Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 18
18 PRESSAN 31. maí 2019 völd myndu kanna skútuna hans myndu þau finna mikið magn af hreinu kókaíni sem hann var að flytja fyrir spænskt glæpagengi frá Venesúela til Spánar. Hann varð að losa sig tímabundið við farm- inn og því sigldi hann meðfram ströndinni til að leita að felustað fyrir kókaínið en verðmæti þess hljóp á sem nemur milljörðum ís- lenskra króna. Fjöldi hella er við strendur Sao Miguel. Maðurinn sigldi að helli nærri Pilar da Bretanha og byrjaði að afferma skútuna. Kókaínið var pakkað inn í plast og voru pakk- arnir mörg hundruð. Hann notaði net og keðjur til að þyngja pakk- ana og sökkti þeim í sjóinn. En fljótlega versnaði veðrið og sjórinn ókyrrðist og kókaínpakkarnir losn- uðu úr festingum sínum og byrjaði að reka á land. Fámennt samfélag Á Azoreyjum búa um 140.000 manns. Á Sao Miguel hafa flest- ir atvinnu af sjávarútvegi og land- búnaði en fjölmargir vinna ekki og fá bætur frá hinu opinbera. Fólk lifði sínu venjulega lífi en þegar hálft tonn af kókaíni rak á land hafði það mikil áhrif á Sao Miguel. Daginn eftir að fyrst sást til skút- unnar fann veiðimaður krossfisk sem var þakinn plasti. Undir plast- inu fann veiðimaðurinn efni sem honum fannst líkjast hveiti en það lak úr pakkanum. Hann hringdi í lögregluna. Á næstu klukkustundum fundu lögreglumenn 270 pakka af hreinu kókaíni eða 290 kíló í heildina. Þetta var bara fyrsti skammtur- inn sem fannst. rúmlega viku síðar fundust 158 kíló til viðbótar í helli nærri Pilar da Bretanha. Tveim- ur dögum síðar fundust 15 kíló til viðbótar á strönd hinum megin á eyjunni. Á hálfum mánuði fundust rétt tæplega 500 kíló. En það voru ekki allir sem létu lögregluna vita þegar þeir fundu kókaín. Margir heimamenn gerðust nú fíkni- efnasalar og fluttu efnið á milli staða í mjólkurbrúsum, máln- ingardollum og sokkum. Þá geng- ur sú saga á Sao Miguel að tveir sjómenn hafi séð þegar skipstjóri skútunnar kastaði kókaíninu í sjó- inn og hafi þeir náð miklu magni upp. Ekki er vitað hversu miklu en miklum sögum fer af sölu þeirra á efninu. Lögreglan óttaðist að um- fangsmikil kókaínsala færi fram á eyjunum. Áður en þetta gerðist hafði kókaín verið sjaldséð á eyjunni. Heróín og hass var algengara en kókaín var eiturlyf elítunnar enda var það dýrt. Grunlaus Skipstjóri skútunnar sigldi til hafn- ar og hafði enga hugmynd um að lögreglan væri farin að fylgj- ast með honum. Upplýsingar frá heimamönnum urðu til þess að lögreglan vissi að hér var smyglar- inn á ferð. Þann 8. júní kom Ítali, Vito Rosario Quinci, til skipstjór- ans og hitti hann í skútunni þar sem hún lá í höfn. Vito reyndist vera tengiliður skipstjórans við spænska smyglhringinn sem skip- stjórinn starfaði fyrir. Í ljós kom að Vito og skipstjórinn, sem heitir Antonino Quinci, eru frændur. Smyglhringurinn hafði keypt skútuna fjórum mánuðum áður en hún kom til Azoreyja. Rann- sókn málsins leiddi í ljós að tvær aðrar skútur voru einnig í ferðum á milli Evrópu og Suður-Ameríku með kókaín. Antonino og Vito voru hand- teknir eftir að þeir höfðu farið að staðnum þar sem Antonino hafði hent kókaíninu í sjóinn. Í fyrstu var Antonino mjög samvinnu- þýður og ræddi óhikað við lög- regluna en daginn eftir hætti hann öllu samstarfi og þvertók fyrir að- ild að málinu. Lögreglan telur að hann hafi verið hræddur þar sem hann átti tvö ung börn og unnustu og þar sem hann hafði týnt hálfu tonni af kókaíni, sem aðrir áttu, hafi hann ekki þorað að tala. Eða þá að hann taldi sig geta sloppið við saksókn ef hann segði ekkert. Vildi komast í burtu Antonino var úrskurðaður í gæslu- varðhald vegna rannsóknar á mál- inu. Kókaín hélt áfram að reka á fjörur og allt flóði bókstaflega í kókaíni á eyjunni. Auk þeirra tæpu 500 kílóa sem lögreglan hafði lagt hald á taldi hún að 200 kíló til við- bótar væru í umferð á eyjunni. Sjómenn fundu mikið af efninu og seldu og ekki var óalgengt að kókaínið væri selt í kílóaskömmt- um. Rannsóknir á efninu leiddu í ljós að það var 80% hreint sem er miklu hreinna og sterkara en það kókaín sem venjulega er til sölu á götum úti. Þetta gerði að verk- um að fólk ánetjaðist efninu fljótt. Margir þeirra sem keyptu þetta kókaín og prófuðu vissu ekki hvað þeir voru með í höndunum. Af- leiðingarnar voru hræðilegar. Fjöldi fólks leitaði til lækna vegna hjartsláttartruflana eða skyndilegs meðvitundarleysis. Sumir lifðu þetta ekki af. En Antonino sat ekki auðum höndum í fangelsinu því hann reyndi sitt besta til að sleppa á brott frá Sao Miguel. Tíu dögum eftir handtökuna náði hann að flýja úr fangelsinu með því að klifra yfir gaddavírsgirðinguna sem um- lukti það. Hann komst yfir hana og ók á brott á skellinöðru. Hann leitaði skjóls hjá heimamanni úti í sveit og dvaldi þar næstu tvær vikur. Þeim varð ágætlega til vina. Antonino beið sífellt eftir að sam- verkamenn hans kæmu á annarri skútu til að sækja hann en úr því varð ekki. Um tveimur vikum eft- ir flóttann gerði lögreglan húsleit hjá heimamanninum og fann Ant- onino fyrir algjöra tilviljun. Lög- reglan var á höttunum eftir fíkni- efnum hjá heimamanninum og hafði engar upplýsingar né grun um að Antonino væri þar. Algjör heppni, eins og einn lögreglumað- urinn sagði síðar. Gjörbreytti mannlífinu Á örfáum vikum tókst Antonino að gjörbreyta lífi íbúa Sao Migu- el. Áhrifanna gætti strax og þeirra gætir enn. Portúgölsk stjórnvöld breyttu fíkniefnalöggjöfinni 2001 og gerðu vörslu og neyslu ólög- legra fíkniefna refsilausa. Áherslan var í staðinn lögð á forvarnir og endurhæfingu fíkla. En á Sao Miguel færðist fíkni- efnaneysla mjög í vöxt í kjölfar rek- ans og nú eru margir langt leidd- ir fíkniefnaneytendur á eyjunni. Aðrir auðguðust mjög á kókaíninu sem þeir fundu og settu pening- ana í uppbyggingu löglegra við- skipta á borð við kaffihús. Enn aðr- ir voru ekki svona heppnir og létu lífið af völdum fíkniefnaneyslu. Margir fíkniefnaneytendur segja að vegna þess hversu sterkt kókaínið var hafi þeir byrjað að nota önnur fíkniefni til að draga úr fráhvarfseinkennunum. Heróín kemur þar mikið við sögu en það er sent til eyjunnar, oft með pósti. Antonino var dæmdur í 10 ára fangelsi. Hinar skúturnar tvær voru stöðvaðar í júlí 2001 af spænsku lögreglunni. Evrópulögreglan Europol seg- ir að Azoreyjar komi nú mikið við sögu í fíkniefnasmygli á milli Suð- ur-Ameríku/Karabíska hafsins og Evrópu. Smyglararnir nota eyjarn- ar sem viðkomustað á leið sinni til Evrópu. Fíkniefnin eru oft flutt yfir í fiskibáta eða hraðbáta sem sigla með þau til meginlands Portú- gals eða Spánar. Í september á síð- asta ári fundust rúmlega 800 kíló af kókaíni um borð í hraðbáti sem var stöðvaður nærri Azoreyjum. Hann sigldi undir frönskum fána. n TÍMAVÉLIN Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „Á São Miguel færðist fíkniefnaneysla mjög í vöxt í kjölfar fjörurekans og nú eru margir langt leiddir fíkni- efnaneytendur á eyjunni Óvæntur sjóreki Sao Miguel á Azoreyjum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.