Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 8
8 18. apríl 2019FRÉTTIR E inn þekkt- asti smá- glæpamaður kreppuáranna hét Magnús Gísla- son og var ekki full- komlega heill á geði. Magnús braust margsinnis inn í hús og út úr fangelsum og geðsjúkrahúsum. Strax á unglingsaldri var hann orðinn góðkunningi lög- reglunnar og haustið 1934, þegar Magnús var nítján ára gam- all, rataði hann í blöðin. Og ekki að- eins íslensku blöðin heldur þau dönsku. Í Berlingske tidende var greint frá því að tveir íslenskir unglingspiltar hefðu verið handteknir í Kaupmannahöfn. Magnús Gíslason, nítján ára, og Gunnar Jóelsson, sextán ára. Höfðu þeir strokið úr fangelsi á Íslandi og laumað sér um borð í skipið Island. Skipstjór- inn fann þá í lestinni en þeir voru peningalausir og aðeins með smá brauðbita. Afhenti skipstjórinn þá lögreglunni í Kaupmanna- höfn og var Magnúsi komið fyrir í fangelsi en Gunnari á hæli fyr- ir heimilislausa. Voru þeir báðir sendir aftur til Íslands skömmu síðar og fékk Magnús viðurnefnið „strokufanginn“. Skömmu eftir að Magnús kom til Íslands slapp hann aftur úr varðhaldi, þá frá lögreglunni í Keflavík. Í desember árið 1934 greindi Nýja dagblaðið frá því að Magnús hefði flúið til foreldra sinna að Kirkjubóli á Miðnesi en ekki farið almannaleið. Þegar þangað var komið ákvað hann að fara niður í fjöru til að skjóta fugla. En þá datt hann og fékk skot úr haglabyssunni í gegnum fram- handlegginn. Á spítalanum var hann handtekinn aftur en fékk aðhlynningu sára sinna. Næsta strok Magnúsar var af Kleppi í janúarbyrjun árið 1935. Fór hann á salernið um miðja nótt og braust út í gegnum rammgerð- an glugga. Vökumaður Magnúsar kallaði til lögreglu og rakti sporin niður í fjöru þar sem þau hurfu. Var Magnús aðeins í nærfötum og inniskóm og óttuðust menn um hann. Næsta dag fannst Magnús hins vegar í herbergi á Laugavegi 22 þar sem hann var að hitta tvær stúlkur. Í júní 1935 flúði Magnús af Litla-Hrauni ásamt Vernharði Eggertssyni, harðsvíruðum glæpamanni sem lengi hafði búið í Kanada. Söguðu þeir riml- ana í klefa sínum með verkfær- um úr vinnustofunni og voru þeir vopnaðir kylfu á flóttan- um. Alþýðublaðið greindi frá því að þann 18. júní hefðu þeir ver- ið gripnir við Litla-Botn í Hval- firði aðeins tveimur dögum síð- ar. Voru þeir þá mjög þreyttir og hungraðir eftir langa göngu og báðu heimilisfólk um mat. Það þekkti hina frægu strokufanga og tilkynnti lögreglunni. Gáfust þeir upp mótspyrnulaust. Vern- harður viðurkenndi að flóttinn hefði verið óskipulagður og „tóm vitleysa.“ Engu að síður varð fólk mjög hneykslað á því hversu auðvelt það var fyrir mennina að sleppa af Litla-Hrauni. Fór nú lítið fyrir flóttatilraun- um Magnúsar þar til í febrúar árið 1938. Í Morgunblaðinu 2. febrúar var sagt að Magnús hefði skorið af sér fingur til að komast úr fangelsi. Hann var þá í gæslu- varðhaldi fyrir innbrot sem hann framdi með öðrum góðkunn- ingja lögreglunnar, Mons Olsen. Í matartíma herti Magnús um litla fingur með bandspotta til deyf- ingar og skar tvær kjúkur af með bitlausum borðhníf, „eins og geðbilaður maður.“ Komst hann þar með á sjúkrahúsið en ekki úr varðhaldi. Fékk hann þriggja ára dóm tveimur mánuðum síðar. BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is STROKUFANGAR Á ÍSLANDI Fangi gerði misheppnaða flóttatilraun úr fangelsinu á Akureyri í vikunni. Tók hann á rás þegar fangaálman var opnuð en var hlaupinn uppi af fótfráum fangaverði. Þetta var hálfsorgleg en jafnframt svolítið spaugileg uppákoma. Fangaflóttar eru algengir á Íslandi, mjög algengir. Jafn algengt er að fangarnir náist aftur, stundum samdægurs en stundum eftir nokkra daga. Fangaflóttar gera lítið annað en að minnka frelsi innan fangelsanna, bæði fyrir þann sem strauk og aðra, því að eftirlitið er hert. Úti í hinum stóra heimi getur flótti úr fangelsi hugsanlega gengið upp. En hérna á litla Íslandi virðist það ansi tilgangs- laust, nema viðkomandi geti komist úr landi og látið sig hverfa alfarið. Slíkt hefði geta orðið raunin í máli Sindra Þórs Stefánssonar fyrir ári. Hér eru þekktu- stu strokufangar Íslands og nokkur önnur spaugileg mál. H osmany Ramos, brasil- ískur lýtalæknir á sjötugs- aldri, gerði alvarlega til- raun til að flýja þegar verið var að færa hann fyrir dómara í janúar árið 2010. Ramos hafði verið handtekinn á Keflavíkur- flugvelli með falsað vegabréf. Út- bjó hann oddhvasst vopn og hót- aði lögreglumanni með því. Ramos var í járnum í fanga- flutningabifreið en með grisju á öðrum úlnliðnum. Gerði þetta að verkum að Ramos gat losað sig. Þegar bíllinn var stöðvaður við Héraðsdóm Reykjavíkur tók hann á rás og lögreglumaðurinn elti. Þá dró Ramos fram kutann en var yfirbugaður. Flóttinn stóð yfir í eina mínútu. MAGNÚS GÍSLASON – SKAR AF SÉR FINGUR HOSMANY RAMOS – ÚTBJÓ ODDHVASST VOPN Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Hosmany Ramos Brasilískur lýtalæknir. Magnús Gíslason Var talinn geðbilaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.