Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Síða 16
16 18. apríl 2019
S
amkvæmt reglugerð var
kominn tími til þess að taka
nagladekkin af bílum þann
15. apríl og mega þau ekki
fara aftur undir bílinn fyrr en 31.
október.
Sektir vegna notkunar
nagladekkja á þessu tímabili eru
20.000 krónur fyrir hvert dekk sem
gera í heildina 80.000 krónur ef
um fjögur nagladekk er að ræða.
Samkvæmt lögum bera þó öku
menn ábyrgð á því að aka um á
dekkjum sem eru í samræmi við
aðstæður hverju sinni, óháð árs
tíðum, og er því heimilt að nota
neglda hjólbarða ef þörf er á vegna
akstursaðstæðna.
Lögreglan stressar sig ekki á
negldum dekkjum strax
Blaðamaður hafði samband við
Lögregluna á höfuðborgarsvæð
inu og forvitnaðist út í reglu
gerðina og sektirnar sem henni
fylgja.
„Þetta er þannig að reglugerðin
hljómar svo að þú átt að skipta
um nagladekk þann 15. apríl, en
svo er alltaf tekið inn í aðstæð
urnar þetta skemmtilega orða
lag: „Nema að veðuraðstæður segi
annað.“ Þannig að þetta er alltaf
dálítið mat. Núna erum við sjálf
ir til dæmis ekkert að stressa okk
ur á því að skipta. Um páskana
eru meðal annars margir á far
aldsfæti, fara norður eða austur,
og samkvæmt langtímaspánni þá
á að kólna eitthvað, koma næt
urfrost og gæti farið að snjóa. Svo
við erum ekkert að stressa okkur
á þessu einmitt núna,“ segir lög
reglumaður í samtali við DV.
Fólk en þá ekki endilega sektað
frá og með 15. apríl?
„Nei, nei, nei, nei, og þetta hef
ur verið svoleiðis síðustu árin. Við
höfum verið mjög slakir.“
Ökutæki sett í akstursbann
eftir ítrekaðar áminningar
Er sektum einungis beitt? Hvað ef
fólk fær margar áminningar?
„Þetta er þannig að ef fólk fær
ítrekaðar áminningar þá getum
við boðað bílinn í skoðun og sett
á hann akstursbann. En þetta er
ekki talið það alvarlegt í sektar
gerðinni að það hljómi undir upp
töku ökutækis.“
Ef ökumaður yrði tekinn með
nokkurra daga millibili fengi
hann þá fleiri en eina sekt?
„Já, ég meina ef hann er til
dæmis tekinn af Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu og keyrir síð
an austur fyrir fjall og verður tek
inn af Lögreglunni á Suðurlandi
þá eru þetta tvö lögregluembætti
og gæti hann þá fengið tvær sektir.“
Hvenær teljið þið að ekki sé hægt
að nota veðrið sem afsökun fyrir
nagladekkjum?
„Ég man eftir því að ein
hvern tímann fór ég norður fyrir
nokkrum árum og þá var snjó
koma í lok maí. En hérna á höfuð
borgarsvæðinu þá erum við dá
lítið að horfa á þetta svona í byrjun
maí. Metum það hvernig staðan er
þá og í flestum tilfellum er komið
þannig veður að í kringum miðjan
maí þá á ekki að þurfa nagladekk á
þessu landsvæði.“
Kostnaður fer eftir stærð og
gerð
Blaðamaður skoðaði einnig verð á
umfelgun hjá nokkrum hjólbarða
verkstæðum og fór verðið frá því að
vera um 8.000 krónur og allt upp
í 53.254 krónur, allt eftir stærð og
gerð bíla og dekkja. Inni í því verði
felst umfelgun, jafnvægisstilling
og umskipti á öllum fjórum dekkj
um. Þá eru margir sem eiga eftir að
kaupa sér ný dekk og fer kostnaður
á þeim einnig eftir stærð og gerð.
Það getur því verið ansi kostnað
arsamt að láta skipta um dekk og
gott er að hafa það í huga nokkru
áður en að skiptum kemur. n
FRÉTTIR - VIÐTAL
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
„Við erum ekkert
að stressa okkur
á þessu einmitt núna
„Í kringum
miðjan maí
þá á ekki að þurfa
nagladekk á
þessu landsvæði
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@dv.is
Umfelgunarkostnaður
getur numið tugum þúsunda
80.000 krónu sekt fyrir fjögur nagladekk