Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Blaðsíða 9
26. apríl 2019 FRÉTTIR 9
samband við Kristján og tjáði hon-
um að IHS væri tilbúin að endur-
greiða honum kröfuna ef hann
félli frá því að kæra málið til um-
boðsmanns Alþingis.
Skömmu síðar fékk Kristján alla
upphæðina greidda inn á reikning
sinn en hann fékk aldrei kvittun
eða nokkuð formlegt erindi vegna
þess gjörnings.
„Ég tel að þetta hafi verið viður-
kenning þeirra á því að þeir voru
ekki að fara að lögum,“ segir Krist-
ján en velta má vöngum yfir því
hvort framganga IHS í málinu öllu
geti talist fagleg og eðlileg.
„Ég hef aldrei upplifað annan
eins dónaskap“
Í ferlinu fékk Kristján viðtal hjá
Jóni Ingvari Pálssyni, forstjóra
IHS, til að semja um kröfuna. Sú
framkoma sem Kristján varð fyrir
á þeim fundi telur hann fráleita:
„Allt í einu kemur hann með
Braga Axelsson á fundinn, án
þess að ræða það við mig, en ég
var ekki kominn til að hitta hann,“
segir Kristján og var honum mjög
brugðið við þetta. Kristján hafði
þegar átt í samskiptum við Braga
símleiðis sem honum þótti ein-
kennast af hroka, yfirgangi og
dónaskap af hálfu Braga. Krist-
ján segir að soðið hafi upp úr á
þessum fundi og telur framkomu
Braga hafa verið með ólíkindum.
Eru það algeng ummæli um for-
stöðumanninn á Ísafirði eins og
kemur fram víðar í þessari grein og
fyrri umfjöllun DV um stofnunina.
Hlutverk Innheimtustofnunar
Rétt er hér að staldra við og minna
lesendur á að hlutverk IHS er
vissulega að innheimta meðlag
með árangursríkum hætti og eðli-
legt er að foreldrar sem ekki ala
upp börn sín greiði því foreldri
sem stendur straum af uppeldi
þeirra meðlag. Meðlag með barni
til 18 ára aldurs er 34.362 krónur
á mánuði. Foreldri með forsjá er
tryggð þessi upphæð af hálfu rík-
isins en hlutverk IHS er að endur-
heimta það sem út af ber til ríkis-
sjóðs. Flest okkar þekkja einhverja
eða hafa heyrt um einhverja sem
skulda háar fjárhæðir í barnsmeð-
lög. Fólk getur rétt ímyndað sér
hversu miklir hagsmunir hér eru í
húfi fyrir ríkið og hvað það
er mikilvægt að fyrir hendi
sé skilvirk og eftir atvikum
hörð innheimtustarfsemi
varðandi þessar skuldir. En
getur verið að stofnunin fari
stundum offari? Dæmið um loð-
dýrabóndann í Skagafirði hér að
framan er til vitnis um það, þar
sem stofnunin virðist brjóta gegn
eigin reglum og ganga fram af
mikilli óbilgirni.
Á heimasíðu IHS er ágætlega
upplýsandi kafli (spurningar og
svör) um meðlag. Þar segir með-
al annars:
„Í greiðsluerfiðleikum eru
ýmis úrræði í boði fyrir meðlags-
greiðendur. Umsóknum er skilað
inná Mínum síðum eða með um-
sóknareyðublaði sem finna má á
heimasíðunni ásamt síðasta skatt-
framtali umsækjanda og afriti
þriggja síðustu launaseðla. Nánari
upplýsingar veitir starfsfólk stofn-
unarinnar.“
Að teknu tilliti til þessa er margt
sem bendir til þess að viðhorfið til
meðlagsgreiðenda sé of neikvætt
innan stofnunarinnar. Það hafa
bæði meðlagsgreiðendur bent
DV á (og vissulega eru þeir ekki
hlutlausir) en einnig fyrrverandi
starfsmenn.
„Ég hef aldrei kunnað að meta
baktal“
„Það er hlegið að fólki sem á virki-
lega erfitt og er að biðja um náð og
miskunn til að rétta sig af. Ég man
til dæmis eftir þegar lögfræðing-
ur hjá stofnuninni sagði frá þess-
um bölvaða aumingja sem var að
semja um barnsmeðlagið sitt og
svo var hann bara grenjandi í sím-
anum, eða eitthvað á þá leið.“
Þetta segir Hulda Ósk Eysteins-
dóttir, fyrrverandi starfsmaður
IHS. Hulda starfaði hjá stofnun-
inni í Reykjavík á um það bil eins
og hálfs árs tímabili, frá seinni
hluta 2006 og inn á árið 2008. „Ég
sagði upp korteri fyrir hrun,“ segir
Hulda sem rekur snyrtistofu í dag
og gengur vel. Hún varð hins vegar
atvinnulaus um skeið eftir að hafa
sagt upp störfum hjá IHS og verið
neitað um meðmæli frá stjórn-
endum stofnunarinnar.
Hulda segir að henni hafi liðið
illa allan sinn starfstíma hjá stofn-
uninni, annars vegar vegna þess
hvernig stjórnendur og annað
starfsfólk töluðu um meðlags-
greiðendur og hins vegar vegna
þess að hún sjálf var lögð í einelti –
að hennar sögn.
„Ég fór alltaf ein í kaffi og mér
var aldrei boðið að vera með í
neinu, til dæmis ef safnað var
saman í afmælisgjöf handa ein-
hverjum, þá var ekki leitað til mín,
en til allra annarra. Svo var pískrað
og baktalað, þú finnur þegar verið
er að pískra um þig,“ segir Hulda
sem leitaði bæði til verkalýðsfé-
lags síns og til þáverandi forstjóra
stofnunarinnar vegna eineltisins,
en „það vildi enginn gera neitt í
þessu“.
„Þegar ég hringdi eftir að ég
hafði sagt upp og bað um með-
mæli var bara sagt þvert nei og
skellt á,“ segir Hulda sem starfaði
í móttöku IHS í Lágmúla 9.
Svo virðist sem samúð henn-
ar með meðlagsgreiðendum hafi
unnið gegn Huldu á vinnustaðn-
um og átt þátt í meintu einelti
gegn henni, ef miðað er við frá-
sögn hennar:
„Ég hef aldrei kunnað að meta
baktal og yfirleitt geng ég burtu
þegar verið er að tala illa um fólk.
Þarna kom fólk að reyna að semja
um skuldirnar sínar og það komu
upp alls konar mál, til dæmis að
barn skipti um föðurnafn en faðir-
inn þarf samt að borga fullt meðlag
– alls konar mál – og það var alltaf
verið að gera lítið úr þessu fólki á
vinnustaðnum,“ segir Hulda.
„Ég var skömmuð fyrir að vera
of lengi í símanum og hlusta á
fólk,“ segir Hulda, sem segist ekki
hafa þolað við í því andrúms-
lofti sem hún segir hafa ríkt innan
stofnunarinnar.
Hæddust að meðlagsgreiðanda
í FB-hópi
Nokkuð athyglisvert og óvenju-
legt er að starfsfólk IHS og makar
þess eru með sameiginlegan Face-
book-hóp, Starfsfólk IS og makar.
DV hefur undir höndum skjáskot
úr hópnum sem gæti verið nokk-
uð lýsandi fyrir viðhorfið til með-
lagsgreiðenda á meðal starfsfólks
stofnunarinnar:
Starfsmaður tekur ljósmynd af
bíl meðlagsgreiðanda sem er að
aka burtu frá höfuðstöðvum IHS í
Lágmúla og deilir í hópnum með
orðunum:
„Bara venjulegur dagur í Lág-
múlanum. Þessi á rauða bílnum
var að sækja um frest.“
Margir starfsmenn setja síðan
„læk“ eða hlátursmerki við færsl-
una. Meðal þeirra er forstjórinn,
Jón Ingvar Pálsson, sem setur hlát-
ursmerki við.
Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is
VIÐ SÆKJUM
BÆTURNAR
Ekki flækja málin.
Innheimtustofnun sveitarfélaga sökuð um niður-
lægjandi framkomu í garð meðlagsgreiðenda
n Meint einelti og yfirgangur á vinnustaðnum n Forstjórinn hellti sér yfir starfsfólk eftir slaka útkomu í starfsánægjukönnun n Endurgreiddu kröfur til að forðast kæru til Umboðsmanns Alþingis
Jón Ingvar
Pálsson
forstjóri IHS.