Fréttir - Eyjafréttir - 26.10.2016, Blaðsíða 23
23Eyjafréttir/ Miðvikudagur 26. október 2016
ÍÞróTTir
u m S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Handbolti | Olísdeild karla :: ÍBV 26:27 Afturelding ::
Vængbrotið lið Eyja-
manna barðist hetjulega
Handbolti | Olísdeild kvenna :: ÍBV 21:26 Haukar ::
Framundan
Fimmtudagurinn 27. október
Kl. 18:30 Selfoss - ÍBV
Olís-deild karla
Föstudagurinn 28. október
Kl. 18:30 ÍBV U - Stjarnan U
Olís-deild karla
Laugardagurinn 29. október
Kl. 15:00 Fram - ÍBV
Olís-deild kvenna
Laugardagurinn 5. nóvember
Kl. 15:00 Grótta - ÍBV
Olís-deild kvenna
Laugardagurinn 5. nóvember
Kl. 14:00 ÍBV2 - Mílan
Coca Cola bikar karla
Fram 6 5 1 0 147 11
Haukar 6 5 0 1 140 10
Stjarnan 6 4 1 1 168 9
Valur 6 3 0 3 143 6
ÍBV 6 3 0 3 172 6
Selfoss 6 1 0 5 154 2
Grótta 6 1 0 5 137 2
Fylkir 6 1 0 5 113 2
Olísdeild kvenna
Afturelding 8 7 0 1 226 14
Valur 8 5 0 3 205 10
FH 8 4 1 3 225 9
ÍBV 8 4 1 3 224 9
Stjarnan 8 3 2 3 190 8
Selfoss 8 4 0 4 244 8
Grótta 8 3 1 4 195 7
Fram 8 3 1 4 231 7
Haukar 8 3 0 5 236 6
Akureyri 8 1 0 7 199 2
Olísdeild karla
Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði
fyrir sterku liði Hauka þegar liðin
mættust í Vestmannaeyjum á
laugardag í Olís-deildinni. Gestirnir
skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins og
virtust vera einbeittari í öllum
sínum aðgerðum. ÍBV tókst hins
vegar að vinna sig inn í leikinn og
voru búnar að jafna í 3:3 áður en
langt um leið.
Við tók hræðilegur kafli þar sem
Eyjakonur skoruðu ekki mark í tíu
mínútur og var munurinn allt í einu
orðinn heil fimm mörk og ljóst að
róðurinn yrði þungur úr því sem
komið var. Sandra Erlingsdóttir batt
enda á markaþurrð liðsins þegar
hún skorði sitt fyrsta mark í
leiknum á 19. mínútu. Á tímabili
var munurinn orðinn tvö mörk og
útlit fyrir endurkomu en annað kom
á daginn. Gestirnir frá Hafnafirði
settu í næsta gír og juku forystu
sína hægt og sígandi. ÍBV komst
aldrei nálægt því að jafna leikinn og
töpuðu sannfærandi með fimm
mörkum, lokatölur 21:26.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, mark-
maður Hauka, átti stórleik í
markinu með 23 skot varin og fólst
munurinn á liðunum ekki síst þar.
Einnig var vörn gestanna sterk og
átti ÍBV í stökustu vandræðum með
að finna glufur á henni allan leikinn
og þurfti ÍBV í rauninni að hafa
mun meira fyrir sínum mörkum en
Haukar.
Markahæstar í liði ÍBV voru þær
Sandra Erlingsdóttir og Ester
Óskarsdóttir með sjö mörk hvor.
Erla Rós Sigmarsdóttir var með átta
mörk varin og Guðný Jenný
Ásmundsdóttir sjö.
Eftir umferðina situr ÍBV í fimmta
sæti deildarinnar með sex stig en
Haukar eru í öðru sæti með átta
þegar sex umferðir eru búnar.
Drengskaparbragð
Eitt atvik í leiknum vakti sérstaka
athygli en það var þegar Hrafn-
hildur Skúladóttir, þjálfari ÍBV,
sýndi af sér afar íþróttamannslega
og sjaldséða framkomu í leiknum.
Það var þannig að leikmaður ÍBV lá
eftir á vellinum eftir samstuð og að
ósk Hrafnhildar fór sjúkraþjálfari
Hauka inn á völlinn til að hlúa að
leikmanninum án þess að hafa
fengið formlegt leyfi frá dómara þar
sem sjúkraþjálfari ÍBV var vant við
látinn.
Samkvæmt reglum átti dómarinn
engra annarra kosta völ en að dæma
tveggja mínútna brottvísun á
Haukaliðið sem þurfti fyrir vikið að
spila einum færri næstu mínúturnar.
Hrafnhildi þótti það ósanngjörn
niðurstaða í ljósi þess að hún hafði
beðið sjúkraþjálfara Hauka um að
hlúa að leikmanni sínum og tók því
einn af sínum leikmönnum út af á
meðan á refsingunni stóð. Aðdáun-
arvert hjá Hrafnhildi og sannarlega
íþróttinni til framdráttar.
Dagur Arnarsson náði einnig
merkum áfanga þegar hann spilaði
sinn 100. leik á ferlinum fyrir ÍBV
en sá leikur var gegn Haukum í
úrslitakeppninni á síðasta tímabili.
Dagur, sem er ungur að aldri og
ekki nema 21 árs gamall, spilaði
sinn fyrsta leik í meistaraflokki fyrir
þremur árum gegn Fjölni og síðan
þá hefur hann unnið sér sess sem
mikilvægur hlekkur í liði ÍBV.
Hvernig er tilfinningin að vera
búinn að ná þessum áfanga svona
snemma á ferlinum?
- Hún er bara góð, mjög gaman að
það sé haldið svona vel utan um
leikjafjölda leikmanna og er hægt
að þakka Sigga Braga fyrir það.
Er ÍBV góður staður fyrir unga
leikmenn til að bæta sig og fá
tækifæri inni á vellinum?
- Þetta er held ég einn besti
staðurinn á landinu fyrir unga
leikmenn að stíga upp. Það er mjög
góð aðstaða þar sem krakkar geta
mætt og æft nánast að vild. Einnig
er mikill metnaður í yngri flokka
starfinu og er akademían stór liður í
því.
Hversu langt stefnir þú í íþrótt-
inni? Hver er draumurinn?
- Draumurinn er alltaf að fara út og
spila sem atvinnumaður og maður
er alltaf að elta draumana sína
þannig ég stefni út.
Hversu langt telur þú ÍBV liðið
geta farið á þessu tímabili?
- Við tökum einn leik í einu núna og
bætum okkur leik fyrir leik.
Vonandi skilar það sér þangað sem
allir vilja vera á endanum.
ÍBV fékk topplið Aftureldingar í
heimsókn á fimmtudagskvöld í
Olís-deild karla. Leikurinn byrjaði
brösulega hjá báðum liðum þar sem
þau skiptust á að tapa boltanum.
Hin öfluga skytta Aftureldingar,
Birkir Benediktsson, braut ísinn
með góðu marki á 2. mínútu
leiksins og setti þar með tóninn
fyrir því sem koma skyldi.
Í stöðunni 2:2 sóttu gestirnir í sig
veðrið og náðu yfirhöndinni í
leiknum og fyrr en varði var staðan
orðin 2:6. Eyjamenn tóku þá leikhlé
sem virtist skila sér því eftir það var
meira jafnræði með liðunum en
áður. Það var síðan í lok fyrri
hálfleiks sem ÍBV tókst að jafna
metin í fyrsta skiptið frá því í
stöðunni 2:2. Viðsnúningurinn hélt
áfram og voru Eyjamenn einu marki
yfir þegar flautað var til hálfleiks,
staðan 14:13.
Í seinni hálfleik tóku gestirnir frá
Mosfellsbæ strax frumkvæðið og
leiddu leikinn allt til enda þó
forystan hafi alltaf verið naum.
Mikil spenna færðist í leikinn á
lokamínútunni en þá minnkaði
Sigurbergur muninn niður í eitt
mark og í kjölfarið tók Einar Andri
Einarsson þjálfari Aftureldingar
leikhlé. Ekki tókst gestunum þó að
halda boltanum nægilega vel og
munaði minnstu að hinn ungi og
efnilegi Elliði Viðarsson hefði náð
að jafna leikinn á lokasekúndu
leiksins en honum brást bogalistin
og lét verja frá sér. Lokastaða
26:27, virkileg svekkjandi niður-
staða fyrir ÍBV í þessum toppslag.
Nokkuð vantaði upp á að ÍBV
liðið gengi heilt til skógar en Agnar
Smári Jónsson meiddist snemma
leiks og kom ekki meira við sögu
eftir það. Að sama skapi var
Sigurbergur Sveinsson að glíma við
veikindi og var frammistaða hans í
samræmi við það. Ekki bætti úr
skák þegar Theodór Sigurbjörnsson
varð fyrir hnjaski í lok fyrri
hálfleiks en hann lét það ekki á sig
fá og kláraði leikinn. Ljósi punktur
leiksins var sá að margir ungir
leikmenn fengu að spreyta sig og
stóðu sig með prýði, bæði í vörn og
sókn.
Eins og svo oft áður bar Theodór
Sigurbjörnsson leik Eyjamanna
uppi en hann skoraði 11 mörk. Með
fjögur mörk hvor voru þeir
Sigurbergur Sveinsson og Kári
Kristján Kristjánsson. Kolbeinn
Aron Arnarsson var með 12 mörk
varin og Andri Ísak Sigfússon með
tvö.
Í fjórða sæti deildarinnar með
níu stig eftir átta umferðir
Coca Cola-bikar karla:
Eyjamenn úr leik
Karlalið ÍBV mætti Selfossi á
sunnudag í Coca Cola-bikarnum.
Eyjamenn voru tveimur mörkum
yfir í hálfleik, 15:13, en eftir
venjulegan leiktíma var staðan jöfn
28:28. Að lokinni framlengingu
stóðu Selfyssingar uppi með
pálmann í höndunum, lokastaða
33:32 og Eyjamenn þar með úr leik.
:: Dagur á 100 leiki með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur ::
Einn besti staðurinn á landinu
fyrir unga leikmenn að stíga upp
Agnar Smári skorar eitt af mörkum sínum.
Eyjamennirnir Kári Kristján
Kristjánsson og Theodór Sigur-
björnsson eru í 21 manna hóp
íslenska landsliðsins í handbolta
fyrir leiki gegn Tékklandi og
Úkraínu í undankeppni EM en
leikirnir munu fara fram í byrjun
nóvember. Miklar mannabreytingar
hafa orðið á landsliðinu fyrir þessa
leiki og hálfgerð kynslóðaskipti að
eiga sér stað og því fróðlegt að sjá
hvort okkar menn eigi eftir að ná að
setja mark sitt á liðið.
Kári og Teddi í landsliðinu