Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 24
24 31. maí 2019FRÉTTIR - RÍKIR ÍSLENDINGAR
Hafþór Júlíus Björnsson –
Frægustu vöðvar samtímans
K
raftajötunninn Hafþór Júlíus
Björnsson er einn frægasti Ís
lendingur samtímans, hann hefur
getið sér gott orð í sinni íþrótt og
hampað titlum í keppnum um sterkasta
mann heims og Evrópu. Hafþór er með
gælunafnið Fjallið og hefur leikið í fjölda
auglýsinga, þar á meðal auglýst vatn af
krafti, vakið athygli í sjónvarpsþáttun
um Game of Thrones sem lauk núna
í vor, auk myndbirtinga með Arnold
Schwarzenegger og fleiri frægum.
Hafþór er á meðal tekjuhæstu íþrótta
manna Íslands, auk þess sem hann er
sá vinsælasti á Instagram, þegar þetta
er skrifað þá er hann með 2,4 milljónir
fylgjenda.
Hafþór gifti sig í fyrra og gekk und
ir hárígræðslu. Eiginkonan er Kelsey
Henson, en þau hafa verið saman síð
an 2017. Hafþór er 2,05 metrar á hæð
en kærasta hans, Kelsey Henson, er 1,57
á hæð og hefur hæðarmunurinn iðu
lega vakið kátínu fylgjenda Hafþórs, auk
margra miður fallegra athugasemda um
parið. Hefur Hafþór meðal annars svar
að þeim með því að spyrja viðkomandi
hvað þeir hafi afrekað í lífinu, hann sé jú
sterkasti maður heims.
Ásakanir um heimilisofbeldi gagn
vart fyrrverandi kærustum og sambýl
iskonum koma einnig títt upp þegar nafn
hans ber á góma, og hafa konur tengdar
sem ótengdar þeim málum skrifað um
mæli þess efnis á samfélagsmiðlum. Því
svaraði Fjallið af fullum krafti og sagðist
lögsækja konur létu slíkar athugasemdir
falla, fyrir ærumeiðingar.
Hafþór og Kelsey undirrituðu kaup
mála í ágúst í fyrra þar sem allar eign
ir hans eru séreign hans, þar undir falla
Austurkór 117, 150 fermetra parhús, fast
eignamat 65.850.000, Engihjalli 19, 78,1
fermetra íbúð, fasteignamat 29.850.000
krónur., Hamraborg 28, 52,4 fermetra
íbúð, fasteignamat 25.300.000 krónur,
hlutafé Hafþórs í einkahlutafélögunum
Fjallið Hafþór ehf., Icelandic Mounta
in Spirits ehf. og Thor’s Power ehf., auk
eignarhluta hans í Thors Power Gym sf.,
auk allra líkamsræktartækja og annarra
tækja í sal stöðvarinnar að Auðbrekku
2. Allt innbú að Austurkór auk allra
hugverkaréttinda sem tengjast ímynd,
persónu og íþróttaiðkun Hafþórs.
Í september í fyrra barðist Hafþór við
aðra fjárfesta á nauðungarsölu á Aust
urkór um 20% eignarhlut fyrrverandi
sambýliskonu hans, en íbúðin var sett á
nauðungarsölu að ósk hennar sem lið
ur í fjárhagslegu uppgjöri þeirra í kjölfar
sambandsslitanna. Þau keyptu eignina
í september 2016 og var Hafþór skráð
ur fyrir 80% hlut í fasteigninni, en hans
fyrrverandi 20%. Nauðungarsölunni
lauk eins og áður segir með því að Haf
þór keypti eignina fyrir 66,7 milljónir
króna.
Heimili: Austurkór 117, 150,0 fm
Fasteignamat: 65.850.000 kr.
Hafþór Júlíus Björnsson:
Tekjublað DV 2018: 2.640.000 kr.
MYND: HANNA/DV
MYND: INSTAGRAM HAFÞÓR
B
altasar Kormákur Baltasarson út
skrifaðist sem leikari vorið 1990 og
vakti fyrst athygli sem Rómeó í verki
Shakespeare, Rómeó og Júlía. Má
segja að hjartaknúsaranum Baltasar hafi
verið allir vegir færir eftir það, jafnt á leik
sviðinu, bak við tjöldin og vélina sem leik
stjóri, framleiðandi og handritshöfund
ur og sem einn af myndarlegri mönnum
landsins.
Baltasar Kormákur hefur verið farsæll
leikstjóri bæði á Íslandi sem erlendis, og
umgengist stórstjörnur Hollywood. Breski
leikarinn Idris Elba leikur í nýjustu mynd
hans, Deeper, sem tökur hefjast á nú um
mánaðamótin. Tök ur mynd ar inn ar munu
fara fram í nýju mynd veri fram leiðslu fyr ir
tæk is Baltas ars, RVK Studi os, í Gufu nesi og
á hafi úti, lík lega á Faxa flóa. „Þetta verður
senni lega fyrsta stóra mynd in sem verður
tek in öll upp á Íslandi, stúd íóið býður upp
á þann mögu leika, að gera þetta.“
Baltasar var kvæntur Lilju Sigurlínu
Pálmadóttur, en parið var áberandi í rúm
20 ár, jafnt í samkvæmis og menningarlíf
inu. Lilja er listamaður og hrossaræktandi
og bjuggu hjónin í fallegu húsi að Mið
stræti 7, ásamt stórum barnahópi, en þau
áttu einnig eignina Hof í Skagafirði. Hof
keyptu þau árið 2002, en faðir Lilju, Pálmi,
kenndur við Hagkaup, Jónsson átti ætt
ir að rekja þangað. Íbúðarhúsið að Hofi er
teiknað og unnið af Studio Granda í sam
ráði við Lilju og hefur hlotið tilnefningar
og verðlaun á alþjóðavettvangi arkitektúrs.
Fyrr á þessu ári skildu hjónin að borði
og sæng og er Baltasar tekinn saman við
listakonuna og leikmyndahönnuðinn
Sunnevu Ásu Weisshappel.
Baltasar keypti nýlega nýtt heimili að
Smáragötu 10, 375 fermetra hús sem byggt
var árið 1931. Afsali hefur verið þinglýst en
kaupverðs er ekki getið í því, þó má ætla að
eignin hafa kostað yfir 200 milljónir króna.
Baltasar Kormákur – Af fjölunum í
fremstu röð kvikmyndabransans
Heimili: Smáragata 10, 375,6 fm
Fasteignamat: 161.800.000 kr.
Baltasar Kormákur Baltasarson
Tekjublað DV 2018: 1.545.000 kr.
PHOTOGRAPHY © SIGURGEIR SIGUR-JÓNSSON