Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 35
KYNNING
Uniconta er nýjasta og öflugasta bókhaldskerfið úr smiðju Eriks Damgaard. Erik er ókrýndur
konungur bókhaldskerfanna, byrjaði
ungur að árum að þróa bókhaldskerfi
sem þúsundir fyrirtækja um allan heim
hafa notað, t.a.m. Concorde XAL og
Axapta. Microsoft keypti fyrirtæki hans
fyrir um 200 milljarða króna árið 2001
og hafa lausnir hans verið flaggskipið
í lausnaframboði hugbúnaðarrisans
síðan þá.
Uniconta kom á markað í Danmörku
og á Íslandi árið 2016 og hefur fengið
frábærar viðtökur. Önnur kerfi komast
ekki með tærnar þar sem Uniconta er
með hælana þegar kemur að virkni og
hraða. Kerfið er skýjalausn þar sem
að öll gögn eru vistuð í ISO vottuðu
skýjaumhverfi en notandinn vinnur með
gögnin í gegnum forrit eða app á tölvu
eða snjalltæki.
Hraði og virkni
„Okkar reynsla er sú að Uniconta
sem skýjalausn er að skila gögnum
mun hraðar en bókhaldskerfi sem
eru á gagnaþjónum niðri í kjallara hjá
fyrirtækjum, gögnunum er þjappað
á snilldarlegan hátt þegar þau er
sótt eða send upp í skýið,“ segir
framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi,
Ingvaldur Thor Einarsson.
Fjárhagskerfið er hjartað í
Uniconta og tengist að fullu við allar
kerfiseiningar eins og viðskiptavina- og
lánardrottnakerfi, birgða-, framleiðslu-,
verkbókhalds-, kröfu- og CRM-kerfi.
Uniconta byggir á nýjustu tækni frá
Microsoft og forritaskilum (API) þannig
að einfalt er að láta gögn flæða á milli
Uniconta annars vegar og launakerfa,
vefverslana, bókunarkerfa o.s.frv. hins
vegar. Þá er mjög fljótlegt að setja upp
gagnvirka teninga í Excel eða PowerBI
sem keyra á raungögnum úr Uniconta.
Í dag eru á annað hundrað lausnir
sem bjóða upp á tilbúnar tengingar við
Uniconta.
Uniconta má nota á öllum tækjum:
Windows- og Mac-tölvum, spjaldtölvum
og snjallsímum.
Frábærar viðtökur
Uniconta er viðskiptalausn á
heimsmælikvarða og styður nú þegar
30 tungumál. Kerfið er komið inn á
nokkra markaði í Evrópu, Asíu og Mið-
Austurlöndum. Fjöldi notenda hér á
landi er kominn yfir eitt þúsund og vel
á þriðja hundrað íslenskra fyrirtækja
af öllum stærðum og gerðum nota nú
Uniconta til að halda utan um fjármál og
rekstur, birgðir, framleiðslu og verk.
Í dag eru flest íslensk fyrirtæki að
nota gömul eða úrelt bókhaldskerfi
með tilheyrandi kostnaði og
takmörkun á framleiðni. „Hér eru
þessi gömlu íslensku bókhaldskerfi
eins og DK enn víða í notkun. Þessi
kerfi voru smíðuð á síðustu öld og
voru mjög fín á sínum tíma. Þarna
var tækniumhverfið allt annað,
nettengingar voru hægar og dýrar.
Þessi kerfi byggja því á gamalli
tækni sem verður flöskuháls víða.
Notendur þurfa oft að vinna í
gegnum fjarvinnsluviðmót sem var
ásættanlegt fyrir einhverjum tíu árum
en er ekki boðlegt í nútímaumhverfi.“
segir Ingvaldur. „Á hinum enda
markaðarins eru stóru kerfin eins
og Dynamics NAV sem eru einnig
komin til ára sinna. Þessi kerfi eru dýr
í innleiðingu og uppfærslur eru dýrar
og flóknar. Uniconta er skýjalausn
sem uppfærist sjálfkrafa þannig
að fyrirtæki sem er í Uniconta þarf
aldrei að ráðast í kostnaðarsama
uppfærslu.“
Uniconta er því skynsamlegasta
lausnin fyrir íslensk fyrirtæki.
Bókhaldskerfi hafa aldrei verið ódýrari
Uniconta er seld sem hugbúnaðarlausn
í áskrift þar sem lægsta mánaðargjald
er kr. 2.499 án VSK en sú áskrift hentar
einyrkjum í einföldum rekstri. „Menn
bæta svo við notendum, kerfiseiningum,
færslum og viðbótarlausnum eftir
þörfum. Viðskiptavinir sem skipta
yfir í Uniconta eru að jafnaði að ná
fram 50% sparnaði í rekstrarkostnaði
bókhaldskerfis,“ segir Ingvaldur. „Þá er
mun einfaldara að innleiða Uniconta en
önnur kerfi og hægt að færa öll gögn
úr gamla kerfinu yfir í Uniconta. Við
aðstoðuðum t.d. lítið fyrirtæki um daginn
við innleiðingu Uniconta og það tók
klukkustund að koma öllum gögnum og
færslum síðustu 10 ára úr gamla kerfinu
yfir í Uniconta. Hjá stærri fyrirtækjum
hleypur innleiðing á einhverjum dögum
en ekki mánuðum eins og hjá mörgum af
okkar keppinautum.“
Aldrei minni vinna við bókhaldið
„Við ætlum okkur ekki aðeins að
lækka kostnað fyrirtækja við áskrift
og innleiðingu viðskiptalausna, heldur
viljum við einnig hjálpa þeim að spara
dýrmætan tíma starfsmanna,“ segir
Ingvaldur. Hjá meðalstóru fyrirtæki
fara hundruð klukkustunda í innslátt
og meðhöndlun fylgiskjala í hverjum
mánuði. Í byrjun árs mun Uniconta
kynna nýja lausn sem les upplýsingar af
fylgiskjölum á stafrænu formi og færir
inn í rétta reiti í kerfinu. Þetta mun spara
alla innsláttarvinnu og nær útrýma
mistökum.
Þetta er í takt við þriðju iðnbyltinguna
þar sem að tæknin leysir af hólmi
einföld, tímafrek verkefni sem eru
endurtekin í gríð og erg. „Margir hafa
spáð því að starf bókara muni leggjast
af en okkar sýn er sú að þessi störf muni
ekki leggjast niður – heldur breytast.
Bókarar munu hafa tíma til að sinna
greiningum og veita stjórnendum
fyrirtækja endurgjöf um reksturinn.
Þetta skapar mun meiri verðmæti fyrir
alla en núverandi fyrirkomulag þar sem
heilu stöðugildin eru að slá inn gögn af
pappír og raða fylgiskjölum í möppur.
Uniconta er í stöðugri þróun og við
leggjum okkur fram um að hlusta á óskir
viðskiptavina okkar. Bestu hugmyndirnar
koma frá fólkinu sem notar kerfið
daglega til að leysa ýmis vandamál
í rekstrinum og kallar eftir nýjum og
snjöllum leiðum til að gera hlutina.“
Um Uniconta
Uniconta A/S er starfrækt í Danmörku
og hefur um 30 starfsmenn á sínum
snærum. Fyrirtækið er að mestu í eigu
Eriks Damgaard en danskir lífeyrissjóðir
lögðu til milljarða fjárfestingu á
síðasta ári. Uniconta Ísland ehf. hefur
dreifingarrétt á Uniconta hér á landi.
Uniconta bókhaldskerfið er selt í
gegnum fjölda sjálfstæðra sölu- og
þjónustuaðila. „Við teljum að þetta
sé besta leiðin inn á markaðinn.
Viðskiptavinurinn getur valið þann
þjónustuaðila sem hann treystir best
en við höfum lagt mikla vinnu í að velja
og þjálfa öfluga þjónustuaðila sem
viðskiptavinir treysta.“
Sjá nánar á uniconta.is.
Bókhaldskerfið sem
allir eru að tala um
UNICONTA