Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Qupperneq 28
Páskablaðið 18. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Sveitaparadís í
hjarta Vestfjarða
Holt Inn er ekta sveita hótel staðsett í Önundarfirði, hjarta Vestfjarða, þar sem
náttúrufegurð, sveitagestrisni, ljúfur
fuglasöngur, fjölbreytt dýralíf og
kyrrð mætast og mynda einstakt og
notalegt andrúmsloft.
„Við erum í um fimm klukkustunda
aksturs fjarlægð frá Reykjavík og
örstutt frá Ísafirði, Flateyri og
Suðureyri þar sem finna má góða
grunn þjónustu, golfvelli, skíðasvæði,
söfn, setur og fyrirtaks sundlaugar.
Að koma hingað á að vera eins og að
fara í gott frí. Ég hef sjálf töluverða
reynslu af gistihúsarekstri en amma
mín, sem er hússtjórnarskólagengin,
rak Bed and Breakfast-gistihús.
Á sumrin hjálpaði ég henni mikið og
lærði margt af henni. Við sjáum til
þess að gesti okkar vanhagi ekki um
neitt og að þeir geti notið sín í algerri
kyrrð og ró í fallegu umhverfi,“ segir
Hólmfríður Bóasdóttir, eða Hófí eins
og hún er alltaf kölluð.
Fyrsta flokks aðstaða
„Við hjónin, ég og Kristján Óskar
Ásvaldsson, ásamt tengdaforeldrum
mínum, Helgu Dóru Kristjánsdóttur
og Ásvaldi Magnússyni tókum okkur
til og græjuðum gamla skólann í
Önundarfirði. Hótelið opnuðum við
þann 18. júní 2018. Við erum með 11
2–3 manna herbergi sem öll eru með
sér baði,“ segir Hófí.
Holt Inn er sérlega sjarmerandi
og fjölskyldurekið sveitahótel og er
opið allan ársins hring. „Við erum
fjögur sem sjáum um reksturinn og
skiptumst á að vera á staðnum á milli
þess sem við sinnum dagvinnunni
okkar. Á veturna erum við bara
fjögur í þessu en á sumrin erum
við með þrjá aðra starfsmenn úr
Önundarfirði.“ Á hótelinu eru tveir 30
og 100 manna salir sem eru tilvaldir
hvort heldur er fyrir fundahald eða
veislur svo sem brúðkaup, stóraf-
mæli eða ættarmót. Á staðnum er
gott, frítt þráðlaust net, skjávarpi,
sjónvarpsskjár, píanó og orgel.
Hæstánægð brúðhjón
Í Önundarfirði er mikil friðsæld og
fámenni. Einnig er afar lítil ljós-
mengun sem gefur gullið tækifæri
til norðurljósaskoðunar. Hér er líka
margt hægt að gera. Umhverfið
býður upp á stórskemmtilegar
gönguferðir, við Holtsbryggju er
hægt að stinga sér til sjósunds
eða stunda ýmiss konar sjósport
eins og kajakferðir. „Í fyrra sumar
var gullfallegt brúðkaup haldið
hjá okkur og var stemningin ólík
öllu sem ég hef kynnst. Brúðhjónin
höfðu samband við okkur eftirá og
þökkuðu okkur fyrir að gera þennan
viðburð algerlega ógleymanlegan.
Það voru allir svo ánægðir með
upplifunina. Það myndast líka svo
skemmtileg stemning í svona veislum
þegar allir eru samankomnir undir
sama þaki, einhvers staðar í guðs-
grænni náttúrunni fjarri skarkala
borgarinnar.“
Vantar þig gistingu um
páskahelgina?
„Við eigum nokkur herbergi laus núna
fyrir heppna einstaklinga sem eru
að leita sér að gistingu fyrir Aldrei
fór ég suður, tónlistarhátíðina marg-
rómuðu sem haldin er á Ísafirði um
páskahelgina. Við erum steinsnar frá
Ísafirði og því er tilvalið að koma sér
fyrir hér á Holt Inn í kyrrð og ró, halda
svo á skemmtilega tónleika á Ísafirði
og koma svo aftur í besta nætursvefn
sem þú hefur upplifað.
Það hefur verið brjálað að gera
hjá okkur og þetta ævintýri hefur
farið langt fram úr okkar björtustu
vonum, þó svo að við höfum bara
opnað í fyrra. Við höfum fengið fyrsta
flokks undirtektir á helstu bókunar-
og ummælasíðum á netinu og fólk
er ánægt með aðstöðuna hér og
gestrisnina. Við erum mjög bjartsýn á
framtíðina,“ segir Hófí.
Við bjóðum alla velkomna til okkar
á Holt Inn með einstakri sveita-
gestrisni, eins og okkur einum er lagið.
Bókaðu herbergi á holtinn.is
Holt, 426 Flateyri
Sími: 456-7611
Vefpóstur: holtinn@holtinn.is
HOLT INN: