Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 38
Brot af því besta 31. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Þjálfaði sænsku lögregluna. Jón Viðar Arnþórsson er meðal annars þekktur fyrir að hafa stofnað íþróttafélagið Mjölni en í dag er hann með nýtt félag sem heitir ISR Matrix. Jón Viðar hefur staðið fyrir sjálfsvarnarnámskeiðum fyrir konur árum saman. Í sumar verður boðið upp á fjölda námskeiða bæði fyrir konur og karla, sem vilja auka öryggi sitt og fjölskyldu sinnar. „Kerfið er mjög víðtækt. Hægt er að læra grunninn í neyðarvörn, flótta og undankomu frá frelsissviptingu, varnir gegn vopnum, öryggistök, taktík og margt fleira sem viðkemur auknu öryggi. Kerfið er hannað með það í huga að það eru engar reglur þegar ráðist er á þig. Það er enginn dómari eða læknir sem passar upp á þig þótt árásaraðili slái þig í hnakkann eða dragi upp hníf. Þetta er ekki eins og að læra MMA þar sem eru reglur, dómarar og læknar. Grunnnámskeiðin standa yfirleitt í sex tíma á sunnudegi og getur fólk síðan haldið áfram inn í stigvaxandi framhaldsnámskeið ef það kýs svo. Námskeiðin styrkja bæði nemendur andlega og líkamlega. „Þetta kerfi er notað m.a. af sérsveit bandaríska flughersins og er gríðarlega öflugt. Áherslan er á að verja þig og yfirbuga árásarmann með mjög skjótum hætti,“ segir Jón Viðar. Lokuð námskeið fyrir stofnanir og fyrirtæki. ISR Matrix hefur undanfarin misseri þjálfað hinar ýmsu stofnanir, félög og fyrirtæki, eins og bankastarfsmenn, lögreglumenn, hjúkrunarfræðinga, lækna, þingverði, öryggisverði og fleiri. Þessir hópar fá þjálfun í öryggistökum til þess að tyggja aðstæður og valda sem minnstum skaða á hættulegum mótaðila eða sjúklingi. Einnig fá starfsmenn þjálfun í því að passa upp á eigið öryggi og læra því neyðarvörn með öryggistökunum. Sænska lögreglan pantaði námskeið frá ISR Matrix á Íslandi. „Kerfið og kennslan er orðið það viðurkennd hjá okkur að sænska lögreglan fékk okkur til Svíþjóðar núna í vetur til þess að þjálfa þeirra handtökuþjálfara, taktíkþjálfara og skotþjálfara. Kenndum við þeim handtökuaðferðir sem eru mun öflugri og öruggari en þeir notuðu áður. Einnig kenndum við varnir gegn hnífaárásum og hvernig best sé að verja sitt eigið skotvopn ef mótaðili grípur í það,“ segir Jón Viðar. Lokuð sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur Jón Viðar hefur haldið sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur allt frá árinu 2011 en undanfarin misseri hefur orðið mikil þróun í þessari kennslu hans: „Síðustu tvö árin hef ég verið að kenna ISR CAT kerfið, sem er miklu betra en það sem ég notaði áður. Þetta nær yfir víðtækara svið og hefur verið þróað fyrir stelpur í bandaríska hernum sem eru sendar sem njósnarar á hættuleg svæði í Mexíkó, Afganistan, Írak og víðar, þar sem þær geta þurft að bjarga sér úr lífshættulegum aðstæðum.“ Næsta grunnnámskeið fyrir konur verður haldið sunnudaginn 2. júní og í kjölfarið taka við framhaldsnámskeið fyrir þær sem það vilja. Einnig eru í boði önnur námskeið í sumar. Nánari upplýsingar og skráning eru á vefsíðunni isrmatrix.is. Sjá einnig Facebook-síðuna ISR Matrix – Iceland. Kennsla fer fram í húsnæði ISR Matrix að Stórhöfða 17, Reykjavík. Símanúmer er 862 0808. n Mynd: Sigurjón Magnússon. NEYÐARVÖRN OG ÖRYGGISTÖK Mynd: Sólveig María Sölvadóttir. Mynd: Sólveig María Sölvadóttir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.