Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 6
6 26. apríl 2019FRÉTTIR Hjúskaparstaða og börn? Í sambúð með Vilhjálmi Siggeirssyni og hundinum okkar Fróða. Fyrsta atvinnan? Fyrir utan hefðbundna unglingavinnu var það umhirða í kirkjugarðinum við Garða- kirkju. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á kirkjugörðum og þessi er einn sá fallegasti á landinu. Samhliða þessu seldi ég svo föt í 17. Skemmtilegast að gera? Að ferðast, bæði innanlands og utan með góðu fólki og Fróða. Mér líður hvergi betur en í fríi uppi í bústað eða úti í Eyjum þó að mér finnist reyndar mjög gott að vera heima líka. En leiðinlegast? Að standa í tilgangslausu veseni eða leiðindum. Trúir þú á drauga? Njahh… Besta ráð sem þú hefur fengið? Að halda í gleðina eins lengi og maður mögulega getur. Hver myndi leika þig í kvik- mynd? Anna Svava er held ég eina manneskjan sem hefur leikið mig, í áramótaskaupi. Ég veit það ekki, einhver klaufsk og lappastutt með stóran munn. Hefur þú fallið á prófi? Ég átti alltaf frekar auðvelt með að læra og útskrifaðist til dæmis sem stúdent á þremur árum með 9,69 í meðaleinkunn. Bílprófið hins vegar, maður minn! Ég féll eins naumlega og hægt var fyrst þegar ég tók bóklega prófið, skítféll svo vikuna eftir og leið hrikalega asnalega þegar ég mætti þriðju vikuna í röð! En þá kom þetta. Ég vil kenna því um að ég fór aldrei í æfingaakstur svo skilningurinn var frekar takmarkaður. Mannkostir þínir? Ég spurði Villa og hann sagði að ég væri réttsýn, góð, dugleg, ráðagóð og hörð af mér. Takið þessu með fyrirvara, ég var nýbúin að gefa honum mjög góða afmælisgjöf. Lestir? Ég er alveg svakalega klaufsk, brákaði til dæmis á mér höfuðkúpuna við að standa upp af klósetti og reka mig upp undir hand- þurrku. Ég er líka rosalega meðvirk en það stendur til bóta. Fyrsti bíllinn? VW Golf. Ég klæddi mig í dragt þegar ég fór og keypti þann bíl, því það er mikilvægt að klæða sig upp í hlutverkið. Ég prúttaði, staðgreiddi og bílasalinn bauð mér svo vinnu. Leiðinlegasta húsverkið? Að setja á rúmin. En verðlaunin eru reyndar fín, því það er fátt betra en að leggjast í hreint rúm. Viðurkenni þó að Villi sér yfirleitt um þetta. Besta bók sem þú hefur lesið? Æi, ég man það ekki en mun pottþétt muna það um leið og þessari yfirheyrslu lýkur. Annars hlusta ég mun meira á „podköst“ þessa dagana. Og jú, svo hlustaði ég á Ásdísi Höllu lesa bókina sína Tvísögu, það var frekar magnað. Uppáhaldsíþróttalið á Íslandi? ÍBV. Það er ótrúlegt að félag frá svona litlum stað eigi svona sterk lið í mörgum greinum. Og afreksfólk og þjálfara. Ertu A- eða B-manneskja? B. Það á alls ekki vel við mig að vakna mjög snemma. Hver er fyrirmynd þín í lífinu? Ég á ekki beint neina eina fyrirmynd held ég, en ég lít upp til og læri af vinum mínum, fjölskyldu, sam- starfsfólki og bara alls konar fólki á hverjum degi. Svo eru tengdaforeldrar mínir alveg sérstaklega gott fólk sem ég held að sé það mikilvægasta að vera í lífinu. Hvað er það erfið- asta sem þú hefur gert? Ég held að það sé aðeins of þungt fyrir þessa yfirheyrslu. Eitthvað að lokum? Gleðilegt sumar! Og munið að vera létt. Það er staðreynd að… Blóðmör er mun eldri en lifrarpylsa. Konur depla augunum næstum tvisvar sinnum oftar en karlar. 27 ísbirnir gengu á land frostavetur- inn mikla 1918. Tunglið færist 3,8 sentimetrum fjær jörðinni á hverju ári. Hver er hann n Var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2014. n Gaf þúsundum grunn- og leikskóla- barna sólmyrkvagleraugu árið 2015. n Dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. n Ritstýrir Stjörnufræðivefnum. n Skrifaði bók með Villa naglbít. SVAR: SÆVAR HELGI BRAGASON YFIRHEYRSLAN Edda Sif Pálsdóttir sló í gegn sem íþróttafrétta- maður hjá RÚV. Síðan hefur hún tekið að sér ýmis verkefni og dagskrárgerð hjá RÚV. Til dæmis í Land- anum og sem stigakynnir í Eurovision. DV tók Eddu Sif í yfirheyrslu. PIZZERIA DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI Edda Sif Pálsdóttir 492723

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.