Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Page 48
Brot af því besta 31. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
SagaPro hefur verið á markaði síðan 2005 og hefur bætt lífsgæði fjölda fólks með ofvirka
blöðru. Ofvirk blaðra lýsir sér í mikilli
þörf fyrir að fara á klósettið þó svo að
þvagblaðran sé ekki full. Þetta veldur
tíðum klósettferðum sem getur truflað
svefn og daglegt líf umtalsvert. Yfir 1%
þjóðarinnar notar SagaPro daglega,
en tíðni ofvirkrar blöðru er umtalsverð,
eða um 10%, tíðnin eykst svo með
hækkandi aldri. Margir vakna mörgum
sinnum á hverri nóttu og slíta þar af
leiðandi svefn, sem hefur slæm áhrif á
alla líkamsstarfsemi.
Íslenskt hugvit hjálpar fólki
um allan heim
SagaPro er frábært dæmi um íslenskt
hugvit og þess þá heldur vöru sem
virkar. Virka efnið í SagaPro er unnið úr
íslenskri lífrænt vottaðri ætihvönn og
innihalda töflurnar engar dýraafurðir
og henta því einnig grænkerum. „Við
hjá SagaNatura leggjum metnað í að
framleiða náttúrulegar vörur sem hafa
raunveruleg áhrif og bæta lífsgæði
fólks,“ segir Dr. Lilja Kjalarsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri
SagaNatura.
Framtíðin er björt hjá þessu
framsækna íslenska fyrirtæki en fyrir
stuttu hlaut SagaNatura umtalsverðan
styrk frá Evrópusambandinu til þess
að klára mikilvægar rannsóknir á
SagaPro sem mun styrkja erlenda sölu
umtalsvert ef vel tekst til.
Mikilvæg rannsókn sem féll en gaf
áhugaverðar niðurstöður
„Árið 2012 gerðum við klíníska
rannsókn á 66 karlmönnum sem
vöknuðu oft á nóttunni til þess að
pissa. Þá létum við annan hópinn nota
SagaPro áður en þeir fóru að sofa,
en hinn hópinn létum við fá lyfleysu. Í
heildina féll rannsóknin, sem kom okkur
á óvart því við vissum að SagaPro
virkaði í fjölda tilfella án alls efa.
Á þessum tíma vissum við ekki hvert
virka efnið var í ætihvönninni og því
voru gerðar undirhópagreiningar innan
rannsóknarhópsins. Við greindum
vandamálin sem einstaklingarnir voru
með til þess að athuga hverjir þeirra
höfðu hag á að nota SagaPro og
hverjir ekki. Þá komumst við að því að
SagaPro virkaði vel fyrir karlmenn með
ofvirka þvagblöðru og litla blöðrurýmd,
en ekki þá sem þjáðust af öðrum
kvillum.
Fyrsti sérfræðingurinn í ætihvönn
í heiminum, dr. Steinþór Sigurðsson,
vísindamaður SagaNatura, hefur
nú aðgreint og einangrað öll virku
efnin í ætihvönninni og prufað efnin
eitt af öðru í þvagblöðrulíkani á
rannsóknarstofunni. Með þessari
aðferð fann hann efni í hvönninni sem
hefur slakandi áhrif á þvagblöðruna
sem passar algerlega við þær
niðurstöður sem við fengum á sínum
tíma. Þetta voru góðar fréttir því
þetta þýðir að SagaPro virkar líka fyrir
konur, því það er enginn sérstakur
líffræðilegur munur á þvagblöðru karla
og kvenna,“ segir Lilja.
200.000.000 styrkur frá
Evrópusambandinu
SagaNatura er að vinna í
markaðssetningu SagaPro erlendis.
„Ástæðan fyrir því að við erum að
leita út fyrir landsteinana er sú að
íslenskur markaður er lítill og við
vitum að við getum hjálpað svo miklu
fleirum.“ Salan hefur verið mjög góð
í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Finnlandi,
Kanada og Nýja-Sjálandi. Þá hefur
hjálpað sölunni hversu vel efnið hefur
virkað hérlendis. „En við vitum að við
getum gert miklu betur. Til þess að
geta selt SagaPro út um allan heim
þurfum við að gera nánari rannsóknir
á virka efninu í ætihvönn og virkni þess
á stærri og fjölbreyttari hóp af fólki.
Þessar rannsóknir munu styðja við
þá niðurstöðu sem við fengum í fyrri
rannsóknum og erum við jákvæð um
framhaldið.
Við höfum nú þegar sótt um og
fengið einkaleyfi á því að nota efnið
sem við fundum í ætihvönninni gegn
þvagblöðruvandamálum. Einnig
höfum við fengið lífræna vottun á
hvannaextraktinum sem mun hjálpa
okkur enn frekar í markaðssetningunni.
Nú nýlega fengum við svo
200 milljóna króna styrk frá
Evrópusambandinu til þess að gera
frekari rannsóknir á SagaPro og virka
efninu. Rannsókn verður gerð á Spáni
á 100 konum og 100 karlmönnum. En
ástæðan fyrir því að við völdum að
gera rannsóknina ekki á Íslandi er sú
að nú þegar nota margir SagaPro á
Íslandi sem myndi gera okkur erfitt
fyrir að fá ómengaðar niðurstöður.“
Fyrirhugaðar betrumbætur á
SagaPro
„Við ætlum svo meðal annars að nota
styrkinn til þess að fjármagna þessa
nýju rannsókn sem mun hjálpa okkur í
markaðssetningunni, en einnig til þess
að skala upp framleiðsluna og staðla
SagaPro út frá þessu virka efni. Þetta
mun gera það að verkum að við getum
selt vöruna enn víðar. SagaNatura
stefnir svo á að gera stigmagnandi
endurbætingar á SagaPro í
framtíðinni. „Við höfum stigið fyrsta
skrefið sem var að setja SagaPro í
hylkjaform. Ástæðan er sú að það
er töluvert auðveldara að gleypa
hylkin heldur en töflurnar. Einnig gefst
notendum SagaPro kostur á því að
opna hylkin og setja út í vatnsglas eða
annað til þess að auðvelda inntöku.
Þá er mælt með að SagaPro sé tekið
að kvöldi til fyrir góðan og óslitinn
nætursvefn.“
„Næsta stig er svo að setja á
markað nokkrar nýjungar. Við erum
nú þegar með skemmtilega vöru í
þróun sem kemur inn í SagaPro-línuna
innan skamms, þ.e. nýtt og endurbætt
SagaPro sem er hannað sérstaklega
fyrir konur og mun heita SagaPro
Femme. Sú vara mun m.a. innihalda
efni unnið úr trönuberjum sem hjálpar
til við meðferð á þvagfærasýkingum.“
Vörurnar frá SagaMedica fást í
öllum helstu heilsuvörubúðum og
stórmörkuðum svo sem Krónunni,
Nettó og Fjarðarkaupum.
Einnig má skrá sig í áskrift en þá
færðu sendan pakka í hverjum mánuði
inn um lúguna.
Hægt er að skrá sig í áskrift í
síma 562-8872, senda netpóst á
saganatura@saganatura.is eða skrá
sig í áskrift á netinu, sagapro.is n
200 milljóna króna styrkur sem
mun styðja við útrás SagaPro
Lilja Kjalarsdóttir í
hvannarframleiðslurýminu.