Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 33
Páskablaðið 18. apríl 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Ég mátti teljast heppinn að vera á lífi“
Það má segja að þúsund-þjalasmiðurinn Smári Hólm Kristófersson sé lifandi sönnun
þess að kraftaverkin gerast enn.
Hann lenti í alvarlegu bílslysi í
Danmörku fyrir nokkrum árum þar
sem hann hlaut heilaskaða og var í
kjölfarið stimplaður öryrki. Upp frá
því tóku örlögin í taumana. „Allt var á
niður leið hjá okkur fjárhaglega.“
Heppinn að vera í Benz
„Ég lenti í alvarlegu bílslysi árið 2008
þegar ég bjó í Danmörku, sem varð
til þess að ég varð óvinnufær og var
settur á öryrkjabætur. Gömlum Volvo
var ekið í veg fyrir Benzinn minn á 100
kílómetra hraða. Það var eldri kona
við stýrið og sem betur fer var enginn
í farþegasætinu því Volvoinn fór alveg
í vinkill og það voru 20 sentimetrar
eftir af farþegasætinu.
Ég man eftir því að lögreglan
sagði við mig eftir slysið: „Þú varst
heppinn að vera í Mercedes Benz.“
„Ha af hverju?“ spurði ég hann og
undraði mig á hvað hann meinti
eiginlega með því. Hann sagði að
Benzinn væri sterkbyggður bíll og að
ef ég hefði verið á smábíl þá hefði ég
alveg örugglega verið steindauður
og niðri í kjallara, þetta hefði verið
mjög alvalegt bílslys sem ég lenti í.
„Þú mátt teljast heppinn að vera á
lífi,“ sagði hann. Konan í Volvonum
lifði af áreksturinn og sagði lögreglan
það alveg furðulegt, en að það hefði
líklega verið af því að hún var á
Volvo.“
Ráfaði um týndur
„Ég bjó með konunni minni í
Danmörku á þessum tíma og í þrjú
ár ráfaði ég um heima hjá mér alveg
týndur. Ég hafði hlotið áunninn
heilaskaða eftir slysið og mundi
ekkert. Var varla fær um að tala,
hvorki eigið móðurmál né dönsku. Ég
hafði þó minningar um konuna mína
sem hjálpaði mér í gegnum þetta
erfiða tímabil. Ég gat ekkert unnið og
var alveg að missa móðinn. Ég var
kominn á ansi myrkan stað og konan
missti svo vinnuna í kjölfarið vegna
niðurskurðar, við ákváðum að fara til
Íslands og fá okkur vinnu til að reyna
að halda húsinu okkar í Danmörku.
Það var þá sem kraftaverkin fóru að
gerast. Mér finnst eins og Guð hafi
gripið inn í lífið fyrir mig á Íslandi.
Kraftaverkið varð til þess að ég lifði
og gat fylgt örlögum mínum. Góður
maður kom með undraefnið ProLan
til mín og sagði mér að nota þetta. Ég
þakka honum mikið fyrir og hugsa oft
til hans. Síðan þá hefur allt komið upp
í hendurnar á okkur.“
Kraftaverkaefnið ProLan
„Ég kom heim til Íslands með konunni
og það var þá sem hjólin fóru að
snúast. Mér áskotnaðist húsnæði til
þess að búa í, sem vinur minn reddaði
mér. Svo fékk ég bílalyftu frá öðrum
gegn því að ég ryðverði bílinn hans.
Ég opnaði ryðvarnarverkstæðið Hjá
Smára Hólm í Hafnarfirði og var þá
með annað efni sem er úr lanólín,
en það uppfyllti ekki þann staðal og
gæði sem ég var að leita eftir. Fyrir
um fjórum árum komst ég svo í tæri
við undraefnið ProLan.“
Virka efnið í ProLan er lanolín,
öðru nafni ullarolía sem myndast
í hárum dýra sem hafa ullarfeld.
Lanolín er undraefni og uppistaðan
í mörgum snyrtivörum, ProLan er
framleitt sem smurefni fyrir mat-
vælaiðnað. Í flugvélar hjá her Ástr-
alíu eru notaðar ProLan-vörurnar
og hafa þær staðist prófanir við
öfgafullar aðstæður, m.a. kröfur
NSF- vottunar EU og því er óhætt að
nota efnið í matvælaiðnaði. ProLan
stenst háþrýstiþvott með allt að 170
bara þrýstingi. Einnig þolir efnið klór
og sterk sápuefni, tjöru- og olíu-
hreinsi, auk þess sem sandur, ryk
og moldarleðja loðir ekki við það.
Það skemmir ekki gúmmí og hefur
einangrun fyrir allt að 70 kílóvolt.
Og það besta við efnið er að það er
náttúrulegt. Það er lítið af aukaefnum
í ProLan, og þar sem það er óhætt að
nota það í matvælaiðnað, þá er það
að auki nær skaðlaust fyrir umhverfið.
Í Danmörku eru þeir að bera ProLan
á hesta með soríasis með góðum
árangri.“
Ótrúlegir möguleikar
„Leif Nilsen, sem er umboðsaðili
ProLan í Evrópu og er staðsettur í
Danmörku, kom í heimsókn til okk-
ar hér á Íslandi til að sjá og kynnast
okkar starfsemi. Hann trúði ekki sínum
eigin augum þegar hann komst að því
að ég væri að ryðverja með ProLan
og varð furðu lostinn yfir öllum þeim
uppátækjum sem ég var að prófa.
Ég hef alltaf verið ofvirkur og með
frjótt ímyndunarafl og fljótlega eftir
að ég kynntist efninu gerði ég próf-
anir á því. Forvitnin er mér eðlislæg.
Ef maður prófar ekki þá uppgötvar
maður ekki möguleikana. Ég komst
að því að notkunarmöguleikarnir eru
nánast endalausir og þá varð ekki
aftur snúið.
Ég fór að ryðverja bíla með ProLan,
botnverja báta, nota sem leðurfeiti
og margt fleira. Fyrir fjórum árum
prófuðum við að setja á ryðbólur
á bílum. Í dag hafa þessir ryðbólur
ekkert breyst og ryðinu er algerlega
haldið í skefjum af ProLan. Ég setti
upp keðjur við Hellisheiðarvirkjun til
að sjá hvort efnið stæðist tæringu af
völdum brennisteinsvetnis, sem það
og þolir. ProLan er ótrúlegt efni og
hefur miklu meiri virkni en öll önnur
ryðvarnarefni sem ég hef prófað.
Auk þess hef ég prófað þetta sem
felgu- og bílabón og fleira. Reyndar
var gamla mjallarbónið búið til úr
lanólíni eins og ProLan er búið til úr.
Að auki skemmir Prolan ekki gúmmi
(getur þó haft áhrif á EPDM-gúmmí),
þvert á móti ver það gúmmí og smyr.
Það kemur m.a. í veg fyrir að bílhurðir
frjósi fastar.“
Kúnnar sem höfðu keypt vöruna
komu líka til mín og sögðu mér frá
ýmsum notkunarmöguleikum sem
þeir höfðu uppgötvað. Einn göngu-
garpur sagði mér að þetta væri besta
efnið sem hann hefði komist í tæri við.
Hann hefur ekki blotnað í fæturna
síðan hann byrjaði að nota ProLan
á skóna. Svo kom til mín byggingar-
verktaki um daginn sem hefur verið
að nota ProLan í steypumót. Hann
hefur ekki lent í vandamálum með að
ná úr mótunum síðan hann byrjaði að
nota efnið.“
ProLan fæst í mismunandi
þykktum, allt frá þunnri olíu sem
hægt er að spreyja á með brúsa
til þykkrar feiti sem borin er á fleti.
Einnig fæst efnið í mismunandi ein-
ingastærðum.
Sjá nánar á vefsíðunni www.
prolan.is og www.smariholm.com
Fecebook-síðunni Prolan ryðvörn
og Hjá Smára Hólm. Rauðhella 1,
Hafnarfirði S. Sími: 861-7237
Tímapantanir í síma 788-5590
Hér sést hvernig Volvoinn var útleikinn eftir áreksturinn.