Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 96

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 96
31. maí 2019 22. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Þetta er alveg makalaust Skeifan 6 / Harpa / Kringlan /Laugavegur 70 / 5687733 / www.epal.is Svanurinn á tilboði* HÖNNUN: ARNE JACOBSEN * Tilboðið gildir frá 1. maí - 1. september 2019 · Áklæði: Christianshavn - 26 möguleikar á litum Verð: 449.000.- Tilboðsverð: 379.900.- Hvað er Valdimar að horfa á? É g horfi mikið á sjónvarp, finnst fátt betra en að henda mér í sófann að loknum góðum degi og horfa á góðan sjónvarpsþátt eða kvikmynd. Ég er nýbúin að horfa á ser- íuna Dead To Me sem er á Net- flix. Afar góðir þættir. Vel skrif- aðir og ganga fullkomlega upp að mínu mati. Flottir leikarar í helstu hlutverkum. Góð blanda af spennu, húmor og drama. Þættirnir Easy eru einnig á Netflix og koma skemmtilega á óvart. Fjalla um samskipti kynj- anna hvað varðar uppeldi, rifr- ildi, ást, kynlíf og fleira. Hver þáttur er sjálfstæður og því ekki um framhald að ræða. Rétt um hálftíma langir þættir. Virkilega góðir. Íslenska Carrie Bradshaw á von á barni Á sa Ninna Pétursdóttir, fata- hönnuður og fyrrverandi eig- andi verslunarinnar GK, opinberaði nýverið hugar- fóstur sitt, Makamál, sem einnig gengur undir nafninu Sönn ís- lensk makamál á Vísi, en á síð- unni skrifar hún um allt og ekk- ert sem tengist ástinni, kynlífi, rómantík og stefnumótum. Hafa margir gengið svo langt að kalla Ásu Ninnu hina íslensku Carrie Bradshaw úr Sex and the City. Ása Ninna var búin að ganga lengi með hugmyndina í maganum, alveg síðan hún skildi við Guðmund Hallgrímsson, sem hún rak GK með, fyrir nokkrum árum. Þá varð hún einhleyp í fyrsta sinn í langan tíma og var margt sem kom henni á óvart. „Þá fór maður allt í einu inn á svona nýjan vígvöll þar sem mað- ur kunni ekki reglurn- ar, sem var mjög kó- mískt og fyndið og þá þróaðist þessi hug- mynd. Þetta byrjaði sem skemmtisketsa-hugmynd en svo langaði mig að taka þetta lengra og taka viðtöl við fólk og sjá hvernig fólk hagaði sér á þessum nýja vígvelli rafrænnar rómantíkur,“ sagði Ása Ninna í viðtali á Stöð 2 fyrir stuttu. Hjúskaparstaða Ásu Ninnu var ekki lengi að breytast eftir að ástarhugleiðingar hennar voru opinberaðar fyrir alþjóð því nánast sama dag og Makamál fór í loftið tilkynnti Ása Ninna að hún væri gengin út. Sá heppni heitir Árni Bragi Hjaltason og er verkefnastjóri hjá Háskóla Ís- lands og plötusnúður. Þau Ása Ninna og Árni létu ekki þar við sitja og tilkynntu nokkrum dögum síðar að þau ættu von á barni. Skjótt skipast veður í lofti hjá tískudrottningunni, og nú stefnumótadrottningunni, en Ása Ninna á fyrir tvo drengi. Ása Ninna ákvað að tilkynna óléttuna með orðunum „sönn íslensk svaka- mál“ með vísan í sinn nýja starfsvettvang í fjöl- miðlum – Sönn íslensk makamál. Danski milljarða- mæringurinn missti af Ara B ókhaldsráðstefna Uniconta var haldin í Reykjavík fyrir stuttu, en stofnandi bókhaldskerf- isins, Daninn Erik Damgaard, mætti og hélt tölu. Saga Eriks er um margt ótrúleg en hann græddi milljarða þegar hann seldi bókhaldskerfi sitt, Dyna- mics AX, til Microsoft árið 2002. Í nokkur ár lifði hann hátt, svo tapaði hann öllu. Árið 2015 reis hann upp úr öskunni og nýtur nú velgengni á ný í bókhalds- heimum. Það þótti því viðeig- andi að grínistinn Ari Eldjárn skemmti gestum fyrrnefndr- ar ráðstefnu, þar sem hann er þekktur fyrir að gera stólpa- grín að frændum okkar Dön- um og bjóða upp á óborgan- legan danskan hreim. Ara brást ekki bogalistin, frekar en fyrri daginn, en því miður var milljónamær- ingurinn Erik far- inn á brott þegar Ari reytti af sér brandara um hve stífir og skipulagð- ir Danir væru. Kannski sem betur fer?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.