Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Blaðsíða 16
16 18. apríl 2019 S amkvæmt reglugerð var kominn tími til þess að taka nagladekkin af bílum þann 15. apríl og mega þau ekki fara aftur undir bílinn fyrr en 31. október. Sektir vegna notkunar nagladekkja á þessu tímabili eru 20.000 krónur fyrir hvert dekk sem gera í heildina 80.000 krónur ef um fjögur nagladekk er að ræða. Samkvæmt lögum bera þó öku­ menn ábyrgð á því að aka um á dekkjum sem eru í samræmi við aðstæður hverju sinni, óháð árs­ tíðum, og er því heimilt að nota neglda hjólbarða ef þörf er á vegna akstursaðstæðna. Lögreglan stressar sig ekki á negldum dekkjum strax Blaðamaður hafði samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæð­ inu og forvitnaðist út í reglu­ gerðina og sektirnar sem henni fylgja. „Þetta er þannig að reglugerðin hljómar svo að þú átt að skipta um nagladekk þann 15. apríl, en svo er alltaf tekið inn í aðstæð­ urnar þetta skemmtilega orða­ lag: „Nema að veðuraðstæður segi annað.“ Þannig að þetta er alltaf dálítið mat. Núna erum við sjálf­ ir til dæmis ekkert að stressa okk­ ur á því að skipta. Um páskana eru meðal annars margir á far­ aldsfæti, fara norður eða austur, og samkvæmt langtímaspánni þá á að kólna eitthvað, koma næt­ urfrost og gæti farið að snjóa. Svo við erum ekkert að stressa okkur á þessu einmitt núna,“ segir lög­ reglumaður í samtali við DV. Fólk en þá ekki endilega sektað frá og með 15. apríl? „Nei, nei, nei, nei, og þetta hef­ ur verið svoleiðis síðustu árin. Við höfum verið mjög slakir.“ Ökutæki sett í akstursbann eftir ítrekaðar áminningar Er sektum einungis beitt? Hvað ef fólk fær margar áminningar? „Þetta er þannig að ef fólk fær ítrekaðar áminningar þá getum við boðað bílinn í skoðun og sett á hann akstursbann. En þetta er ekki talið það alvarlegt í sektar­ gerðinni að það hljómi undir upp­ töku ökutækis.“ Ef ökumaður yrði tekinn með nokkurra daga millibili fengi hann þá fleiri en eina sekt? „Já, ég meina ef hann er til dæmis tekinn af Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og keyrir síð­ an austur fyrir fjall og verður tek­ inn af Lögreglunni á Suðurlandi þá eru þetta tvö lögregluembætti og gæti hann þá fengið tvær sektir.“ Hvenær teljið þið að ekki sé hægt að nota veðrið sem afsökun fyrir nagladekkjum? „Ég man eftir því að ein­ hvern tímann fór ég norður fyrir nokkrum árum og þá var snjó­ koma í lok maí. En hérna á höfuð­ borgarsvæðinu þá erum við dá­ lítið að horfa á þetta svona í byrjun maí. Metum það hvernig staðan er þá og í flestum tilfellum er komið þannig veður að í kringum miðjan maí þá á ekki að þurfa nagladekk á þessu landsvæði.“ Kostnaður fer eftir stærð og gerð Blaðamaður skoðaði einnig verð á umfelgun hjá nokkrum hjólbarða­ verkstæðum og fór verðið frá því að vera um 8.000 krónur og allt upp í 53.254 krónur, allt eftir stærð og gerð bíla og dekkja. Inni í því verði felst umfelgun, jafnvægisstilling og umskipti á öllum fjórum dekkj­ um. Þá eru margir sem eiga eftir að kaupa sér ný dekk og fer kostnaður á þeim einnig eftir stærð og gerð. Það getur því verið ansi kostnað­ arsamt að láta skipta um dekk og gott er að hafa það í huga nokkru áður en að skiptum kemur. n FRÉTTIR - VIÐTAL Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu flottar innréttingar í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! „Við erum ekkert að stressa okkur á þessu einmitt núna „Í kringum miðjan maí þá á ekki að þurfa nagladekk á þessu landsvæði Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is Umfelgunarkostnaður getur numið tugum þúsunda 80.000 krónu sekt fyrir fjögur nagladekk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.