Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Qupperneq 6
6 26. apríl 2019FRÉTTIR
Hjúskaparstaða og börn?
Í sambúð með Vilhjálmi Siggeirssyni og
hundinum okkar Fróða.
Fyrsta atvinnan?
Fyrir utan hefðbundna unglingavinnu var
það umhirða í kirkjugarðinum við Garða-
kirkju. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
kirkjugörðum og þessi er einn sá fallegasti á
landinu. Samhliða þessu seldi ég svo föt í 17.
Skemmtilegast að gera?
Að ferðast, bæði innanlands og utan með
góðu fólki og Fróða. Mér líður hvergi betur
en í fríi uppi í bústað eða úti í Eyjum þó að
mér finnist reyndar mjög gott að vera heima
líka.
En leiðinlegast?
Að standa í tilgangslausu veseni eða
leiðindum.
Trúir þú á drauga?
Njahh…
Besta ráð sem þú hefur
fengið?
Að halda í gleðina eins
lengi og maður mögulega
getur.
Hver myndi
leika þig í kvik-
mynd?
Anna Svava er
held ég eina
manneskjan sem
hefur leikið mig, í áramótaskaupi. Ég veit
það ekki, einhver klaufsk og lappastutt með
stóran munn.
Hefur þú fallið á prófi?
Ég átti alltaf frekar auðvelt með að læra
og útskrifaðist til dæmis sem stúdent á
þremur árum með 9,69 í meðaleinkunn.
Bílprófið hins vegar, maður minn! Ég féll
eins naumlega og hægt var fyrst
þegar ég tók bóklega prófið,
skítféll svo vikuna eftir og leið
hrikalega asnalega þegar ég
mætti þriðju vikuna í röð!
En þá kom þetta. Ég vil
kenna því um að ég fór
aldrei í æfingaakstur
svo skilningurinn var
frekar takmarkaður.
Mannkostir
þínir?
Ég spurði Villa og
hann sagði að ég
væri réttsýn, góð,
dugleg, ráðagóð
og hörð af mér.
Takið þessu með
fyrirvara, ég
var nýbúin að
gefa honum
mjög góða
afmælisgjöf.
Lestir?
Ég er alveg svakalega klaufsk, brákaði til
dæmis á mér höfuðkúpuna við að standa
upp af klósetti og reka mig upp undir hand-
þurrku. Ég er líka rosalega meðvirk en það
stendur til bóta.
Fyrsti bíllinn?
VW Golf. Ég klæddi mig í dragt þegar ég
fór og keypti þann bíl, því það er mikilvægt
að klæða sig upp í hlutverkið. Ég prúttaði,
staðgreiddi og bílasalinn bauð mér svo
vinnu.
Leiðinlegasta húsverkið?
Að setja á rúmin. En verðlaunin eru reyndar
fín, því það er fátt betra en að leggjast í
hreint rúm. Viðurkenni þó að Villi sér yfirleitt
um þetta.
Besta bók sem þú hefur lesið?
Æi, ég man það ekki en mun pottþétt muna
það um leið og þessari yfirheyrslu lýkur.
Annars hlusta ég mun meira á „podköst“
þessa dagana. Og jú, svo hlustaði ég á
Ásdísi Höllu lesa bókina sína Tvísögu, það
var frekar magnað.
Uppáhaldsíþróttalið á Íslandi?
ÍBV. Það er ótrúlegt að félag frá svona
litlum stað eigi svona sterk lið í mörgum
greinum. Og afreksfólk og þjálfara.
Ertu A- eða B-manneskja?
B. Það á alls ekki vel við mig að vakna mjög
snemma.
Hver er fyrirmynd þín í
lífinu?
Ég á ekki beint neina eina fyrirmynd
held ég, en ég lít upp til og læri af
vinum mínum, fjölskyldu, sam-
starfsfólki og bara alls konar
fólki á hverjum degi. Svo eru
tengdaforeldrar mínir alveg
sérstaklega gott fólk sem ég
held að sé það mikilvægasta
að vera í lífinu.
Hvað er það erfið-
asta sem þú hefur
gert?
Ég held að það sé aðeins
of þungt fyrir þessa
yfirheyrslu.
Eitthvað að
lokum?
Gleðilegt sumar!
Og munið að vera
létt.
Það er
staðreynd að…
Blóðmör er mun eldri en lifrarpylsa.
Konur depla augunum næstum tvisvar
sinnum oftar en karlar.
27 ísbirnir gengu á land frostavetur-
inn mikla 1918.
Tunglið færist 3,8 sentimetrum fjær
jörðinni á hverju ári.
Hver er
hann
n Var valinn
Framúrskarandi ungur
Íslendingur árið 2014.
n Gaf þúsundum
grunn- og leikskóla-
barna sólmyrkvagleraugu árið
2015.
n Dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.
n Ritstýrir Stjörnufræðivefnum.
n Skrifaði bók með Villa naglbít.
SVAR: SÆVAR HELGI BRAGASON
YFIRHEYRSLAN
Edda Sif Pálsdóttir sló í gegn sem íþróttafrétta-
maður hjá RÚV. Síðan hefur hún tekið að sér ýmis
verkefni og dagskrárgerð hjá RÚV. Til dæmis í Land-
anum og sem stigakynnir í Eurovision. DV tók Eddu
Sif í yfirheyrslu.
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Edda Sif
Pálsdóttir
492723