Trausti Guðmundsson
jarðvísindamaður skipa tvö efstu
sætin á lista VG í Suðurkjördæmi.
Vinstri græn
- það er málið
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir. Ari Trausti Guðmundsson.
Hluti af haustinu
www.n1.is facebook.com/enneinn
Haustið er tíminn
til að hoppa í polla
Dunlop
Blizzard
barnastígvél
Þessi vinsælu
stígvél fást nú á N1
í bleiku og bláu.
Endingargóð, sterk
og loðfóðruð fyrir
íslenska veðráttu.
Stærðir: 24-35
Verð: 6.700 kr.
Fást í eftirtöldum N1 verslunum
Reykjavík • Blönduós • Akureyri • Húsavík • Reyðarfirði
Höfn • Grindavík • Ólafsvík • Patreksfjörður • Vestmannaeyjar
Á mánudaginn, þann 24. október
voru konur hvattar til að leggja
niður störf frá kl.14:38 og sýna
samstöðu. Konur eru með 29,7%
lægri tekjur að meðaltali og fá þar
með ekki laun fyrir síðustu 2
klukkustundir og 22 mínútur á degi
hverjum. Búið var að boða til
samstöðufundar við Austurvöll og
ákváðu nokkrar konur hér í bæ, þó
með skömmum fyrirvara að boða til
samstöðufundar við Bárustíg.
Á síðu Jafnréttisstofu segir að
margvíslegar skýringar geti verið á
launamun kynjanna og fer nokkuð
eftir því við hvað er miðað. Karlar
vinna almennt lengri vinnudag en
konur, sem er hluti skýringarinnar.
Þeir eru líka frekar í störfum sem
meira eru metin til launa í samfé-
laginu. Þetta tvennt skýrir að hluta
til almennan launamun kynjanna.
Í könnunum á kynbundnum
launamun er tekið tillit til þessara
þátta og einnig er yfirleitt tekið tillit
til þátta eins og menntunar, aldurs
og starfsaldurs. Þegar tekið hefur
verið tillit til þessa í rannsóknum
innan fyrirtækja og stofnana,
stendur oftast eftir launamunur á
bilinu 7% til 18% sem ekki verður
skýrður á annan hátt en þann að
kyn ráði. Sá munur er kallaður
óútskýrður eða kynbundinn
launamunur.
Þessi munur kemur fyrst og fremst
fram í fríðindum, sporslum og
óunninni yfirvinnu sem karlar
hljóta í mun ríkari mæli en konur.
Að öllum líkindum skiptir hér
miklu máli mismunandi staða
kynjanna gagnvart heimili og
fjölskyldulífi. Með réttu eða röngu
er það mat margra atvinnurekenda
og stjórnenda að konur séu
óáreiðanlegra vinnuafl því þær þurfi
mun frekar en karlar að sinna
börnum og heimili, séu því frekar
fjarverandi og geti síður unnið
yfirvinnu. Á síðustu árum hefur
heldur dregið saman með kynjunum
hvað atvinnutekjur varðar en
kynbundinn launamunur er þó
viðvarandi samkvæmt könnunum.
Um 50 til 60 konur mættu á
Bárustíginn sem er góð mæting því
fyrirvarinn var stuttur. Drífa Þöll
Arnardóttir einn af skipuleggjund-
um fundarins tók fyrst til máls og
kom inná þessa punkta hér að ofan.
Því næst tók til máls Hafdís
Snorradóttir sem talaði um jafnrétti
og náði í minnargarbrot úr æskunni
þar sem hún og tvíburabróðir
hennar fengu allt jafnt hvort sem
það var dúkka eða bíll. Enda á það
að vera þannig.
Næst tók til máls Sigrún Inga
Sigurgeirsdóttir. Hún hafði frá
mörgum góðum sögum að segja frá
sér og úr samfélaginu. Hún talaði
um stemninguna á vinnustöðum,
hvernig konur og karlar haga sér
ólíkt, óréttlætið við að einu sinni
fóru einungis karlar bara út í Eyju
að veiða og þegar hún varð fyrsti
kvenforseti bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum og svo margt
fleira.
Dagskrána enduðu svo á því að
starfsmenn leikskólans Sóla tóku
lagið,,Já, ég þori, get og vil” við
góðar undirtektir.
Konur sýndu samstöðu á Kvennafrídaginn