Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2019, Page 54
54 FÓKUS - VIÐTAL 26. apríl 2019
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
KVÍSLARTUNGA 9, 270 MOSFELLSBÆR
86.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús á 2 hæðum
286 M2
7
SKYGGNISBRAUT 26 - 28, 113REYKJAVÍK
64.800.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
135 M2
5
NAUSTABRYGGJA 31, 110 REYKJAVÍK
79.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
184 M2
6
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
E
ngill Bjartur er eitt yngsta starfandi ljóðskáld lands-
ins. Í desember í fyrra sendi hann frá sér fyrstu ljóða-
bókina, Vígslu, sem hefur að geyma 40 frumsamin
ljóð sem hann orti á aldrinum 17 til 20 ára. Engill yrkir
um allt milli himins og jarðar, ástina, náttúruna, og einnig
hversdagsleg fyrirbæri á borð við svefn og kaffi. DV ræddi
við Engil Bjart.
Vopnaður móðurmálinu og greiðsluposa
Engill er bjartsýnn og vígreifur þegar hann ræðir um við-
tökurnar við bókinni.
„Enginn trúði því að Vígsla myndi seljast,“ segir hann.
„Mér var ráðlagt að takmarka upplagið við 50 eintök.
„Enginn græðir á ljóðabókum, ljóðabækur seljast ekki, ljóð-
listin er útdautt listform,“ sögðu raddir efahyggjufólksins.
En mér hefur tekist að áorka því ógerlega: Gefa út ljóðabók
tvítugur sem rokselst. Frá því laust fyrir jól, hef ég haft það
sem helgarvinnu að ganga í hús og selja Vígslu – vopnaður
móðurmálinu, ljúfri lyndiseinkunn og 3G-greiðsluposa. Nú
eru 260 eintök seld af fyrsta upplagi og er önnur prentun
komin í hús, aukin og endurbætt. Fyrst hélt ég að árangur-
inn væri tengdur jólunum og meðfylgjandi kaupgleði land-
ans. En það afsannaðist í mars, sem var söluhæsti mánuður
minn til þessa.“
Söluævintýrin
Engill segist þakklátur fyrir þá blessun að geta stundað þá
vinnu sem hann elskar og haft lifbrauð, eða lifibrauðskorp-
ur eins og hann segir, af því.
„Fyrir ungskáld eins og mig sem meinað er um lista-
mannalaun er það huggun harmi gegn. Það eru engir tveir
vinnudagar eins. En tvennt breytist aldrei. Allir eru kurteis-
ir, jafnvel þeir sem afþakka. Og í söluferðunum kemur alltaf
eitthvað á óvart.“
Þú hefur lent í ýmsum söluævintýrum. En hver eru þau
helstu?
„Eitt sinn lauk upp fyrir mér indæliskona sem sagðist
glöð vilja kaupa. Maðurinn hennar væri nefnilega líka rit-
höfundur. Sá maður reyndist vera Jón Kalman Stefánsson.
Hann var að vísu ekki heima en það vildi þannig til að hann
átti afmæli daginn eftir. Ég áritaði bókina auðvitað handa
honum í afmælisgjöf.“
Engill heldur áfram.
„Á sólríkum sunnudegi, í upphafi mánaðar, gekk ég milli
fólks í miðbænum. Þegar ég var búinn að selja fiðluleik-
ara, Þjóðverja og einum lögfræðingi, mætti ég geðþekkum
manni nokkrum í svörtum leðurjakka. Það var enginn ann-
ar en rithöfundurinn Einar Kárason sem var á gangi eftir
Flókagötunni.
Þá er ónefnd „englakonan“ og rithöfundurinn Ingibjörg
Kr. Ferdinandsdóttir sem tók ástfóstri við engla þegar bróð-
ir hennar bjargaðist frá voða í æsku á undraverðan hátt.
Hún var mjög heilluð af nafninu mínu og vildi ekki aðeins
taka mynd til að birta á Facebook, heldur einnig gefa mér
eintak af nýjustu barnabók sinni, Krumma Króm. Þetta er
ekki eina gjöfin sem ég hef fengið frá viðskiptavinum. Mér
hefur einnig verið gefin bænabók, ljóðasafn, ævisaga og
geisladiskur eftir saxófónleikarann Hans Jensson.“
Seldi á Tenerife
Margir eru nú byrjaðir að þekkja Engil Bjart af afspurn, ljóð-
skáldið sem gengur í hús, les og selur. Viðskiptavinirnir eru
á öllum aldri, frá 4 til 84 ára. Fátt veitir Engli meiri ánægju en
að árita fyrir börnin sem fylgjast spennt með í dyragættinni.
„Framtíð íslenskrar tungu er í höndum æskunnar. Lang-
flestir kaupendur hafa yndi af ljóðlist. En þó er það ekki al-
gilt. Ég gleymi til dæmis aldrei orðum eins mannsins sem
keypti af mér í miðju jólaharkinu: „Æ, ætli ég kaupi þá ekki
ljóðabók svona einu sinni á ævinni!“
Engill hefur einnig lagst í víking og selt utan landstein-
anna. En það var reyndar fyrir tilviljun.
„Í febrúar brá ég undir mig betri fætinum og fór í
„skáldaleyfi“ til Tenerife. Vitanlega gerði ég ekki ráð fyrir því
að selja neitt þar. En einn daginn sat ég úti á veitingastað og
var að glugga í Skáldatíma eftir Halldór Laxness, einu bók-
ina sem ég hafði í fórum mínum. Og áður en langt um leið
greip maður í öxlina á mér og sagði á íslensku: „Ég sé að þú
ert bókmenntamaður.“ Þetta var hann Steinar Harðarson,
formaður VG í Reykjavík, en hann hafði setið við næsta borð
ásamt eiginkonu sinni, Dagnýju, og rekið augun í hina al-
kunnu röndóttu Laxnesskápu. Ég átti yndislegt bókaspjall
við þau hjón úti í sólinni og þegar heim var komið, keyptu
þau glöð eintak af Vígslu. Ljóðlistin spyr ekki um landa-
mæri.“
Hvað er næst á döfinni hjá þér?
„Það má segja að ég sé athafnaskáld. Ég legg að minnsta
kosti allt í sölurnar til að selja Vígslu – bókstaflega. Nú
bíða 300 ný eintök þess í ofvæni að komast í hillur ljóðel-
skra landsmanna þegar veður leyfir. Ljóðabókasala er eitt
óreglulegasta starf sem hugsast getur en það er einnig með
þeim skemmtilegri. Vígsla markar mitt fyrsta skref fram
á ritvöllinn. Og skrefateljarar munu missa tölu á komandi
skrefum. Þegar páskahretið hrekur mig úr hverfum borg-
arinnar, er fátt betra en að setjast inn og vinna í komandi
bókum. Ég er núna að skrifa skáldsögu í fullri lengd sem er
væntanleg haustið 2020,“ segir Engill.
LEYNDARDÓMUR
Aldrei hef ég lifað nokkuð þessu líkt;
lífið af fögrum leyndardómi er ríkt.
Eitt atvik kann raunum einhæfni að rifta
og rauðum tjöldum leiksviðs að lyfta.
Það er svo margt sem mér er enn leynt
og minnst fæ ég vitað er mest hef ég reynt.
En er ég þönkunum nokkuð næ niður
þá nálgast mig lífsins leikritasmiður.
Hann mark sitt á litlausa tilveru leggur
og leikandi á fábreytnifjötrana heggur.
Og skeleggur leik ég – því það hef ég lært
– í leikþætti er forlögin mér hafa fært.
– Ég frið á í hjarta sem ekkert fær bært.
Engill Bjartur 2017
Eitt yngsta starfandi ljóðskáld
landsins – Skrifar skáldsögu
Engill
Bjartur
leggur allt
í sölurnar
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is