Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 78
78 31. maí 2019FRÉTTIR - RÍKIR ÍSLANDSVINIR
Kannast þú við þetta vandamál?
• Lítil eða slöpp þvagbuna
• Tíð þvaglát
• Næturþvaglát
• Erfitt að hefja þvaglát
• Þvaglegi eða erfitt að stöðva þvaglát
• Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir það síðasta
• Sviði eða sársauki við þvaglát
Getur veitt lausn gegn tíðum þvaglátum
sem verða vegna góðkynja stækkunar frá
blöðruhálskirtli.
™
Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Útlendingar sem tekið
hafa ástfóstri við Ísland
Ísland hefur ávallt verið viðkomustaður hinna frægu og ríku.
Margar stjörnur Hollywood koma hingað í kyrrþey og fá að rölta
í miðbæ Reykjavíkur í friði og ró fyrir ljósmyndurum og æstum
aðdáendum, Ísland er orðinn viðkomustaður í tónleikaferðalög-
um poppstjarna og margar stórmyndir og þáttaraðir hafa verið
teknar í heild eða að hluta hér á landi.
Sumar stjörnur heimsækja landið ítrekað og nokkrar þeirra hafa
hreinlega kosið að setjast hér að.
Breski auðkýfingurinn James Ratcliffe á 89% í eignarhalds-
félaginu Grænaþing, en félagið á fjölda jarða í Vopnafirði
ásamt veiðifélaginu Streng ehf. sem leigir meðal annars Selá
og Hofsá í firðinum. Kaupverð var ekki gefið upp og því ekki
vitað nákvæmlega hversu margar jarðir eignarhaldsfélagið
Grænaþing á, svo fjölda jarða sem Ratcliffe á hér á landi eftir
kaupin er ekki vitað.
Fréttablaðið greindi frá því í nóvember að jarðeigendur í
Vopnafirði hafi lýst því hvernig Ratcliffe hefur reynt að kaupa
jarðir á svæðinu og hafi það framkallað deilur innan fjöl-
skyldna um hvort selja eigi jarðirnar eða ekki. Oftar en ekki
hafi lögfræðiskrifstofur eða fasteignasölur sent eigendum
jarða kauptilboð frá ónefndum erlendum aðila.
Athafnamaðurinn og listasafnarinn William
Oliver Luckett tók ástfóstri við Ísland í
tveggja mánaða fríi á Íslandi árið 2016.
Sama ár festi Luckett kaup á Kjarvalshúsinu,
Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi fyrir 180 millj-
ónir króna. Húsið er 443 fm og fasteigna-
mat þess er 178.500.000 kr. Húsið var byggt
árið 1969 og var gjöf íslensku þjóðarinnar til
listamannsins Jóhannesar Kjarvals, teikn-
að af Þorvaldi S. Þorvaldssyni arkitekt með
sérþarfir Kjarvals í huga. Hann bjó þó aldrei
í húsinu.
Luckett og kærasti hans, Scott Quinn,
giftu sig sumarið 2017 í sveitabrúðkaupi á
Hótel Borealis við Úlfljótsvatn á Suðurlandi.
Hjónin hafa í mörg ár verið ötulir kaup-
endur að íslenskri list og eiga hundruð
listaverka eftir íslenska listamenn. Prýða
þau heimili þeirra á nesinu og í viðtali við
My Modern Met í byrjun árs má sjá fjölda
mynda sem teknar eru á heimilinu.
Tékkneskur Óskarsverðlaunahafi
Marketa Irglova er tékkneskur tónlistarmaður sem hlaut
Óskarsverðlaun árið 2008 fyrir lagið Falling Slowly í írskri
kvikmynd, Once. Þá var hún aðeins 19 ára gömul og yngsti
einstaklingurinn sem hlotið hefur styttuna eftirsóttu ef utan
eru skildir leiklistarflokkarnir. Marketa lék einnig annað aðal-
hlutverkið í myndinni.
Marketa býr á Sólvallagötu 16 ásamt eiginmanni sínum,
Sturlu Míó Þórissyni upptökustjóra og þremur börnum þeirra.
Húsið er 238,1 fm og fasteignamat þess er 125.350.000 kr. Húsið er skráð á fyrirtæki
þeirra, Kjarneplið ehf., sem einnig á upptökuver að Barðaströnd 51, Seltjarnarnesi.
Húsið þar er 324,6 fm og fasteignamat þess er 117.950.000 kr.
Auðkýfingur eignast Vopnafjörð
Athafnamaður eignast listamannshús
Nýsjálenski leikarinn og heimshornaflakkarinn
Manu Bennett hefur margoft heimsótt Ísland, sem
heillaði hann í hans fyrstu heimsókn árið 2015.
Hann segist vera fjarskyldur ættingi okkar, víking-
anna í norðri, sjálfur maóríinn, víkingurinn úr suðri.
Manu er mikill áhugamaður um sögu og einnig mik-
ill mannvinur og dýravinur. Hann hefur vakið athygli
á heimsvísu fyrir hlutverk sín sem skylmingaþræll-
inn Crixus í þáttunum Spartacus, illmennið Sladde
Wilson/Deathstroke í Arrow, presturinn Allanon í
The Shannara Chronicles og Azog, foringi Orka, í
þríleiknum um Hobbitann. DV hefur heimildir fyr-
ir því að Bennett vilji fjárfesta í íbúð í Reykjavík, en
hvort að hann hafi látið verða af því er ekki vitað.
James Ratcliffe hefur keypt upp jarðir á Íslandi.
Víkingurinn úr suðri
Damon Albarn er söngvari, laga-
höfundur og forsprakki hljómsveit-
anna Blur og Gorillaz, sem voru
á hátindi frægðarinnar á tíunda
áratugnum. Hinn 24. ágúst 1996
var Albarn í einkaviðtali við DV
þar sem hann sagðist ná sambandi
við raunveruleikann á Íslandi sem
honum tækist alls ekki í London.
„Ég saknaði Íslands eftir að ég var
farinn til Bretlands og hlakka auð-
vitað mikið til þess að koma aftur,
annars væri ég ekki að koma.“
Albarn líkaði svo vel við Ísland
og íbúa landsins að hann keypti
hlut í Kaffibarnum og einbýlishús
að Bakkastöðum 109 í Reykjavík.
Húsið er 310,6 fm og fasteignamat
þess er 107.450.000 kr.
Poppstjarna kaupir Kaffibarinn