Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Qupperneq 88

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Qupperneq 88
88 SPORT 31. maí 2019 Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum FORDÓMAR GRASSERA Í ÍSLENSKUM FÓTBOLTA F ordómar setja oft ljótan blett á íþróttir, þeir birt- ast okkur með mismun- andi hætti. Oftast tengjast fordómar húðlit en einnig geta þeir tengst uppruna og þannig mál hafa komið upp á Íslandi. Mikið hefur verið rætt um for- dóma í íslenskum fótbolta síðustu daga eftir að Björgvin Stefánsson, framherji KR, gerði sig sekan um kynþáttafordóma. KSÍ hefur ekki tekið ákvörðun um hvort Björg- vini verði refsað fyrir ummæli sem hann lét falla á sjónvarpsstöð Hauka. Hann sagði þar að það væri alltaf stutt í villimanseðlið hjá svarta manninum. Til að setja það mál í samhengi rifjum við hér upp nokkur eldri mál, og hvaða refsingar KSÍ beitti þar. Það átti sér stað nokkuð frægt atvik í efstu deild á Íslandi árið 2006 þegar ÍA og Keflavík átt- ust við, þar var hart barist en Hjörtur Júlíus Hjartarson, þá framherji ÍA, og Guðmundur Mete, þá varnarmaður Keflavík- ur, tókust á. Heitt var í kolun- um og voru báðir aðilar bornir þungum sökum. Hjörtur ræddi málið í Kastljósi þetta sama ár. ,,Hann lofar mér því að næst þegar ég komi nálægt honum eða inn í teiginn þá muni hann stúta mér og fótbrjóta mig eða eitthvað þvíumlíkt. Þetta held- ur eitthvað svona áfram þangað til hann byrjar að kalla móð- ur mína hóru og þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar sem hann kallar þetta á leikmenn Skagaliðsins. Hann gerði þetta líka við Bjarka Frey í Keflavík og þar sagðist hann líka ætla að gera ákveðna hluti við hann eftir leikinn,“ sagði Hjörtur í Kastljósi árið 2006. Eftir þessi orð Guðmund- ar kallaði Hjörtur hann Tyrkja- djöful og sagði að best væri fyrir hann að fara heim. Faðir Guð- mundar er Tyrki. „,,Fyrir það fyrsta þá gekk ég alltof langt í mínum orðum og ég iðrast þess mjög og bið Guðmund innilega afsökunar á því sem ég sagði við hann. En það er rétt að ég kall- aði hann Tyrkjadjöful og sagði honum að best væri fyrir hann bara að drulla sér heim. Ég viðurkenni það fúslega og ég sé mjög eftir því. Ég verð bara að taka þeim gjörðum mínum og þeim orðum sem ég lét falla.“ Hjörtur hélt því fram að eftir þessi orð sín hafi komið morð- hótun frá Guðmundi. „Þá segir hann við mig. „Jæja, ok, við skul- um bara útkljá þetta mál eft- ir leikinn. Þá skulum við bara hittast og þá ætla ég að drepa þig.“ Hjörtur fékk tveggja leikja bann frá KSÍ fyrir fordóma sína en Guðmundur eins leiks bann. Andrew Mwesigva frá Úg- anda lék í nokkur ár með ÍBV, við góðan orðstír. Mwesig- va var kallaður Siggi í Eyjum en hann mátti þola fordóma vegna húðlitar ansi oft, tvö at- vik komu upp árið 2006 og 2007. Í bæði skiptin voru það áhorfendur sem voru með for- dóma í garð Sigga, Árið 2006 fékk FH 30 þúsund króna sekt fyrir fordóma í garð Mwesig- va og ári síðar var komið að Fjölni, áhorfendur Fjölnis voru ansi grófir er gamlar fréttir eru skoðaðar. Hrópin að Mwesig- va heyrðust oft í leiknum og ofbauð mörgum framkoma þeirra. KSÍ sektaði Fjölni um 30 þúsund krónur. Eyþór Helgi Birgisson hefur farið víða á ferli sínum en árið 2014 lék hann með Víkingi Ólafsvík. Ey- þóri hafði verið vikið af velli í leik gegn Grindavík, en þegar hann gekk af velli lét hann fordómafull ummæli falla. Viatcheslav Titov var þá aðstoðar- dómari í leiknum en hann og Eyþór þekktust eftir að hafa alist upp saman í HK. Eyþór tjáði hon- um að drulla sér aftur heim til Rússlands, en Titov er af rússnesku bergi brotinn. Fyrst um sinn ætlaði KSÍ að taka á málinu af hörku og dæmdi Eyþór í fimm leikja bann. Ólafsvík áfrýjaði þeim dómi og að lokum fékk Eyþór Helgi aðeins eins leiks bann. ÍBV var árið 2014 sektað um 150 þúsund krónur, ástæð- an var kynþáttaníð sem stuðningsmaður félagsins hafði í garð Farid Zato, sem þá lék með KR en í dag spilar hann fyrir Kórdrengi. Atvikið kom upp í leik í undanúrslitum bikarsins. Stuðningsmaðurinn hróp- aði ljótum orðum að Farid sem er þeldökkur, kynþátt- aníð af verstu sort. ÍBV fagnaði því að KSÍ tæki harkalega á þessu máli og sagði að stuðnings- maðurinn væri kominn í langt bann frá Há- steinsvelli, samkvæmt reglum KSÍ á stuðnings- maður sem gerist sekur um svona fordóma að fá 2 ára bann hið minnsta. Pape Mamadou Faye hefur sett svip sinn á íslenskan fótbolta lengi, skemmtilegur karakter sem farið hefur víða. Pape tjáði sig í viðtali við DV árið 2017 um fordóma en hann er frá Senegal. „Ég hafði ekki hugmynd um hvað kynþáttahatur var fyrr en ég flutti til Íslands,“ segir Pape, sem hefur verið kallaður surtur. „Þetta gerðist oftar þegar ég var yngri. Þegar að maður er lítill er auðveldara að brjóta mann nið- ur. Sum af þessum orðum særa mig meira en N-orðið. Þau not- uðu gamaldags orð eins og surtur,“ segir Pape. Hann segist hafa fengið morðhótun fyrir leik gegn Fjölni fyrir nokkrum árum, þá var lögreglan kölluð til og vaktaði svæðið. „Í hverri sundlaug er yfirleitt einn pottur með þægileg- asta hitastig- inu sem flestir eru í. Ég hef oft lent í því að ef ég sest í heitan pott tæmist hann á tveimur mínút- um,“ segir Pape Mamadou Faye. Þórarinn Ingi Valdimarsson lét fordómafull ummæli falla í garð Ingólfs Sigurðssonar í leik Stjörnurnar og Leiknis í mars. Þórarinn baðst afsökunar strax að leik loknum. Þórarinn lét niðrandi um- mæli falla um andlega heilsu Ingólfs, sem vakti athygli fyrir nokkrum árum þegar hann steig fram og ræddi opinskátt um baráttu sína gegn kvíða og þunglyndi en hann hefur lengi glímt við kvíðarösk- un. Ingólfur þótti mikið efni þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á knattspyrnusviðinu. „Öllum líður misjafn- lega og fólk upplifir ýmislegt og þess vegna er mikilvægt að gera greinar- mun á andlegri líðan og geðsjúk- dómum. Lífið er erfitt, annars væri það ekki lífið,“ sagði hann meðal annars þá. Þá vakti opið bréf hans til ungra manna í sjálfsvígshugleiðing- um mikla athygli. Bréf hans hófst á þessum orðum. Í leiknum í mars missti Þórarinn, eins og áður segir, stjórn á sér. Sagði Þórarinn að Ingólfur ætti að hugsa um andlega heilsu sína og mun hafa upp- nefnt hann í kjölfarið með vísun í veikindi hans. Heyrði dómari leiksins hvað Þórarinn sagði og var umsvifalaust vísað af velli. KSÍ tók málið fyrir en Þórarinn fékk enga auka refsingu, hann miss- ir af fyrsta leik í Lengjubikarn- um á næsta ári. KSÍ var harðlega gagnrýnt fyrir það hvernig tek- ið var á málinu. HJÖRTUR HJARTARSON OG GUÐMUNDUR METE – 2006 FJÖLNIR, FH OG MWESIGVA – 2006 2007 EYÞÓR HELGI BIRGISSON – 2014 STUÐNINGSMAÐUR ÍBV – 2014 PAPE MAMADOU FAYE – 2017 ÞÓRARINN INGI OG INGÓLFUR – 2019
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.