Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 19
19EYJAFRÉTTIR/ Miðvikudagur 26. október 2016
á Hótel Íslandi og Heilsu og Spa
Vinkonu helgi
Er ekki komin tími fyrir vinkonurnar eða saumklúbbinn að lyfta sér
upp og leyfa sér smá dekur nú þegar myrkrið og haustið er að færast
yfir? Hótel Ísland, Heilsa og Spa og Fegurð og Spa í Ármúla 9,
bjóða upp á endurnærandi helgarpakka á frábæru verði. Helgin sem
um ræðir er 2.- 4. desember.
INNIFALIÐ Í PAKKANUM ER:
• Gisting fyrir tvo með morgunverði
• Þriggja rétta máltíð fyrir tvo á Bistro Hótel Ísland (án drykkja)
• Hádegisverður fyrir tvo á Bistro Hótel Ísland (án drykkja)
• Aðgangur að Heilsu og Spa á meðan dvöl stendur
• Freyðivínsglas í Heilsu og Spa
• Smáréttabakki í Heilsu og Spa
• Baðsloppur og handklæði í spa
• Sweet Cheeks jarðaberja og rabbabara andlitsmeðferð
ásamt litun og plokkun hjá Fegurð og Spa
• Yoga tími
• Gjafapakki á herbergi
Pakkinn miðast við tveggja manna herbergi í tvær nætur
og kostar 87.000 kr. (aðeins 43.500 kr. á mann).
Bókanir sendist á booking@hotelisland.is
Vinsamlegast hafið samband við Heilsu og Spa fyrir frekari upplýsingar:
heilsaogspa@heilasogspa.is sími 595 7007
Hótel Ísland Heilsa og Spa Ármúla 9 hotelisland.is
Uppbyggingarsjóði Suðurlands,
sem er hluti af Sóknaráætlun
Suðurlands, bárust nú í síðari
úthlutun ársins 86 umsóknir og var
52 verkefnum veittur styrkur.
Heildarfjárhæð styrkveitinganna
nam um 30 milljónum. Úthlutað var
um 17 milljónum króna til 39
menningarverkefna og um 13
milljónum til 13 nýsköpunarverk-
efna.
Alls fengu Eyjamenn níu styrki, sjö
til menningarverkefna og tvö til
nýsköpunarverkefna.
Þeir Eyjamenn sem fengu styrki
til menningarverkefna, eru:
> Heimaey 1973: Einvígi við
jarðeldinn, heimildamynd Gísla
Pálssonar og Valdimars Leifssonar
800.000 krónur.
> Gagnaver Eldheima Vestmanna-
eyjabær 600.000 krónur.
> Benedikt Búálfur Leikfélag
Vestmannaeyja 400.000 krónur.
> Lundapysjur í Vestmannaeyjabæ
Sæheimar- Fiskasafn 400.000
krónur.
> Lögin í gosinu - tímamótatón-
leikar á tímamótum, Vestmann-
eyjabær 400.000 krónur.
> Saga og súpa í Sagnheimum
2017, Bakvarðahópur Sagnheima,
byggðasafns 300.000 krónur.
> Úr kompunni í 3D. Sýning
safngripa á þrívíddarformi Sagn-
heimar, byggðasafn 300.000 krónur.
Þá fengust styrkir til vörumerkja-
hönnun fyrir:
> Eldfell Volcanic Red Ale Einsi
Kaldi Veisluþjónusta ehf fyrir The
Brothers Brewery 1.000.000 krónur.
> Rafmagnslest um Heimaey - arð-
semismat SegVeyjar ehf. 500.000
krónur.
„Eins og komið hefur fram vinnur
Vestmannaeyjabær núna að
undirbúningi framkvæmda til að
fjölga íbúðum fyrir aldraða og
fatlaða. Eftir að sá undirbúningur
hófst hefur verið innleidd ný
reglugerð um stofnframlög ríkis og
sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignar-
stofnanir og almennar íbúðir,“ segir
í bókun bæjarráðs í gær.
Þar kemur fram að með reglugerð-
inni sé Íbúðarlánasjóði falið það
hlutverk að veita stofnframlög til
byggingar og kaupa á íbúðum til að
stuðla að því að í boði verði
leiguíbúðir á viðráðanlegu verði
fyrir þá sem þurfa á því að halda,
þar með talið fyrir aldraða og
fatlaða.
Bæjarráð samþykkti að fela
bæjarstóra að kanna forsendur þess
að sækja um í tilgreindan sjóð og
skila inn endanlegri umsókn.
Stofnframlög ríkisins til
byggingar eða kaupa á
almennum íbúðum
:: Uppbyggingar-
sjóður Suður-
lands úthlutar 30
milljónum króna ::
Einvígi við
jarðeldinn
og raf-
magnslest
um
Heimaey
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is