Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Side 21
21Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
Aðalfundur Kótilettuklúbbs
Vestmannaeyja var hátíðlegur
haldinn á fimmtudaginn á Háloftinu
þar sem mættu liðlega 100 manns.
Dagskráin var einföld, að borða
mikið af vel brösuðum kótelettum,
kartöflum, grænum baunum,
rauðkáli og rabbabarasultu. Á eftir
var svo Royalbúðingur með
karamellubragði og þeyttum rjóma
sem vakti upp góðar minningar hjá
þeim sem eldri eru.
Þetta er þriðja Kótilettukvöldið sem
þeir félagar, Pétur Steingrímsson,
lögreglumaður og Gunnar H.
Gunnarsson, stórkokkur standa fyrir
og rennur allur ágóði til líknarmála.
Maturinn brást ekki og það gerðu
heldur ekki Snorri Jóns, Stebbi skó
og Jói Listó sem fóru með gaman-
mál.
Úr varð notaleg kvöldstund með
góðu og skemmtilegu fólki og það
var gott að vita að dágóð upphæð
rann til Alzheimer-stuðningsfélags í
Vestmannaeyjum sem er nýstofnað.
Kótilettukvöldið er upplyft-
ing í skammdeginu
:: Allur ágóði rann til Alzheimer-stuðningsfélags í Vestmannaeyjum ::