Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 56
Hlaupablað 31. maí 2019KYNNINGARBLAÐ Verslunin Sportvörur Bæjarlind 1–3 Kópavogi býður upp á mikið úrval af vönduðum hlaupafatnaði fyrir nýliða og keppnisfólk. Þegar kemur að íþróttafatnaði leggja Sportvörur áherslu á háþróaðar vörur sem styðjast við umfangsmiklar gæðaprófanir. Þá hefur verslunin verið leiðandi á Íslandi í sölu á æfingatækjum, lyftingabúnaði og bardagavörum. Eins og að hlaupa á skýjum Nýjasta vara þeirra eru On skórnir, sem upprunnir eru úr Svissnesku Ölpunum, með það að markmiði að umbylta upplifun hlauparans. Sportvörur eru fyrst til þess að bjóða upp á skóna á Íslandi, en margir af viðskiptavinum þeirra voru kunnugir skónum erlendis frá. Skórnir byggja á tækni sem nefnist CloudTec® og byggir á mjúkri lendingu sem fylgt er með kraftmikilli fjöðrun. Að sögn sölumanna Sportvara virkar tæknin líkt og ský. Hefðbundnir hlaupaskór dempa bara upp og niður en On skórnir bæta um betur og dempa afturábak og áfram, sem er áður óþekkt hér á landi. Að auki búa skórnir yfir annarri nýjung sem nefnist SpeedboardTM, sem er vökvafyllt bretti undir innleggi sólans. Það er þróað af verkfræðingum til þess að lágmarka tap á hreyfiorku milli skrefa og breyta orkunni í hreyfingu framávið. Brettið sveigist eins og þegar bogi er spenntur og skilar þannig aukinni orku til hlauparans. Einnig virkar það eins og jafnvægisbretti og hjálpar hlauparanum að stilla sig af og lenda rétt. Eins veitir það góða vörn ef stigið er á misfellur, en það dreifir álaginu um allan fótinn. Allir ættu að geta fundið On skó við sitt hæfi, en Sportvörur hafa á boðstólum alhliða íþróttaskó, hversdagsskó og hlaupaskó frá merkinu. Allir eru þeir búnir CloudTec® en er tæknin þó örlítið mismunandi eftir gerðum. Skemmtileg upplifun fyrir meiðslapésa Stefán Logi Magnússon, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og verslunarstjóri Sportvara, ber On skónum góða sögu og segir þá ótrúlega létta og þægilega. „Þeir hafa reynst mér vel sem fyrrverandi knattspyrnumanni. Ég hef orðið fyrir miklu álagi á liðþófana og hnén og finn klárlega mun þegar ég nota On skóna. Það hefur verið skemmtileg upplifun fyrir meiðslapésa eins og mig.“ Þá hafa viðskiptavinir Sportvara losnað við beinhimnubólgu, og meðal annars rakið það til þess að hafa skipt yfir í On skóna. Við kaup á hlaupaskóm er mikilvægt að gefa sér tíma og vanda valið. Í verslun Sportvara geta viðskiptavinir prófað skóna á tveimur mismunandi hlaupabrettum. Öllum er frjálst að máta og prófa, en oft er ekki aftur snúið eftir að hafa hlaupið á skýjunum. Leiðandi í óháðum rannsóknum á íþróttafatnaði Að auki bjóða Sportvörur upp á hlaupafatnað frá fyrirtækinu 2XU. Fyrirtækið er leiðandi á heimsvísu hvað varðar óháðar rannsóknir á compressionfatnaði, sem ætlað er að bæta æfingar, frammistöðu og endurheimt. Rannsóknir sýna markverðan mun þegar kemur að þáttum á borð við aukið blóðflæði, minni eymsli og betri árangur. Sem dæmi um sérhæfðar gerðir 2XU má nefna fatnað fyrir hjólreiðafólk, buxur fyrir ófrískar konur, bæði fyrir og eftir fæðingu, og sérstakar compressionbuxur sem flýta endurheimt, meðal annars ætlaðar fyrir flug. Allir starfsmenn verslunarinnar hafa bakgrunn í íþróttum og því margfróðir þegar kemur að ráðgjöf við val á íþróttabúnaði. Þar er tekið vel á móti öllum og margir fastakúnnar sækja verslunina reglulega. Nánari upplýsingar: Sportvörur – Sportvorur.is Bæjarlind 1–3 201 Kópavogur Sími: 544 4140 n HLAUPTU Á SKÝJUM Sportvörur.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.