Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Qupperneq 30
Golfblaðið 26. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Komdu með hópinn
þinn í golf hjá GM!
Á góðum sumardegi er tilvalið að fara með fyrirtækið eða vinahópinn í golf.
Golf er frábært hópefli og tökum
við hjá GM afar vel á móti hópum.
Við höfum yfir að ráða tveimur
frábærum vallarsvæðum, Hlíða
velli og Bakkakoti, sem bæði henta
vel fyrir hópa af öllum stærðum
og gerðum. Hægt er að fá aðstoð
og leiðbeiningar við uppsetningu
móta hjá starfsmönnum GM.
Bakkakot
Bakkakotsvöllur er tilvalinn fyrir
smærri hópa, en völlurinn er 9
holur og hentar kylfingum af
öllum getustigum. Bakkakot er í
Mosfellsdal og dásamlegt að njóta
þess að spila golf í friðsældinni.
Golfskálinn í Bakkakoti er afar
notalegur og frábær fyrir hópa
að gæða sér á veitingum fyrir eða
eftir hring.
Hlíðavöllur
Á Hlíðavelli er frábær aðstaða
fyrir smærri hópa. Við bjóðum upp
á sérstaka pakka sem innihalda
golf, veitingar, drykki og aðgang
að hliðarsal sem tekur allt að 35
manns þar sem hópurinn þinn
getur lokað að sér og átt góða
stund saman. Að spila golf á
Hlíðavelli er frábær upplifun fyrir
þá sem kunna að meta góðar að
stæður, flott umhverfi og glæsilegt
klúbbhús.
Við bjóðum upp á ýmsa þjónustu
fyrir hópa sem spila hjá okkur
eða halda mót. Við getum m.a:
n Sett upp mót á golf.is
n Annast mótsstjórn
n Útbúið skorkort fyrir alla
keppendur
n Séð um ræsingu
n Sett upp nándarmælingar
n Gert upp mót að móti loknu
n Prentað og tilkynnt úrslit
Golfklúbbur Mosfellsbæjar rekur
frábærar veitingasölur á báðum
vallarsvæðum en hægt er að fá
veitingar fyrir hring, eftir hring og
úti á velli meðan á hring stendur.
Vantar þig hugmyndir fyrir hóp-
inn þinn?
Viltu fjölbreytileika og nýjungar og
ekki síst hugmyndir? Léttan par 3
völl fyrir suma keppendur? Afreks
kylfing sem slær teighögg með
gestum? Miðnæturmót? Eitthvað
sem enginn hefur gert áður? Við
hjá GM erum full af hugmyndum
og áhuga á að gera mótið þitt sem
allra best!
Nánari upplýsingar á
golfmos@golfmos.is.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur!
Viltu ganga í skemmtilegasta
klúbb landsins?
Við hjá GM segjum gjarnan að við
séum skemmtilegasti golfklúbbur
landsins og gerum svo sannarlega
okkar besta til að tryggja að
félagsmönnum okkar líði vel og
þeir séu ánægðir hjá okkur. Klúbb
urinn stendur reglulega fyrir við
burðum, til dæmis Mastersvöku,
glæsilegu lokahófi að meistara
móti loknu, einni skemmtilegustu
bændaglímu landsins og árshátíð.
Innanfélagsmótin eru mörg og
fjölbreytt en þá ber helst að nefna
VÍKINGdeildina sem er liðakeppni,
Titleistholukeppnina og mótaröð
félagsmanna. Kvennastarf GM er
virkt og eru allar konur hvattar
til að taka þátt í skemmtilegum
mótum sem kvennanefnd stendur
fyrir.
Við tökum vel á móti nýjum
félagsmönnum, jafnt byrjendum
sem lengra komnum. Kynntu þér
starfsemina á www.golfmos.is