Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 22
22 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016 Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
:: Kristján Guðmundsson, nýr þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu ::
Vil búa til lið sem setur
þrýsting á ofurliðin í deildinni
Fyrr í mánuðinum tók hinn
reynslumikli þjálfari Kristján
Guðmundsson við karlaliði ÍBV í
knattspyrnu. Kristján samdi til
þriggja ára og mun setjast að í
Eyjum. Á ferlinum hefur Kristján
stjórnað liðum á borð við ÍR,
Þór, Keflavík, Val, HB Þórshöfn
og núna síðast Leikni Reykjavík.
Árið 2006 vann Kristján
bikarmeistaratitil með Keflavík
og árið 2010 varð hann
færeyskur meistari með HB
Þórshöfn.
„Það verður að skoða
leikmannahópinn og samsetningu
hans, samningsstöðu leikmanna og
hvernig þarf að styrkja hópinn af
leikmönnum til að liðið verði betra.
Ræða við knattspyrnuráð, ræða við
leikmenn og athuga líkamlegt og
andlegt ástand þeirra og skoða betur
aðstöðuna sem í boði er fyrir
leikmenn til að æfa knattspyrnu
bæði í Eyjum og uppi á landi,“
sagði Kristján þegar hann var
spurður um sitt fyrsta verk sem
þjálfari ÍBV.
Breytingar á liðinu? Hvernig viltu
byggja upp liðið? „Helst af öllu
myndi ég vilja hafa kjarnann í
liðinu Eyjamenn og er það ákveðið
ótímasett markmið í mínum huga.
Það verða breytingar á leikmanna-
hópnum en þó vonandi ekki
óeðlilega miklar þannig að einhver
stöðugleiki haldist þar.“
Einhverjar áherslubreytingar á
spilamennsku liðsins og hvernig
fótbolta viltu spila?
„Ég vel leikstíl og leikfræði eftir
þeim leikmannahóp sem ég vinn
með í hvert skipti þannig að það
henti þeim einstaklingum sem við
höfum yfir að ráða. Hvað verður hjá
ÍBV á næsta sumri er ekki komið í
ljós en liðin sem ég hef sett saman á
ferlinum hafa flest sótt hratt og
varist af ákafa.“
Væntingar fyrir tímabilið?
„Á meðan við erum ekki búnir að
setja saman endanlegan
leikmannahóp fyrir næsta ár get ég
ekki svarað þessu á annan hátt en
að við viljum búa til lið sem losar
sig við fallspennuna og þróar sig
svo í að verða lið sem setur þrýsting
á ofurliðin í deildinni.“
Mikið hefur verið fjallað um skipan
nýs knattspyrnuráðs og formanns
þess undanfarna daga og hefur
umræðan að miklu leyti einkennst
af neikvæðni. Að sama skapi hefur
ekki verið ráðinn nýr framkvæmda-
stjóri félagsins og segir sagan
manni það að sá einstaklingur eigi
ekki eftir að endast lengi í starfi.
Hvernig er fyrir þjálfara að koma
inn í svona ólguástand?
„Nú er verið að ganga frá ráðningu
á framkvæmdastjóra sem knatt-
spyrnuráðið er mjög ánægt með og
er það vel. Ég er vanur tíðum
framkvæmdastjóraskiptum í starfi
mínu sem knattspyrnuþjálfari og læt
slíkt ekki á mig fá en auðvitað
þurfum við sem störfum í þessum
kröfuharða heimi knattspyrnunnar
að hjálpast að við að gera starf
hvers annars sem farsælast til að
skapa árangursríkt umhverfi sem
nær því besta frá okkur öllum.
Hvað varðar þau átök sem skapast
hafa við breytingar á knattspyrnu-
ráði treysti ég því að fólk tali saman
og leysi sín mál þannig að
niðurstaðan styrki félagið ÍBV til
framtíðar.“
Síðastliðin fimm ár hefur nýr
þjálfari tekið við ÍBV liðinu fyrir
hvert tímabil en hætt, ýmist á
miðju tímabili eða strax eftir það,
oftast menn sem skrifað hafa upp
á þriggja ára samning við félagið.
Munu Eyjamenn koma til með að
sjá breytingu á þessu mynstri á
næsta ári?
„Það er óskandi að svo verði, það
er allavega stefnan. Það er auðvitað
hægt að setja saman lið sem á að
skila úrslitum á einu ári með
einhverri sprengju en oftast er
farsælast að byggja traustan grunn
sem hægt er að byggja lið á til
frambúðar. Slíkt tekur mislangan
tíma og við skulum sjá hvernig
okkur gengur á næstu mánuðum.“
Hvernig leggst það í þig að flytja til
Eyja? Hefur þú einhverja tengingu
hingað? „Ég veit það eitt að ég ætla
að láta mér líða vel í Eyjum í leik
og starfi. Njóta þess að kynnast
nýju fólki, kynnast samfélaginu og
láta gott af mér leiða. Mágkona
mín og fjölskylda hennar búa í
Eyjum og taka væntanlega vel á
móti mér.“Kristján Guðmundsson
Grétar Þór Eyþórsson lék á
dögunum sinn 300. leik fyrir ÍBV á
ferlinum þegar liðið mætti Gróttu á
Seltjarnarnesi en leiknum lyktaði
með stórsigri Eyjamanna 18:26.
Með liðinu hefur Grétar orðið
deildarmeistari, Íslandsmeistari og
síðast bikarmeistari árið 2015 þegar
ÍBV lagði FH naumlega 23:22.
Hvenær spilaðir þú þinn fyrsta leik
fyrir meistaraflokk?
Árið 2003. Erlingur Richardsson
gaf mér eldskírnina og það hefur
aldeilis reynst honum vel enda
orðinn tvöfaldur heimsmeistari
félagsliða. Hann talar oft um að ég
hafi opnað nýjar víddir í þjálfunar-
aðferðum sínum eftir að hann gaf
mér tækifærið.
Var alltaf draumurinn að vera
handboltamaður?
Nei og já, þessi handboltafjölskylda
hér í Eyjum er bara þannig að þú
vilt vera hluti af henni og mun ég
væntanlega aldrei yfirgefa hana.
Tek tíu ár í viðbót sem leikmaður
og verð svo í kringum liðið restina
af ævinni.
Hvernig er tilfinningin að vera
búinn að ná 300 leikjum fyrir
ÍBV?
Þokkaleg, vantar um 50 leiki í að ná
Sigga Braga. Þegar ég fer fram úr
honum þá held ég partý og býð bara
SB og við fögnum því rækilega.
Nú hefur þú borið fyrirliðabandið
í þó nokkrum leikjum, hversu
mikla þýðingu hefur það fyrir þig
að fara fyrir liðinu?
Ég er í raun varafyrirliði en nýt
góðs af því að Magnús Stefánsson
er fyrirliði því hann missir af svo
mörgum leikjum vegna eymsla að
ég er nánast alltaf fyrirliði. Til
gamans má geta að ÍBV hefur aldrei
tapað leik þar sem ég er með
bandið.
Hver er metnaður liðsins á
yfirstandandi tímabili?
Metnaðurinn er gríðarlega mikill
enda erum við allir keppnismenn.
Draumurinn er að vinna allar þessar
dollur en til þess að það gerist þarf
allt að ganga upp. Markmiðin eru
skýr og það er að fara í hvern leik
til þess að vinna hann og helst með
tíu mörkum.
:: Grétar Þór Eyþórsson með 300 leiki ::
ÍBV hefur aldrei tapað leik
þar sem ég er með bandið
:: Treysti því að fólk tali saman og leysi sín mál þannig að niðurstaðan styrki félagið ÍBV til
framtíðar ::