Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Side 54
54 FÓKUS - VIÐTAL 26. apríl 2019 NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR KVÍSLARTUNGA 9, 270 MOSFELLSBÆR 86.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús á 2 hæðum 286 M2 7 SKYGGNISBRAUT 26 - 28, 113REYKJAVÍK 64.800.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 135 M2 5 NAUSTABRYGGJA 31, 110 REYKJAVÍK 79.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 184 M2 6 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT E ngill Bjartur er eitt yngsta starfandi ljóðskáld lands- ins. Í desember í fyrra sendi hann frá sér fyrstu ljóða- bókina, Vígslu, sem hefur að geyma 40 frumsamin ljóð sem hann orti á aldrinum 17 til 20 ára. Engill yrkir um allt milli himins og jarðar, ástina, náttúruna, og einnig hversdagsleg fyrirbæri á borð við svefn og kaffi. DV ræddi við Engil Bjart. Vopnaður móðurmálinu og greiðsluposa Engill er bjartsýnn og vígreifur þegar hann ræðir um við- tökurnar við bókinni. „Enginn trúði því að Vígsla myndi seljast,“ segir hann. „Mér var ráðlagt að takmarka upplagið við 50 eintök. „Enginn græðir á ljóðabókum, ljóðabækur seljast ekki, ljóð- listin er útdautt listform,“ sögðu raddir efahyggjufólksins. En mér hefur tekist að áorka því ógerlega: Gefa út ljóðabók tvítugur sem rokselst. Frá því laust fyrir jól, hef ég haft það sem helgarvinnu að ganga í hús og selja Vígslu – vopnaður móðurmálinu, ljúfri lyndiseinkunn og 3G-greiðsluposa. Nú eru 260 eintök seld af fyrsta upplagi og er önnur prentun komin í hús, aukin og endurbætt. Fyrst hélt ég að árangur- inn væri tengdur jólunum og meðfylgjandi kaupgleði land- ans. En það afsannaðist í mars, sem var söluhæsti mánuður minn til þessa.“ Söluævintýrin Engill segist þakklátur fyrir þá blessun að geta stundað þá vinnu sem hann elskar og haft lifbrauð, eða lifibrauðskorp- ur eins og hann segir, af því. „Fyrir ungskáld eins og mig sem meinað er um lista- mannalaun er það huggun harmi gegn. Það eru engir tveir vinnudagar eins. En tvennt breytist aldrei. Allir eru kurteis- ir, jafnvel þeir sem afþakka. Og í söluferðunum kemur alltaf eitthvað á óvart.“ Þú hefur lent í ýmsum söluævintýrum. En hver eru þau helstu? „Eitt sinn lauk upp fyrir mér indæliskona sem sagðist glöð vilja kaupa. Maðurinn hennar væri nefnilega líka rit- höfundur. Sá maður reyndist vera Jón Kalman Stefánsson. Hann var að vísu ekki heima en það vildi þannig til að hann átti afmæli daginn eftir. Ég áritaði bókina auðvitað handa honum í afmælisgjöf.“ Engill heldur áfram. „Á sólríkum sunnudegi, í upphafi mánaðar, gekk ég milli fólks í miðbænum. Þegar ég var búinn að selja fiðluleik- ara, Þjóðverja og einum lögfræðingi, mætti ég geðþekkum manni nokkrum í svörtum leðurjakka. Það var enginn ann- ar en rithöfundurinn Einar Kárason sem var á gangi eftir Flókagötunni. Þá er ónefnd „englakonan“ og rithöfundurinn Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir sem tók ástfóstri við engla þegar bróð- ir hennar bjargaðist frá voða í æsku á undraverðan hátt. Hún var mjög heilluð af nafninu mínu og vildi ekki aðeins taka mynd til að birta á Facebook, heldur einnig gefa mér eintak af nýjustu barnabók sinni, Krumma Króm. Þetta er ekki eina gjöfin sem ég hef fengið frá viðskiptavinum. Mér hefur einnig verið gefin bænabók, ljóðasafn, ævisaga og geisladiskur eftir saxófónleikarann Hans Jensson.“ Seldi á Tenerife Margir eru nú byrjaðir að þekkja Engil Bjart af afspurn, ljóð- skáldið sem gengur í hús, les og selur. Viðskiptavinirnir eru á öllum aldri, frá 4 til 84 ára. Fátt veitir Engli meiri ánægju en að árita fyrir börnin sem fylgjast spennt með í dyragættinni. „Framtíð íslenskrar tungu er í höndum æskunnar. Lang- flestir kaupendur hafa yndi af ljóðlist. En þó er það ekki al- gilt. Ég gleymi til dæmis aldrei orðum eins mannsins sem keypti af mér í miðju jólaharkinu: „Æ, ætli ég kaupi þá ekki ljóðabók svona einu sinni á ævinni!“ Engill hefur einnig lagst í víking og selt utan landstein- anna. En það var reyndar fyrir tilviljun. „Í febrúar brá ég undir mig betri fætinum og fór í „skáldaleyfi“ til Tenerife. Vitanlega gerði ég ekki ráð fyrir því að selja neitt þar. En einn daginn sat ég úti á veitingastað og var að glugga í Skáldatíma eftir Halldór Laxness, einu bók- ina sem ég hafði í fórum mínum. Og áður en langt um leið greip maður í öxlina á mér og sagði á íslensku: „Ég sé að þú ert bókmenntamaður.“ Þetta var hann Steinar Harðarson, formaður VG í Reykjavík, en hann hafði setið við næsta borð ásamt eiginkonu sinni, Dagnýju, og rekið augun í hina al- kunnu röndóttu Laxnesskápu. Ég átti yndislegt bókaspjall við þau hjón úti í sólinni og þegar heim var komið, keyptu þau glöð eintak af Vígslu. Ljóðlistin spyr ekki um landa- mæri.“ Hvað er næst á döfinni hjá þér? „Það má segja að ég sé athafnaskáld. Ég legg að minnsta kosti allt í sölurnar til að selja Vígslu – bókstaflega. Nú bíða 300 ný eintök þess í ofvæni að komast í hillur ljóðel- skra landsmanna þegar veður leyfir. Ljóðabókasala er eitt óreglulegasta starf sem hugsast getur en það er einnig með þeim skemmtilegri. Vígsla markar mitt fyrsta skref fram á ritvöllinn. Og skrefateljarar munu missa tölu á komandi skrefum. Þegar páskahretið hrekur mig úr hverfum borg- arinnar, er fátt betra en að setjast inn og vinna í komandi bókum. Ég er núna að skrifa skáldsögu í fullri lengd sem er væntanleg haustið 2020,“ segir Engill. LEYNDARDÓMUR Aldrei hef ég lifað nokkuð þessu líkt; lífið af fögrum leyndardómi er ríkt. Eitt atvik kann raunum einhæfni að rifta og rauðum tjöldum leiksviðs að lyfta. Það er svo margt sem mér er enn leynt og minnst fæ ég vitað er mest hef ég reynt. En er ég þönkunum nokkuð næ niður þá nálgast mig lífsins leikritasmiður. Hann mark sitt á litlausa tilveru leggur og leikandi á fábreytnifjötrana heggur. Og skeleggur leik ég – því það hef ég lært – í leikþætti er forlögin mér hafa fært. – Ég frið á í hjarta sem ekkert fær bært. Engill Bjartur 2017 Eitt yngsta starfandi ljóðskáld landsins – Skrifar skáldsögu Engill Bjartur leggur allt í sölurnar Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.