Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Blaðsíða 52
Hlaupablað 31. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Dyrfjallahlaupið fer fram í þriðja skipti þann 20. júlí í Borgarfirði eystri. Hlaupið
er á vegum Ungmennafélags
Borgarfjarðar og dregur nafn sitt
af hinum ægifögru Dyrfjöllum sem
gnæfa yfir Borgarfjörðinn. Dyrfjöllin
heita svo vegna skarðs mikils í miðju
fjallgarðsins sem minnir á risastórar
dyr.
„Dyrfjallahlaupið er haldið á hverju
ári og er fyrir þá sem hafa gaman
af því að hlaupa í fjölbreyttu og
tæknilegu undirlagi. Þetta er kannski
ekki ákjósanlegt fyrsta utanvegahlaup
fólks þar sem hækkunin er töluverð og
undirlendið fjölbreytt en hefur verið
lýst sem einhverju fallegasta hlaupi
landsins. Því hefur verið heyrt fleygt
þegar keppendur koma í mark að
þetta sé erfiðasta hlaupaleið landsins
en þó virðast allir vera sammála
um það að þetta sé ein af þeim
fallegri sem fyrirfinnast,“ segir Inga
Fanney Sigurðardóttir, verkefnastjóri
hlaupsins.
Bæði metin slegin í fyrra
Í fyrsta skipti sem hlaupið var
haldið kom Arnar Pétursson
fyrstur karla í mark á 02:08:19
og Elín Edda Sigurðardóttir fyrst
kvenna á 02:40:26. Í fyrra voru
bæði metin slegin og var það
Elísabet Margeirsdóttir sem setti
nýt brautarmet kvenna á 02:30:27
og Ricky Lightfoot sló brautarmet
karla, en hann kom í mark á tímanum
01:58:11 og er jafnframt sá eini sem
hefur farið þessa leið á undir 2 tímum.
Hólaland – Stórurð –
Bakkagerðisþorp
Leiðin er 23 kílómetra löng og telst
hlaupið til utanvegahlaups. „Þetta
hefst allt við bæinn Hólaland í
innsveit Borgarfjarðar. Þaðan er
hlaupið upp til að byrja með eftir
gömlum raflínuslóða sem liggur
að Sandaskörðum. Þegar komið
er langleiðina upp í Sandaskörð er
beygt til hægri á merkta gönguleið
sem liggur að Eiríksdalsvarpi. Frá
varpinu er hlaupið um Tröllabotna,
yfir Lambamúla áleiðis að Urðardal
þar sem Stórurð liggur undir dyrum
Dyrfjalla. Úr Stórurð er hlaupið upp
bratta brekku í átt að Mjóadalsvarpi.
Á krossgötum ofan Stórurðar er
beygt til hægri og hlaupið eftir grófri
slóð undir hömrum Dyrfjalla ofan
Njarðvíkur og Dyrfjalladals. Leiðin
liggur að Grjótdalsvarpi og þaðan
er hlaupið að mestu á grónu landi
að Brandsbalarétt sem er rétt fyrir
innan þorpið Bakkagerði í Borgarfirði.
Seinustu 700 metrana er hlaupið á
malbiki að fótboltavelli UMFB þar sem
hlaupið endar.“
Gullfalleg leið
„Ef maður skráir sig í hlaupið fyrir 31.
maí þá er verðið 9.900 krónur fyrir
hvern keppanda. En ef keppandi skráir
sig á tímabilinu 1. júní–17. júlí fer verðið
upp í 10.900. Skráning eftir það kostar
11.900. Það er um að gera að skrá sig
sem fyrst og fara að koma sér í gott
hlaupaform fyrir Dyrfjallahlaupið.
Þetta er gullfalleg leið og gaman
að vera úti í guðsgrænni náttúrunni
að hlaupa þarna um fjöll og firnindi.
Borgarfjörðurinn er náttúrlega einn
fallegasti staður á jarðríki,“ segir Inga.
Verðlaun
Allir þátttakendur fá þátttökupening
þegar þeir koma í mark. Verðlaun
verða svo veitt fyrir þrjú fyrstu sæti
karla og kvenna.
Allar nánari upplýsingar um hlaupið
má nálgast á dyrfjallahlaup.is n
Ein fallegasta
hlaupaleið landsins
DYRFJALLAHLAUPIÐ