Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 88
88 SPORT 31. maí 2019
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
FORDÓMAR GRASSERA Í ÍSLENSKUM FÓTBOLTA
F
ordómar setja oft ljótan
blett á íþróttir, þeir birt-
ast okkur með mismun-
andi hætti. Oftast tengjast
fordómar húðlit en einnig geta
þeir tengst uppruna og þannig
mál hafa komið upp á Íslandi.
Mikið hefur verið rætt um for-
dóma í íslenskum fótbolta síðustu
daga eftir að Björgvin Stefánsson,
framherji KR, gerði sig sekan um
kynþáttafordóma. KSÍ hefur ekki
tekið ákvörðun um hvort Björg-
vini verði refsað fyrir ummæli
sem hann lét falla á sjónvarpsstöð
Hauka. Hann sagði þar að það
væri alltaf stutt í villimanseðlið
hjá svarta manninum. Til að setja
það mál í samhengi rifjum við hér
upp nokkur eldri mál, og hvaða
refsingar KSÍ beitti þar.
Það átti sér stað nokkuð frægt
atvik í efstu deild á Íslandi árið
2006 þegar ÍA og Keflavík átt-
ust við, þar var hart barist en
Hjörtur Júlíus Hjartarson, þá
framherji ÍA, og Guðmundur
Mete, þá varnarmaður Keflavík-
ur, tókust á. Heitt var í kolun-
um og voru báðir aðilar bornir
þungum sökum. Hjörtur ræddi
málið í Kastljósi þetta sama ár.
,,Hann lofar mér því að næst
þegar ég komi nálægt honum
eða inn í teiginn þá muni hann
stúta mér og fótbrjóta mig eða
eitthvað þvíumlíkt. Þetta held-
ur eitthvað svona áfram þangað
til hann byrjar að kalla móð-
ur mína hóru og þetta er ekki í
fyrsta skipti í sumar sem hann
kallar þetta á leikmenn
Skagaliðsins. Hann
gerði þetta líka
við Bjarka Frey í
Keflavík og þar
sagðist hann
líka ætla að
gera ákveðna
hluti við hann
eftir leikinn,“
sagði Hjörtur
í Kastljósi árið
2006.
Eftir þessi orð Guðmund-
ar kallaði Hjörtur hann Tyrkja-
djöful og sagði að best væri fyrir
hann að fara heim. Faðir Guð-
mundar er Tyrki. „,,Fyrir það
fyrsta þá gekk ég alltof langt í
mínum orðum og ég iðrast þess
mjög og bið Guðmund innilega
afsökunar á því sem ég sagði við
hann. En það er rétt að ég kall-
aði hann Tyrkjadjöful og sagði
honum að best væri fyrir hann
bara að drulla sér heim. Ég
viðurkenni það fúslega og ég sé
mjög eftir því. Ég verð bara að
taka þeim gjörðum mínum og
þeim orðum sem ég lét falla.“
Hjörtur hélt því fram að eftir
þessi orð sín hafi komið morð-
hótun frá Guðmundi. „Þá segir
hann við mig. „Jæja, ok, við skul-
um bara útkljá þetta mál eft-
ir leikinn. Þá skulum við
bara hittast og þá ætla ég
að drepa þig.“ Hjörtur
fékk tveggja leikja bann
frá KSÍ fyrir fordóma
sína en Guðmundur
eins leiks bann.
Andrew Mwesigva frá Úg-
anda lék í nokkur ár með ÍBV,
við góðan orðstír. Mwesig-
va var kallaður Siggi í Eyjum
en hann mátti þola fordóma
vegna húðlitar ansi oft, tvö at-
vik komu upp árið 2006 og
2007. Í bæði skiptin voru það
áhorfendur sem voru með for-
dóma í garð Sigga, Árið 2006
fékk FH 30 þúsund króna sekt
fyrir fordóma í garð Mwesig-
va og ári síðar var komið að
Fjölni, áhorfendur Fjölnis voru
ansi grófir er gamlar fréttir eru
skoðaðar. Hrópin að Mwesig-
va heyrðust oft í leiknum og
ofbauð mörgum framkoma
þeirra. KSÍ sektaði Fjölni um 30
þúsund krónur.
Eyþór Helgi Birgisson hefur farið víða á ferli sínum
en árið 2014 lék hann með Víkingi Ólafsvík. Ey-
þóri hafði verið vikið af velli í leik gegn Grindavík,
en þegar hann gekk af velli lét hann fordómafull
ummæli falla. Viatcheslav Titov var þá aðstoðar-
dómari í leiknum en hann og Eyþór þekktust eftir
að hafa alist upp saman í HK. Eyþór tjáði hon-
um að drulla sér aftur heim til Rússlands,
en Titov er af rússnesku bergi brotinn. Fyrst
um sinn ætlaði KSÍ að taka á málinu af
hörku og dæmdi Eyþór í fimm leikja bann.
Ólafsvík áfrýjaði þeim dómi og að lokum
fékk Eyþór Helgi aðeins eins leiks bann.
ÍBV var árið 2014 sektað um 150 þúsund krónur, ástæð-
an var kynþáttaníð sem stuðningsmaður félagsins
hafði í garð Farid Zato, sem þá lék með KR en í dag
spilar hann fyrir Kórdrengi. Atvikið kom upp í leik í
undanúrslitum bikarsins. Stuðningsmaðurinn hróp-
aði ljótum orðum að Farid sem er þeldökkur, kynþátt-
aníð af verstu sort. ÍBV fagnaði því að KSÍ tæki
harkalega á þessu máli og sagði að stuðnings-
maðurinn væri kominn í langt bann frá Há-
steinsvelli, samkvæmt reglum KSÍ á stuðnings-
maður sem gerist sekur um svona fordóma að fá
2 ára bann hið minnsta.
Pape Mamadou Faye hefur sett
svip sinn á íslenskan fótbolta
lengi, skemmtilegur karakter
sem farið hefur víða. Pape tjáði
sig í viðtali við DV árið 2017 um
fordóma en hann er frá Senegal.
„Ég hafði ekki hugmynd um
hvað kynþáttahatur var fyrr en
ég flutti til Íslands,“ segir Pape,
sem hefur verið kallaður surtur.
„Þetta gerðist oftar þegar ég var
yngri. Þegar að maður er lítill er
auðveldara að brjóta mann nið-
ur. Sum af þessum orðum
særa mig meira en
N-orðið. Þau not-
uðu gamaldags
orð eins og
surtur,“ segir Pape.
Hann segist hafa fengið
morðhótun fyrir leik gegn Fjölni
fyrir nokkrum árum, þá var
lögreglan kölluð til og vaktaði
svæðið. „Í hverri sundlaug er
yfirleitt einn pottur
með þægileg-
asta hitastig-
inu sem flestir
eru í. Ég hef oft
lent í því að ef ég
sest í heitan pott
tæmist hann á
tveimur mínút-
um,“ segir Pape
Mamadou
Faye.
Þórarinn Ingi Valdimarsson lét fordómafull ummæli falla í garð
Ingólfs Sigurðssonar í leik Stjörnurnar og Leiknis í mars. Þórarinn
baðst afsökunar strax að leik loknum. Þórarinn lét niðrandi um-
mæli falla um andlega heilsu Ingólfs, sem vakti athygli fyrir nokkrum
árum þegar hann steig fram og ræddi opinskátt um baráttu sína
gegn kvíða og þunglyndi en hann hefur lengi glímt við kvíðarösk-
un. Ingólfur þótti mikið efni þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á
knattspyrnusviðinu. „Öllum líður misjafn-
lega og fólk upplifir ýmislegt og þess
vegna er mikilvægt að gera greinar-
mun á andlegri líðan og geðsjúk-
dómum. Lífið er erfitt, annars væri
það ekki lífið,“ sagði hann meðal
annars þá. Þá vakti opið bréf hans til
ungra manna í sjálfsvígshugleiðing-
um mikla athygli. Bréf hans hófst á
þessum orðum.
Í leiknum í mars missti Þórarinn,
eins og áður segir, stjórn á sér. Sagði
Þórarinn að Ingólfur ætti að hugsa um
andlega heilsu sína og mun hafa upp-
nefnt hann í kjölfarið með vísun í veikindi
hans. Heyrði dómari leiksins hvað Þórarinn
sagði og var umsvifalaust vísað af velli.
KSÍ tók málið fyrir en Þórarinn fékk
enga auka refsingu, hann miss-
ir af fyrsta leik í Lengjubikarn-
um á næsta ári. KSÍ var harðlega
gagnrýnt fyrir það hvernig tek-
ið var á málinu.
HJÖRTUR HJARTARSON OG
GUÐMUNDUR METE – 2006
FJÖLNIR, FH OG
MWESIGVA
– 2006 2007
EYÞÓR HELGI BIRGISSON – 2014
STUÐNINGSMAÐUR ÍBV – 2014
PAPE MAMADOU FAYE – 2017
ÞÓRARINN INGI OG INGÓLFUR – 2019