Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 28
Páskablaðið 18. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Sveitaparadís í hjarta Vestfjarða Holt Inn er ekta sveita hótel staðsett í Önundarfirði, hjarta Vestfjarða, þar sem náttúrufegurð, sveitagestrisni, ljúfur fuglasöngur, fjölbreytt dýralíf og kyrrð mætast og mynda einstakt og notalegt andrúmsloft. „Við erum í um fimm klukkustunda aksturs fjarlægð frá Reykjavík og örstutt frá Ísafirði, Flateyri og Suðureyri þar sem finna má góða grunn þjónustu, golfvelli, skíðasvæði, söfn, setur og fyrirtaks sundlaugar. Að koma hingað á að vera eins og að fara í gott frí. Ég hef sjálf töluverða reynslu af gistihúsarekstri en amma mín, sem er hússtjórnarskólagengin, rak Bed and Breakfast-gistihús. Á sumrin hjálpaði ég henni mikið og lærði margt af henni. Við sjáum til þess að gesti okkar vanhagi ekki um neitt og að þeir geti notið sín í algerri kyrrð og ró í fallegu umhverfi,“ segir Hólmfríður Bóasdóttir, eða Hófí eins og hún er alltaf kölluð. Fyrsta flokks aðstaða „Við hjónin, ég og Kristján Óskar Ásvaldsson, ásamt tengdaforeldrum mínum, Helgu Dóru Kristjánsdóttur og Ásvaldi Magnússyni tókum okkur til og græjuðum gamla skólann í Önundarfirði. Hótelið opnuðum við þann 18. júní 2018. Við erum með 11 2–3 manna herbergi sem öll eru með sér baði,“ segir Hófí. Holt Inn er sérlega sjarmerandi og fjölskyldurekið sveitahótel og er opið allan ársins hring. „Við erum fjögur sem sjáum um reksturinn og skiptumst á að vera á staðnum á milli þess sem við sinnum dagvinnunni okkar. Á veturna erum við bara fjögur í þessu en á sumrin erum við með þrjá aðra starfsmenn úr Önundarfirði.“ Á hótelinu eru tveir 30 og 100 manna salir sem eru tilvaldir hvort heldur er fyrir fundahald eða veislur svo sem brúðkaup, stóraf- mæli eða ættarmót. Á staðnum er gott, frítt þráðlaust net, skjávarpi, sjónvarpsskjár, píanó og orgel. Hæstánægð brúðhjón Í Önundarfirði er mikil friðsæld og fámenni. Einnig er afar lítil ljós- mengun sem gefur gullið tækifæri til norðurljósaskoðunar. Hér er líka margt hægt að gera. Umhverfið býður upp á stórskemmtilegar gönguferðir, við Holtsbryggju er hægt að stinga sér til sjósunds eða stunda ýmiss konar sjósport eins og kajakferðir. „Í fyrra sumar var gullfallegt brúðkaup haldið hjá okkur og var stemningin ólík öllu sem ég hef kynnst. Brúðhjónin höfðu samband við okkur eftirá og þökkuðu okkur fyrir að gera þennan viðburð algerlega ógleymanlegan. Það voru allir svo ánægðir með upplifunina. Það myndast líka svo skemmtileg stemning í svona veislum þegar allir eru samankomnir undir sama þaki, einhvers staðar í guðs- grænni náttúrunni fjarri skarkala borgarinnar.“ Vantar þig gistingu um páskahelgina? „Við eigum nokkur herbergi laus núna fyrir heppna einstaklinga sem eru að leita sér að gistingu fyrir Aldrei fór ég suður, tónlistarhátíðina marg- rómuðu sem haldin er á Ísafirði um páskahelgina. Við erum steinsnar frá Ísafirði og því er tilvalið að koma sér fyrir hér á Holt Inn í kyrrð og ró, halda svo á skemmtilega tónleika á Ísafirði og koma svo aftur í besta nætursvefn sem þú hefur upplifað. Það hefur verið brjálað að gera hjá okkur og þetta ævintýri hefur farið langt fram úr okkar björtustu vonum, þó svo að við höfum bara opnað í fyrra. Við höfum fengið fyrsta flokks undirtektir á helstu bókunar- og ummælasíðum á netinu og fólk er ánægt með aðstöðuna hér og gestrisnina. Við erum mjög bjartsýn á framtíðina,“ segir Hófí. Við bjóðum alla velkomna til okkar á Holt Inn með einstakri sveita- gestrisni, eins og okkur einum er lagið. Bókaðu herbergi á holtinn.is Holt, 426 Flateyri Sími: 456-7611 Vefpóstur: holtinn@holtinn.is HOLT INN:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.