Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 45
KYNNING
Laugardaginn 27. apríl verður haldin glæsileg brúðkaupskynning í Kúnígúnd í Kringlunni
frá klukkan 13.00 til 17.00.
Segja má að brúðkaups kynningin
sé orðin að árlegum viðburði á veg
um Kúnígúnd þar sem brúð hjónum
er boðið að koma og kynna sér
allt það helsta sem snýr að loka
undirbúningnum fyrir stóra daginn.
Kúnígúnd býður upp á
sam setningu gjafalista fyrir brúð
hjón, sem fer vaxandi í vinsældum,
og býður inneign fyrir 15% af heildar
upphæð þess sem verslað er fyrir af
listanum.
Á brúðkaupskynningunni fær
Kúnígúnd til sín góða gesti úr ýmsum
áttum. Til dæmis verða glæsilegar
brúðartertur til sýnis og boðið upp á
kökusmakk frá 17 sortum, þá verður
skartgripaverslun Jens með fulltrúa
sem sýnir það helsta í brúðarskartinu.
M.a. glæsilegt skart frá Georg Jensen
en Georg Jensen heimilisvörurnar
hafa lengi verið fáanlegar í Kúnígúnd.
Þá mun Blómagallerý sýna það
vinsælasta í blómaskreytingum fyrir
brúðkaupið og boðið verður upp á
vínráðgjöf svo brúðhjón geti kynnt sér
hvað hentar með matnum sem þau
hafa valið í veisluna.
Happdrætti og uppdekkað borð
eftir Tobbu Marinós
Gestir geta svo sótt sér innblástur og
skoðað uppdekkað borð eftir Tobbu
Marinós en hún hefur sett saman
borð með fallegum borðbúnaði frá
Kúnígúnd, allt frá dúkum og munn
þurkum yfir í matarstell og hnífapör.
Tobba hefur einnig tekið saman
hugmyndir að flottum brúðargjöfum
sem fást í Kúnígúnd svo gestir geta
sótt innblástur hvort sem er fyrir sinn
eigin gjafalista eða sem brúðkaups
gestir.
Einnig verður happdrætti fyrir
brúðhjón sem mæta á staðinn og
stofna brúðargjafalista samdægurs
en brúðhjónin geta unnið glæsilegan
hágæða steypujárnspott frá Le
Creuset sem er sannkölluð lífstíðar
eign.
Í Kúnígúnd fæst mikið úrval af
vönduðum borðbúnaði. Má þar
helst nefna matarstellin frá Royal
Copenhagen sem hafa notið mikilla
vinsælda hér á landi. Einnig fæst
þar mikið úrval af matarstellum frá
Villeroy & Boch og Rosendahl ásamt
fleirum.
Glös eru nauðsynleg á veislu
borðið og það er úr mörgu að velja í
Kúnígúnd. Erik Bagger glösin vinsælu
fást í mörgum stærðum og gerðum í
Kúnígúnd ásamt vönduðum glösum
frá Rosendahl, Georg Jensen, Home
og fleira.
Brúðkaupskynning Kúnígúnd er því
kjörið tækifæri til þess að kynna sér
allt það helsta sem snýr að loka
skrefum í brúðkaupsundirbúningi;
kökum, vali á blómum, skarti og
brúðargjafalistum sem auðvelda
brúðkaupsgestum lífið svo um
munar þegar kemur að valinu á réttu
brúðargjöfinni. Starfsfólk Kúnígúnd
er stútfullt af sérþekkingu á sínum
vörum og hjálpar brúðhjónum að
setja upp hinn fullkomna brúðar
gjafalista fyrir þeirra framtíðarheimili.
Það er hægt að skrá sig á
Facebookviðburðinn á Facebook:
Kúnígúnd
Brúðargjafalista Kúnígúnd má
kynna sér betur á vefsíðunni
kunigund.is
Brúðkaupskynning
í Kúnígúnd