Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Qupperneq 20
20 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
:: Fjölmenni á 75 ára afmælishátíð Rauða kross Vestmanneyja ::
Hvatning að finna þann mikla
stuðning og velvild hér í Eyjum
:: Það gerir okkur starfið léttara og ánægjulegra, sagði Geir Jón formaður ::
Það mættu margir til að fagna með
Rauða kross fólki 75 ára afmælishá-
tíð Rauða krossins í Vestmanna-
eyjum. Opið hús var í höfuðstöðv-
unum í Arnardrangi og boðið upp á
veitingar í Akóges. Þar fyrir utan
var búnaður sem Rauði krossinn
hefur forræði yfir, sjúkrabíll og
fjöldahjálparkerra með útbúnaði
fyrir 30 manna skyndihjálparstöð. Í
ræðu við þetta tilefni sagði Geir Jón
Þórisson, núverandi formaður
Rauða krossins í Vestmannaeyjum
að það væri öllum sem starfa að
málefnum Rauða krossins mikil
hvatning að finna þann mikla
stuðning og velvild sem ríkir hér í
Eyjum. Það gerði þeim starfið
léttara og ánægjulegra.
„Eins og öllum er kunnugt byggir
starfið á sjálfboðaliðum, fólki sem
er tilbúið að koma að ýmsum
verkefnum okkar deildar til að bæta
mannlífið, veita fyrstu hjálp, útbúa
fatapakka með notadrjúgum fatnaði
sem prjónakonur okkar sjá um fyrir
þá sem minna mega sín og vera til
staðar þegar eitthvað bjátar á.
Aðstoða ung grunnskólabörn af
erlendu bergi við lestur til að
auðvelda þeim íslenskuna. Skyndi-
hjálparleiðbeinendur, heimsókna-
og ökuvinir og svo má lengi telja.
Allt verkefni sem skipta svo miklu
máli nær og fjær. Í dag er okkur í
stjórn Rauða krossins í Vestmanna-
eyjum efst í huga þakklæti og aftur
þakklæti til Eyjamanna, forráða-
manna Vestmannaeyjabæjar og
stjórnenda fyrirtækja hér í bæ fyrir
ómetanlegan stuðning.“
Geir Jón þakkaði fyrir hönd
stjórnar öflugu sjálfboðafólki fyrir
ómetanleg störf sem skipti svo
miklu máli fyrir starfið. Líka Ástu
Kristinsdóttur, starfsmanni
deildarinnar og Eddu Angantýs-
dóttur sem starfaði lengi á skrif-
stofunni. „Og sjálfboðaliðum okkar
fyrir ómetanleg störf í gegnum öll
árin. Þá vil ég þakka öllum
samstarfsaðilum okkar s.s.
Lögreglustjóranum í Vestmanna-
eyjum, Björgunarfélagi Vestmanna-
eyja, starfsfólki Sjúkrahússins,
lögreglumönnum í Vestmanna-
eyjum, en störf okkar að neyðar-
vörnum í Eyjum hefur tengt okkur
vel saman. Forráðamönnum
Bókasafns Vestmannaeyja og
Grunnskóla Vestmannaeyja, í
verkefni okkar með grunnskóla-
börnum og Eimskipafélaginu sem
flytur allt fyrir okkar bæði til og frá
.Eyjum endurgjaldslaust og svo get
ég lengi talið. Ég vil að lokum
þakka Hermanni Einarssyni, fyrrum
formanni deildarinnar fyrir framtak
hans við útgáfu afmælisrits okkur
sem dreift var í hvert hús í bænum.
Var þar vel að verki staðið.“
Geir Jón sagði að á þessum merku
tímamótum sé litið yfir farinn veg
en ekki sé ætlunin að staðnæmast.
Heldur líta fram á veginn og gera
enn betur ef það er nokkur leið.
Hvatti hann alla velunnara til að
styðja Rauða krossinn í Vestmanna-
eyjum til áframhaldandi vaxtar svo
hún verði þess megnug að sinna
sínum verkefnum af alúð og
metnaði. „Einnig vil ég hvetja þá
sem gætu hugsað sér að vera
sjálfboðaliða að koma til starfa með
okkur,“ sagði Geir Jón sem að
endingu bar gestum kveðjur
forráðamanna Rauða krossins á
Íslandi sem ekki gátu komið.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Það var flott veisluborðið í 75 ára afmæli Rauða krossins.
Bryndís, Þórunn, Aðalheiður og Ragnhildur. Hermann Einarsson fyrrum formaður og Geir Jón núverandi formaður.
Ásta Kristinsdóttir starfsmaður, Sif Svavarsdóttir og Friðrikka
Svavarsdóttir.
Edda Angantýsdóttir fyrrum starfsmaður og Sigmar Georgsson fyrrum
formaður.