Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 30
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Komdu með hópinn þinn í golf hjá GM! Á góðum sumardegi er tilvalið að fara með fyrir­tækið eða vinahópinn í golf. Golf er frábært hópefli og tökum við hjá GM afar vel á móti hópum. Við höfum yfir að ráða tveimur frábærum vallarsvæðum, Hlíða­ velli og Bakkakoti, sem bæði henta vel fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum. Hægt er að fá aðstoð og leiðbeiningar við uppsetningu móta hjá starfsmönnum GM. Bakkakot Bakkakotsvöllur er tilvalinn fyrir smærri hópa, en völlurinn er 9 holur og hentar kylfingum af öllum getustigum. Bakkakot er í Mosfellsdal og dásamlegt að njóta þess að spila golf í friðsældinni. Golfskálinn í Bakkakoti er afar notalegur og frábær fyrir hópa að gæða sér á veitingum fyrir eða eftir hring. Hlíðavöllur Á Hlíðavelli er frábær aðstaða fyrir smærri hópa. Við bjóðum upp á sérstaka pakka sem innihalda golf, veitingar, drykki og aðgang að hliðarsal sem tekur allt að 35 manns þar sem hópurinn þinn getur lokað að sér og átt góða stund saman. Að spila golf á Hlíðavelli er frábær upplifun fyrir þá sem kunna að meta góðar að­ stæður, flott umhverfi og glæsilegt klúbbhús. Við bjóðum upp á ýmsa þjónustu fyrir hópa sem spila hjá okkur eða halda mót. Við getum m.a: n Sett upp mót á golf.is n Annast mótsstjórn n Útbúið skorkort fyrir alla keppendur n Séð um ræsingu n Sett upp nándarmælingar n Gert upp mót að móti loknu n Prentað og tilkynnt úrslit Golfklúbbur Mosfellsbæjar rekur frábærar veitingasölur á báðum vallarsvæðum en hægt er að fá veitingar fyrir hring, eftir hring og úti á velli meðan á hring stendur. Vantar þig hugmyndir fyrir hóp- inn þinn? Viltu fjölbreytileika og nýjungar og ekki síst hugmyndir? Léttan par 3 völl fyrir suma keppendur? Afreks­ kylfing sem slær teighögg með gestum? Miðnæturmót? Eitthvað sem enginn hefur gert áður? Við hjá GM erum full af hugmyndum og áhuga á að gera mótið þitt sem allra best! Nánari upplýsingar á golfmos@golfmos.is. Við hlökkum til að heyra frá ykkur! Viltu ganga í skemmtilegasta klúbb landsins? Við hjá GM segjum gjarnan að við séum skemmtilegasti golfklúbbur landsins og gerum svo sannarlega okkar besta til að tryggja að félagsmönnum okkar líði vel og þeir séu ánægðir hjá okkur. Klúbb­ urinn stendur reglulega fyrir við­ burðum, til dæmis Masters­vöku, glæsilegu lokahófi að meistara­ móti loknu, einni skemmtilegustu bændaglímu landsins og árshátíð. Innanfélagsmótin eru mörg og fjölbreytt en þá ber helst að nefna VÍKING­deildina sem er liðakeppni, Titleist­holukeppnina og mótaröð félagsmanna. Kvennastarf GM er virkt og eru allar konur hvattar til að taka þátt í skemmtilegum mótum sem kvennanefnd stendur fyrir. Við tökum vel á móti nýjum félagsmönnum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Kynntu þér starfsemina á www.golfmos.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.