Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 34
34 31. maí 2019FRÉTTIR - RÍKIR ÍSLENDINGAR
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
VARÚÐ!
Fullkomin í
sumarlesturinn!
Í þessari bók er allt
það hættulega úr fyrri
bókunum - og meira!
NÝ
Katrín Tanja Davíðsdóttir –
Ein hraustasta dóttir Íslands
Edda og Rikki –
Stjörnuparið í
Laugardalnum
K
atrín Tanja Davíðsdóttir hef-
ur í tvígang unnið titilinn
Hraustasta kona heims, árin
2015 og 2016, og var í 3. sæti á
heimsleikunum í crossfit sem fram
fóru í Wisconsin í Bandaríkjunum í
ágúst í fyrra. Árið 2016 hlaut hún 34
milljónir í verðlaun fyrir frammistöðu
sína, auk skammbyssu. Katrín Tanja
sem er 26 ára er með lögheimili á Ís-
landi, en búsett í Bandaríkjunum.
Hún á glæsilega fasteign á sjöttu
hæð á Lindargötu 39, í Skuggahverfinu
svokallaða, eignina setti hún á sölu í
september í fyrra og er ásett verð 69,5
milljónir króna. Um er að ræða bjarta
og glæsilega þriggja herbergja íbúð.
Katrín Tanja er á meðal vinsæl-
ustu Íslendinganna á Instagram, en
þegar þetta er skrifað þá er hún með
1,5 milljónir fylgjenda, en Katrín Tanja
birtir reglulega færslur frá æfingum
sínum, hvetjandi gullkorn og fleira.
Síðasta sumar lék Katrín Tanja stórt
hlutverk í nýrri herferð bandaríska
íþróttavöruframleiðandans Reebok.
Meðal þeirra kvenna sem tóku þátt í
herferðinni eru Ariana Grande, Gigi
Hadid og Gal Gadot. Í auglýsingunni
ræðir Katrín Tanja um það jafnrétti
sem ríkir innan crossfit-íþróttarinn-
ar. Katrín Tanja bendir á þá staðreynd
að í íþróttinni, sem margir Íslendingar
stunda, ríki algjört jafnrétti. Hún seg-
ir konur gera sömu æfingar og karl-
ar og fá sama verðlaunafé. „Ég er stolt
af því að vera kona með vöðva,“ segir
Katrín Tanja, „Við getum gert allt sem
þeir geta.“
MYND: INSTAGRAM
E
dda Hermanns-
dóttir og Rík-
harður
Daðason
urðu heitasta
stjörnuparið á Ís-
landi vorið 2017.
Edda var vel þekkt
úr fjölmiðlum og starf-
aði hjá RÚV, systir Vikt-
oríu og Evu Laufeyjar, sem
einnig hafa starfað við fjöl-
miðla. En Edda skipti um vett-
vang og starfar nú sem sam-
skiptastjóri Íslandsbanka.
Nýlega útskrifaðist hún úr
PMD- stjórnendanámi frá há-
skóla í Barcelona á Spáni.
Ríkharður var einn sigur-
sælasti landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu á árunum í kring-
um aldamótin. Lék hann meðal
annars með Viking í Stafangri,
Lilleström og Íslendingaliðinu
Stoke City. Skoraði hann frægt
mark gegn Frökkum á Laugar-
dals- velli árið
1998. Ríkharður
er sonur Ragnheið-
ar Ríkharðsdóttur, fyrr-
verandi þingmanns og bæjar-
stjóra Mosfellsbæjar. Hann er
hagfræðingur að mennt og er
fjárfestir.
Edda og Ríkharður eiga þrjú
börn úr fyrri samböndum. Rík-
harður fór á skeljarnar í brúð-
kaupi Ragnhildar Steinunn-
ar Jónsdóttur og Hauks Inga
Guðnasonar í Verona á Ítalíu
sumarið 2018. Þau búa í glæsi-
legu einbýlishúsi í Laugardaln-
um.
Heimili: Lindargata 39, 89,9 fm
Fasteignamat: 63.300.000 kr.
Katrín Tanja Davíðsdóttir:
Tekjublað DV 2018: 4.023.000 kr.
Heimili: Sunnuvegur 33, 283 fm
Fasteignamat: 119.500.000 kr.
Edda Hermannsdóttir
Tekjublað 2018: 1.245.000 kr