Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 78
78 31. maí 2019FRÉTTIR - RÍKIR ÍSLANDSVINIR Kannast þú við þetta vandamál? • Lítil eða slöpp þvagbuna • Tíð þvaglát • Næturþvaglát • Erfitt að hefja þvaglát • Þvaglegi eða erfitt að stöðva þvaglát • Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir það síðasta • Sviði eða sársauki við þvaglát Getur veitt lausn gegn tíðum þvaglátum sem verða vegna góðkynja stækkunar frá blöðruhálskirtli. ™ Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Útlendingar sem tekið hafa ástfóstri við Ísland Ísland hefur ávallt verið viðkomustaður hinna frægu og ríku. Margar stjörnur Hollywood koma hingað í kyrrþey og fá að rölta í miðbæ Reykjavíkur í friði og ró fyrir ljósmyndurum og æstum aðdáendum, Ísland er orðinn viðkomustaður í tónleikaferðalög- um poppstjarna og margar stórmyndir og þáttaraðir hafa verið teknar í heild eða að hluta hér á landi. Sumar stjörnur heimsækja landið ítrekað og nokkrar þeirra hafa hreinlega kosið að setjast hér að. Breski auðkýfingurinn James Ratcliffe á 89% í eignarhalds- félaginu Grænaþing, en félagið á fjölda jarða í Vopnafirði ásamt veiðifélaginu Streng ehf. sem leigir meðal annars Selá og Hofsá í firðinum. Kaupverð var ekki gefið upp og því ekki vitað nákvæmlega hversu margar jarðir eignarhaldsfélagið Grænaþing á, svo fjölda jarða sem Ratcliffe á hér á landi eftir kaupin er ekki vitað. Fréttablaðið greindi frá því í nóvember að jarðeigendur í Vopnafirði hafi lýst því hvernig Ratcliffe hefur reynt að kaupa jarðir á svæðinu og hafi það framkallað deilur innan fjöl- skyldna um hvort selja eigi jarðirnar eða ekki. Oftar en ekki hafi lögfræðiskrifstofur eða fasteignasölur sent eigendum jarða kauptilboð frá ónefndum erlendum aðila. Athafnamaðurinn og listasafnarinn William Oliver Luckett tók ástfóstri við Ísland í tveggja mánaða fríi á Íslandi árið 2016. Sama ár festi Luckett kaup á Kjarvalshúsinu, Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi fyrir 180 millj- ónir króna. Húsið er 443 fm og fasteigna- mat þess er 178.500.000 kr. Húsið var byggt árið 1969 og var gjöf íslensku þjóðarinnar til listamannsins Jóhannesar Kjarvals, teikn- að af Þorvaldi S. Þorvaldssyni arkitekt með sérþarfir Kjarvals í huga. Hann bjó þó aldrei í húsinu. Luckett og kærasti hans, Scott Quinn, giftu sig sumarið 2017 í sveitabrúðkaupi á Hótel Borealis við Úlfljótsvatn á Suðurlandi. Hjónin hafa í mörg ár verið ötulir kaup- endur að íslenskri list og eiga hundruð listaverka eftir íslenska listamenn. Prýða þau heimili þeirra á nesinu og í viðtali við My Modern Met í byrjun árs má sjá fjölda mynda sem teknar eru á heimilinu. Tékkneskur Óskarsverðlaunahafi Marketa Irglova er tékkneskur tónlistarmaður sem hlaut Óskarsverðlaun árið 2008 fyrir lagið Falling Slowly í írskri kvikmynd, Once. Þá var hún aðeins 19 ára gömul og yngsti einstaklingurinn sem hlotið hefur styttuna eftirsóttu ef utan eru skildir leiklistarflokkarnir. Marketa lék einnig annað aðal- hlutverkið í myndinni. Marketa býr á Sólvallagötu 16 ásamt eiginmanni sínum, Sturlu Míó Þórissyni upptökustjóra og þremur börnum þeirra. Húsið er 238,1 fm og fasteignamat þess er 125.350.000 kr. Húsið er skráð á fyrirtæki þeirra, Kjarneplið ehf., sem einnig á upptökuver að Barðaströnd 51, Seltjarnarnesi. Húsið þar er 324,6 fm og fasteignamat þess er 117.950.000 kr. Auðkýfingur eignast Vopnafjörð Athafnamaður eignast listamannshús Nýsjálenski leikarinn og heimshornaflakkarinn Manu Bennett hefur margoft heimsótt Ísland, sem heillaði hann í hans fyrstu heimsókn árið 2015. Hann segist vera fjarskyldur ættingi okkar, víking- anna í norðri, sjálfur maóríinn, víkingurinn úr suðri. Manu er mikill áhugamaður um sögu og einnig mik- ill mannvinur og dýravinur. Hann hefur vakið athygli á heimsvísu fyrir hlutverk sín sem skylmingaþræll- inn Crixus í þáttunum Spartacus, illmennið Sladde Wilson/Deathstroke í Arrow, presturinn Allanon í The Shannara Chronicles og Azog, foringi Orka, í þríleiknum um Hobbitann. DV hefur heimildir fyr- ir því að Bennett vilji fjárfesta í íbúð í Reykjavík, en hvort að hann hafi látið verða af því er ekki vitað. James Ratcliffe hefur keypt upp jarðir á Íslandi. Víkingurinn úr suðri Damon Albarn er söngvari, laga- höfundur og forsprakki hljómsveit- anna Blur og Gorillaz, sem voru á hátindi frægðarinnar á tíunda áratugnum. Hinn 24. ágúst 1996 var Albarn í einkaviðtali við DV þar sem hann sagðist ná sambandi við raunveruleikann á Íslandi sem honum tækist alls ekki í London. „Ég saknaði Íslands eftir að ég var farinn til Bretlands og hlakka auð- vitað mikið til þess að koma aftur, annars væri ég ekki að koma.“ Albarn líkaði svo vel við Ísland og íbúa landsins að hann keypti hlut í Kaffibarnum og einbýlishús að Bakkastöðum 109 í Reykjavík. Húsið er 310,6 fm og fasteignamat þess er 107.450.000 kr. Poppstjarna kaupir Kaffibarinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.