Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Síða 46
FERÐALÖG 26. apríl 201946
Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
BÍLAMERKINGAR
BANNER-UP
SÓLARFILMUR
Ráðgjöf
Hönnun
Framleiðsla
Uppsetning
Eyjan mín, Tenerife
Snæfríður Ingadóttir og fjölskylda ákváðu að búa einn vetur á eyjunni
S
næfríður Ingadóttir ferða
bókahöfundur hefur búið á
Tenerife í vetur, ásamt eig
inmanni sínum, Matthíasi
Kristjánssyni, og þremur dætrum
þeirra, Bryndísi, 5 ára, Margréti
Sóley, 9 ára, og Ragnheiði Ingu, 11
ára.
„Eins og svo margir sem búa á
norðlægum slóðum þá dreymdi
okkur hjónin um að prófa að búa
á sólríkari slóðum. Við höfum
undanfarin ár ferðast mikið til
Kanaríeyja á veturna og heillast
mjög af eyjunum, ekki síst Tene
rife. Eftir okkar síðasta ferðalag
hingað ákváðum við að láta slag
standa og prófa að búa hérna einn
vetur. Við komum hingað síð
astliðið haust og förum til baka í
júní. Þessi vetur hefur liðið allt of
hratt og það hefur verið heilmikið
ævintýri að búa hérna. Við kom
um hingað alveg mállaus og byrj
unin var því ekki auðveld fyrir
stelpurnar okkar sem fóru beint í
spænskan skóla en þær eru núna
altalandi á spænsku. Það verða
mikil viðbrigði að koma aftur til
Akureyrar þar sem við búum,
því við erum orðin góðu vön hér
hvað varðar hlýtt veðurfar og gott
mataræði,“ segir Snæfríður, sem
deilir nokkrum af sínum uppá
haldsstöðum með lesendum DV.
Kann vel við sig á Vindheima-
melum
„Við búum í strandbæ sem heitir
El Médano og er á suðurhluta eyj
unnar. Við komum hingað fyrst í
íbúðaskipti fyrir nokkrum árum
og heilluðumst af stemmingunni
í þessum bæ. Þetta er alls ekki fal
legasti bærinn á eyjunni, það er
til dæmis nánast enginn gróður
hérna. Íslenskir gárungar hér á
eyjunni kalla bæinn Vindheima
mela, því hér blæs mun meira en
á flestöllum öðrum stöðum á eyj
unni,“ segir Snæfríður. „Við kunn
um hins vegar vel við rokið og
dætur okkar eru að læra „vindsörf“
svo staðsetningin hentar okkur
vel. Þessi bær er líka þægilega lít
ill, það er allt í göngufæri hérna
og skemmtilegt að ganga strand
lengjuna á morgnana og alla leið
upp á bæjarfjallið, Montana Roja.“
Aðspurð hvort hún vilji flytja á
annan stað á eyjunni og þá hvaða
stað, svarar Snæfríður að hún sé
mjög ánægð í El Médano en ef
hún myndi færa sig um set þá yrði
borgin Puerto de la Cruz líklega
fyrir valinu. „Hún er á norðurhluta
eyjunnar og er algjör andstæða
við El Médano. Borgin er gróður
sæl og þar er mjög skemmtilegan
arkitektúr að finna auk fjölbreytts
úrvals af veitinga og kaffihúsum.“
Stemmingin á Tenerife friðsæl
og fólk lífsglatt
Tenerife er ekki stór eyja, um 50
sinnum minni en Ísland, en þrátt
fyrir smæðina er eyjan afar afar
fjölbreytt og margt að sjá og upp
lifa að sögn Snæfríðar. „Það er
þægilegt að ferðast um eyjuna og
yfirleitt hægt að ná öllum áfanga
stöðum í dagsferð, sem mér finnst
mikill kostur. Hér eru engin árásar
gjörn dýr en samt er loftslag og
gróður mjög hitabeltislegur. Ekki
spillir heldur fyrir hversu vinaleg
ir íbúarnir eru og maturinn ferskur
og fjölbreyttur. Stemmingin á eyj
unni er í heildina mjög friðsæl og
fólk almennt mjög lífsglatt.
Það er mjög auðvelt að ferð
ast um Tenerife á eigin bíl. All
ir vegir, jafnvel minnstu fjallaveg
ir, eru malbikaðir en einnig er gott
strætókerfi hérna. Við fjölskyld
an notum bílinn ekki mikið dags
daglega þar sem öll þjónusta er í
göngufæri við okkur, en við för
um gjarnan í dagsferðir um helg
ar. Um páskana prófuðum við að
leigja húsbíl og ferðuðumst á hon
um um eyjuna og það var áhuga
verð upplifun. Fyrir örugga öku
menn er alveg hægt að mæla með
því, enda tiltölulega ódýrt að leigja
húsbíl hérna.“
Kynnist matarmenningu
heimamanna vel í matarboðum
Aðspurð hvert fjölskyldan fari út
að borða, bæði hversdags og til
hátíðabrigða, svarar Snæfríður að
þau reyni að heimsækja nýja staði
í hvert sinn, en njóti þess þó líka að
borða heima. „Þegar við förum út
að borða þá verða iðulega spænsk
ir hverfisstaðir fyrir valinu. Við
reynum að heimsækja nýja staði
í hvert sinn svo við eigum engan
uppáhaldsstað sem við heimsækj
um aftur og aftur. Við erum mjög
hrifin af „guachinches“menn
ingunni hérna, veitingastöðum
sem vínframleiðendur halda úti í
þrjá mánuði á ári. Í vínræktarhér
uðunum á norðurhluta eyjunnar
er flesta þessa staði að finna. Við
njótum þess annars að borða sem
mest heima, því það er svo frábært
úrval af góðri og ferskri matvöru í
verslununum hérna. Við förum á
bændamarkað einu sinni í viku og
kaupum þar inn brakandi ferskt
grænmeti og ávexti fyrir vikuna.
Geitarostur er oft á borðum og að
sjálfsögðu kanarísk vín. Við eigum
mikið af spænskum vinum hér á
eyjunni sem eru duglegir að bjóða
okkur í mat um helgar og í gegn
um öll þessi matarboð höfum við
kynnst matarmenningu heima
manna mjög vel.“
Á stuttbuxum allan veturinn
Snæfríður segir að á Tenerife sé
ekkert sem heitir „fyrir utan ferða
mannatímabilið.“ „Það er alltaf
góður tími til þess að heimsækja
Tenerife því hér er alltaf gott veð
ur. Fyrir Íslendinga sem eru að
leita að vetrarsól þá er Tenerife,
og Kanaríeyjar allar, mjög góð
ur kostur því þær eru eini áfanga
staðurinn í Evrópu þar sem hægt
er að ganga að góðu veðri vísu yfir
köldustu vetrarmánuðina,“ segir
Snæfríður. „Júlí og ágúst eru heitu
stu mánuðirnir en þar sem þetta er
eyja er alltaf stutt í kælandi hafgolu
svo það verður sjaldan óbærilega
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Fallegt landslag
Séð yfir bæinn Los
Gigantes á vestur-
hluta eyjunnar.
Fjallganga
Snæfríður á
göngu í Anaga-
fjöllunum. Þessi
gönguleið er
ein af leiðunum
sem lýst er í
handbókinni
Ævintýraeyjan
Tenerife og
liggur frá Cruz
del Carmen til
Chinamada.
Bananarækt
Það er mjög mikil
bananaræktun
á Tenerife.
Snæfríður mælir
með heimsókn
á bananabú-
garðinn Las
Finca Margaritas
þar sem hægt er
að fræðast um
þessar sérstöku
plöntur og
smakka á afurð-
um úr bönunum.