Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 16
16 PRESSAN 31. maí 2019
Þ
egar smygl rak á land á
Azoreyjum árið 2001 grun-
aði engan að það myndi
hafa mikil áhrif á líf eyja-
skeggja og hvað þá enn, tæpum
tuttugu árum síðar. Um hálft tonn
af kókaíni var að ræða. Ekki leið á
löngu frá strandinu þar til kókaín-
ið flæddi nánast um götur eyjunn-
ar Sao Miguel. Efnið var mjög sterkt
og enn þann dag í dag hefur þetta
strand og það sem gerðist í kjölfarið
mikil áhrif á líf eyjaskeggja.
Það var um hádegisbil þann 6.
júní 2001 sem heimamenn í Pilar
da Bretanha, sem er sókn á norð-
vesturtanga Sao Miguel, sáu 40
feta hvíta skútu sem rak stjórn-
laust nærri klettabelti. Þeir höfðu
aldrei séð bát af þessari stærð
svona nærri þessum hluta strand-
lengjunnar en þar er grunnt,
sterkir straumar og hnífbeitt sker.
Þeir töldu að hér hefði viðvaning-
ur villst. En í raun var vanur sjó-
maður við stýrið. Síðar fundust
tvö ítölsk vegabréf, spænskt vega-
bréf og fleira í fórum hans. Á öll-
um þessum skilríkjum var mynd
af þessum sama manni, 44 ára
með veðraða húð og dökkt hrokk-
ið hár. En nöfnin voru ólík í öllum
þessum skilríkjum. Frá því í mars
og þar til þennan júnídag hafði
hann siglt tvisvar yfir Atlantshaf-
ið frá Kanaríeyjum til Venesúela
og aftur til baka. Hann átti að sigla
skútunni til meginlands Spánar en
heimferðin hafði verið erfið, vond
veður og skútan hafði orðið fyrir
skemmdum. Hann vissi að hann
myndi ekki ná til Spánar án við-
komu svo hann setti stefnuna á
Sao Miguel sem er stærsta eyjan
í Azoreyjaklasanum sem tilheyr-
ir Portúgal. En hann gat ekki siglt
beint inn í höfnina þar því ef yfir-
GRÆNA TUNNAN
AUÐVELDAR FLOKKUNINA
Pappír, pappa, plast og minni málmhluti
má setja beint í tunnuna - Muna að skola
Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta
577 5757
Kókaín Eyjan varð ekki söm.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hálft tonn af
kókaíni rak á land
Breytti lífi eyjaskeggja til frambúðar
Antonino Quinci Óheppinn
kókaínsmyglari.